bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
wbaheoahoeuhaoehauehoaeu TRUE !!! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=3660 |
Page 1 of 2 |
Author: | Haffi [ Wed 10. Dec 2003 22:12 ] |
Post subject: | wbaheoahoeuhaoehauehoaeu TRUE !!! |
![]() I LOOOOVE IT !!! ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Jss [ Wed 10. Dec 2003 22:13 ] |
Post subject: | |
Gargandi snilld ![]() Þetta er svoooo rétt ![]() ![]() |
Author: | bebecar [ Thu 11. Dec 2003 09:34 ] |
Post subject: | |
Ég verð nú reyndar að segja að mér finnst þessi andfeminista áróður ansi kjánalegur. Fyrir mína parta væri ég afskaplega glaður ef að konan mín hefði jafn góð laun og ég og ekki dettur mér í hug að óska dóttur minni lægri launa en syni mínum svo dæmi sé nefnt og að sama skapi vil ég tækifæri þeirra til vinnu meiri en svo að þær þurfi að fórna sjálfsvirðingu sinni fyrir tekjur. Feministar hafa ýmislegt til sýns máls en þar eins og annarsstaðar eru öfgatýpur sem spilla fyrir en svona viðbrögð sýna bara sama kjánaskap. Svo að lokum sé ég ekki að skynsamlegt sé að bera þetta saman við jafn alvarlegan atburð og skipulagt þjóðarmorð nasista sem byrjaði með ofsóknum. Mér sýnist einmitt að feministar séu frekar ofsóttir. |
Author: | Jss [ Thu 11. Dec 2003 09:40 ] |
Post subject: | |
Þessi feminístamál eru bara orðin svo öfgakennd og svo mörg þeirra sem eru svona öfgakennd, finnst allt í lagi að skjóta dálítið á þetta |
Author: | bebecar [ Thu 11. Dec 2003 09:43 ] |
Post subject: | |
Já, en þá verða menn að gera greinarmun á feminisma og öfgakellingunum. Þetta er vont fyrir málstaðinn, alveg sama hvor málstaðurinn það er. |
Author: | Gunni [ Thu 11. Dec 2003 11:19 ] |
Post subject: | |
Bebecar: málið er bara það að þetta feminista félag er ekkert lengur að fjalla um launamismun, þetta er komið útí svo allt aðra hluti. Svo verðum við nú líka að pæla aðeins í því hvort það sé sanngjarnt að konur séu ráðnar í öll störf bara af því að þær eru konur ![]() |
Author: | bebecar [ Thu 11. Dec 2003 11:28 ] |
Post subject: | |
Öll þessi umræða á rétt á sér eins og þú nefnir. En það er einmitt hið gagnstæða við svona "ofsóknir" eins og andfeministar stunda þessa dagana. Ég bendi reyndar á að það er líka kynjakvóti í félagsfræði, þar á að ráða karla umfram konur þannig að þetta virkar í báðar áttir. |
Author: | Jss [ Thu 11. Dec 2003 11:41 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Öll þessi umræða á rétt á sér eins og þú nefnir. En það er einmitt hið gagnstæða við svona "ofsóknir" eins og andfeministar stunda þessa dagana.
Ég bendi reyndar á að það er líka kynjakvóti í félagsfræði, þar á að ráða karla umfram konur þannig að þetta virkar í báðar áttir. Nú fyrsta dæmið um svona lagað sem ég hef heyrt um ![]() |
Author: | bebecar [ Thu 11. Dec 2003 11:43 ] |
Post subject: | |
Neibb, það er nefnilega alveg rétt, það er ekkert jafnrétti í því. En ég held að lögin hljóði þannig að ef einstaklingar eru jafn hæfir þá eigi að ráða það kyn sem er í minnihluta - í sjálfu sér finnst mér það í góðu lagi. |
Author: | Gunni [ Thu 11. Dec 2003 11:44 ] |
Post subject: | |
Ekki má þó misskilja mig, ég hef alls ekkert á móti konum. Að sjálfsögðu finnst mér konur eiga rétt á sömu launum og karlar og þvíumlíkt. Mér finnst bara margt af þessu svo kjánalegt. Eins og fyrir stuttu síðan uppgötvuðu þessir feministar að karlmenn væru í meirihluta nemenda við háskóla íslands. Þá þurfti að sjálfsögðu að jafna það. Í dag eru konur fleiri í lang flestum deildum, en ekki sjáum við karlafélag íslands skæla yfir því. Ef þetta heldur svona áfram til langframa þá verður þetta bara þannig að enginn karl fær starf, nema ef engin kona sækir um. Mér finnst þetta vera komið útí svo mikið kjaftæði. Þetta feministafélag drap sig nú alveg í mínum augum þegar þær voru að mótmæla fyrir utan ungfrú ísland.is. Þær komu í eitthvað viðtal hjá kynni keppninnar á keppninni sjálfri og gerðu sig að algjörum fíflum. Ég meina djöfulann kemur það þeim við hvort það sé haldin fegurðarsamkeppni eða ekki ? Það er svo margt meira sem ég gæti nöldrað um í kringum þetta, það kemur kannski hægt og rólega ef þessi umræða þróast eitthvað. En bottom line: ég hef ekkert á móti konum, og þær eiga að sjálfsögðu að fá sömu laun og menn. |
Author: | Svezel [ Thu 11. Dec 2003 12:00 ] |
Post subject: | |
Ég er nú á þeirri skoðun að það eigi alltaf að ráða hæfasta einstaklinginn og jákvæð mismunun er samt mismunum. Auðvitað á fólk að hljóta sömu laun fyrir sömu vinnu og ég efast að nokur sé ósammála um það, en svona mismunum tel ég ekki vera skref i rétta átt. |
Author: | bebecar [ Thu 11. Dec 2003 12:35 ] |
Post subject: | |
Ég er alveg sammála því - en ég held samt að ef báðir einstaklingar eru jafnir þá finnst mér í lagi að velja það kyn sem er í minnihluta í viðkomandi starfi, í stað þessa að "flip a coin". Svo held ég nú að þetta feminstafélag hér heima sé dálítið úr takt við almenna stefnu feminista. Öfgahópar er bara ekki til neins góðs, alveg sama hvaðan þeir koma. |
Author: | Aron [ Thu 11. Dec 2003 12:44 ] |
Post subject: | |
Þetta dæmi gegn feminístum er öfga líka að mínu mati, alltaf að koma eitthvað svona dæmi. Öfgar bera af sér öfga?? |
Author: | Haffi [ Thu 11. Dec 2003 18:55 ] |
Post subject: | |
ég er á móti konum. ![]() Þær eiga bara að vera heima....... |
Author: | Kristjan [ Fri 12. Dec 2003 10:09 ] |
Post subject: | |
Konur hafa það almennt betra en karlmenn, við lifum styttra, eigum meiri líkur á því að drepast í slysi, verða alkohólistar eða stytta líf okkar. þess vegna segi ég bara talk to the hand þegar einhverjir féministar fara að rífa sig ![]() Ég er fylgjandi jafnræði en mótfallinn féminisma. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |