bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Verðbréf https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=36826 |
Page 1 of 1 |
Author: | Astijons [ Fri 24. Apr 2009 17:14 ] |
Post subject: | Verðbréf |
jæja þegar maður átti fullt af pening ákvað maður að fara í landsbankann og borga eitthvað í mánuði og græða meira ... fyrir valinu var eitthvað verðbréfadæmi og borgaði 30 þusund á manuði í það... svo einn daginn ákvað maður á gott fyllerí tók peninginn sem var nokkrir hundrað þusundkallar og eyddi þessu í fyllerí og rugl... en svo næstu mánaðarmót átti ég aftur að borga 30 þusund sem ég gerði og sagði mig svo úr þessu þar sem ég vildi ekki aftur fara á svona fyllerí... enn svo var ég að skoða heimabankann áðan og þessi 30 þusund er buinn að "ávaxta" sig um .... Nafnávöxtun: -65,40 % Nafnávöxtun á ársgrundvelli: -65,09 % Upphafsstaða: 32.185 ISK Innborgun/Útborgun: 0 ISK Greiddur fjármagns.t.skattur: 0 ISK Innleystur hagnaður: - 2.315 ISK Óinnleystur hagnaður: - 18.733 ISK Heildareign : 9.912 ISK Ef ég hefði átt 320 þusund (átti meira en það) hefði ég þá átt 99 þusund í dag eða??????? |
Author: | ValliB [ Fri 24. Apr 2009 17:23 ] |
Post subject: | Re: Verðbréf |
Fyllerí borga sig greinilega. En hversskonar rosalega fyllerí var þetta, tvær vikur á Ibiza? ![]() |
Author: | HAMAR [ Fri 24. Apr 2009 17:42 ] |
Post subject: | Re: Verðbréf |
Já, það er ca.60% tap á þessum ''sparnaði'' ![]() ég var með minn sparnað í pundum og þegar krónan féll leysti maður allt út og átti hellings aur, pundið var í 220 kr. þegar ég leysti aurinn út ![]() en var alltaf að borga ca. 115 kr. fyrir pundið á sparnaðarferlinu ![]() |
Author: | fart [ Fri 24. Apr 2009 17:54 ] |
Post subject: | Re: Verðbréf |
Ef þú hefðir keypt hlutabréf í GLB, LAIS eða KAUP |
Author: | fart [ Fri 24. Apr 2009 17:54 ] |
Post subject: | Re: Verðbréf |
Ættir þú ekkert í dag. |
Author: | HAMAR [ Fri 24. Apr 2009 18:15 ] |
Post subject: | Re: Verðbréf |
fart wrote: Ættir þú ekkert í dag. Það er alveg ömurlegt að lenda í svoleiðis rugli ![]() |
Author: | Astijons [ Fri 24. Apr 2009 19:03 ] |
Post subject: | Re: Verðbréf |
þeir þurfa samt að fara uppfæra heimabankann... tala enn um ávaxtanir og læti ... og svo viðbótarlífeyrinn minn er kominn úr 90 þusund í 70 þusund... þetta er bara allt í rugli ![]() |
Author: | Steini B [ Fri 24. Apr 2009 19:13 ] |
Post subject: | Re: Verðbréf |
Astijons wrote: þeir þurfa samt að fara uppfæra heimabankann... tala enn um ávaxtanir og læti ... og svo viðbótarlífeyrinn minn er kominn úr 90 þusund í 70 þusund... þetta er bara allt í rugli ![]() Ég tók einmitt eftir því að minn hefði lækkað um 60% ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |