Page 1 of 2

Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 15:31
by Jónas
Er með eitt dæmi sem ég er búinn að berjast við í c.a. 15klst og er að spá hvort einhver geti aðstoðað mig (Ef það heppnast þá er bjórkippa í boði(eða andvirði hennar)).

Þetta snýst semsagt um að skrifa kóða til að leysa kerfi af quadratic Riccati diffurjöfnum á forminu:

dX/dt = A'X + 1/2*B'*diag(C'X)*C'X -g

dx/dt = a'X +1/2*b'*diag(C'X)*C'X -g0

Endilega sendið mér PM ef þið getið bjargað mér,, er að verða gráhærður

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 15:36
by Einarsss
Árni Björn ætti að geta reddað þér á no time fyrst það er bjór í boði :D

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 15:39
by arnibjorn
einarsss wrote:Árni Björn ætti að geta reddað þér á no time fyrst það er bjór í boði :D

Haha ég las yfir þetta og ákvað svo að þetta væri ekki þess virði. Fékk hausverk bara við að lesa þetta :lol:

Ekki það að ætti breik í að hjálpa þér með þetta Jónas :mrgreen:

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 15:52
by JOGA
Hef ekki notad Matlab mikid ...

Datt nidur a thetta. Getur thu eitthvad notad kodan a bak vid thetta sem grunn?

http://ideas.repec.org/c/dge/qmrbcd/21.html

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 15:55
by Jónas
Þetta á að vera vel þekkt jafna sem þarf að leysa í sambandi við "affine diffusion model" til að verðleggja hlutabréf og eignir, en ég hef ekkert fundið um þessa Riccati jöfnu, eina sem ég hef fundið hingað til er hvernig á að stjórna halla á gervihnöttum... en málið er það að ég er í hagfræði, ekki verkfræði :)

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 16:03
by Svezel
Það eru verða 3ár síðan ég notaði Matlab síðast og ég er ekki með Matlab uppsett á neinni nothæfri vél í dag svo mín hjálp er nánast einskis virði.

En ef ég ætti að leysa þetta myndi ég byrja á að lesa um ode föllin til að leysa diffurjöfnur í Matlab og svo reyna að útfæra það á Riccatti í framhaldi.

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 16:14
by Jónas
Svezel wrote:Það eru verða 3ár síðan ég notaði Matlab síðast og ég er ekki með Matlab uppsett á neinni nothæfri vél í dag svo mín hjálp er nánast einskis virði.

En ef ég ætti að leysa þetta myndi ég byrja á að lesa um ode föllin til að leysa diffurjöfnur í Matlab og svo reyna að útfæra það á Riccatti í framhaldi.


http://www.mathworks.com/support/soluti ... on=1-1C6YS

Notaðist við þetta og fékk:

function dX2dt = mRiccati2(t, X, A, B, C,g)
X = reshape(X, size(A));
dX2dt = A.'*X + 1/2*B.'*((C.'*X)*(C.'*X)) - g
dX2dt = dX2dt(:);

Smelli svo inn tölunum sem gefnar eru:

A = [-17.4 17.4 -9.309; 0 -0.226 0.879; 0 0 -0.362];
B = [0 0 1; 0 0 0; 0 0 0.00782];
C = [1 -3.42 4.27; -0.0943 1 0; 0 0 1];
g = [1;0;0];
X0 = zeros(size(A));

Og fæ:
>> [T X] = ode45(@mRiccati2,[0 30], X0, [], A,B,C,g)
??? Error using ==> minus
Matrix dimensions must agree.

en ef ég breyti aðeins og set g = 0 (scalar) þá fæ ég þetta til að virka en allar afleiður eru = 0 og X er alltaf 0...

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 16:20
by bimmer

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 16:42
by Jónas
bimmer wrote:Búinn að skoða þetta?: http://www.mathworks.com/support/soluti ... on=1-1C6YS


Benti einmitt á þetta í fyrri póstinum :)

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 16:43
by bimmer
Jónas wrote:
bimmer wrote:Búinn að skoða þetta?: http://www.mathworks.com/support/soluti ... on=1-1C6YS


Benti einmitt á þetta í fyrri póstinum :)


Úps... var ekki kominn þegar ég replyaði....

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 16:45
by Jónas
Kein prob, fæ þessa villu að ég geti ekki dregið g vektorinn fá vegna dimensions, en kóðinn virðist vera réttur hrmpft

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 18:35
by Kristjan
Mér nú veit ég hvernig Alpina líður þegar hann les tölvu troubleshooting þræði...

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 18:49
by bErio
Svarið er X

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 19:53
by Axel Jóhann
Vá þetta er hebreska fyrir mér.

Re: Einhver hérna sem er mjög fær í Matlab?

PostPosted: Fri 17. Apr 2009 22:14
by ValliFudd
bErio wrote:Svarið er X

Nei það er klárlega 43 8) Svarið er ALLTAF 43 :!: