bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Loksins snillingur á Selfossi!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=36536
Page 1 of 2

Author:  IvanAnders [ Tue 14. Apr 2009 14:10 ]
Post subject:  Loksins snillingur á Selfossi!

http://www.visir.is/article/20090414/FR ... /529569528

Quote:
Lögreglan á Selfossi var kölluð að verslun Krónunnar aðfaranótt laugardag eftir að þeim barst tilkynning um mann sem eldur hafði komist í.

Þegar lögreglan mætti á vettvang var enginn eldur sjáanlegur en í ljós kom að nítján ára piltur hafði hellt bensíni yfir sig og borið eld að.

Félagi hans var til halds og trausts, vopnaður slökkvitæki og hafði slökkt eldinn.

Lögreglan spurði piltinn hvað honum hefði gengið til. Pilturinn svaraði því þá til að hann hefði kveikt í sér til gamans þar sem það væri svo leiðinlegt að vera á Selfossi.

Samkvæmt dagbók lögreglunnar hlaut maðurinn ekki skaða af upptækinu þar sem hann hafði borið vaselín á fætur sínar til þess að fyrirbyggja brunann.


Meistari! :lol:

Author:  Einarsss [ Tue 14. Apr 2009 14:12 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

hahaha ekkert betra að gera en að kveikja í sjálfum sér á selfossi :lol:

Author:  Hlynur___ [ Tue 14. Apr 2009 14:15 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

hahaha djöfulli góður

ég hefði samt frekar bara stokkið í ölfusánna en að kveikja í mer :lol:

Author:  siggir [ Tue 14. Apr 2009 14:18 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

Shiii... Ég bjó nú á Selfossi í 18 ár en mér leiddist aldrei svona mikið.

Author:  Dóri- [ Tue 14. Apr 2009 14:36 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

það sem kemur ekki fram í fréttinni er að hann kveikti í sér aftur og slökkvitækið kláraðist áður en það náðist að slökkva í þessu, hann hljóp út um allt og rúllaði sér :D

Author:  ///M [ Tue 14. Apr 2009 16:22 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

Ég hef einmitt keyrt í gegnum Selfoss og þetta kemur mér alls ekki á óvart.

Author:  Hreiðar [ Wed 15. Apr 2009 10:11 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

hvaða hvaða.. ég hef átt heima þarna, fínasti staður, ekkert lóner place :)

Author:  Angelic0- [ Fri 17. Apr 2009 08:47 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

er þetta semsagt nýja tískan hjá þessum GOTH krökkum :?:

hættir að skera sig :?:

Author:  IvanAnders [ Fri 17. Apr 2009 13:03 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

Þeir skera sig bara í keflavík vegna þess að það er of mikið rok til að kveikja eld!

Author:  krullih [ Fri 17. Apr 2009 13:08 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

IvanAnders wrote:
Þeir skera sig bara í keflavík vegna þess að það er of mikið rok til að kveikja eld!



BEST COMMENT EVER.

Author:  gardara [ Fri 17. Apr 2009 13:21 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

IvanAnders wrote:
Þeir skera sig bara í keflavík vegna þess að það er of mikið rok til að kveikja eld!


:rofl: :rofl:

Author:  íbbi_ [ Fri 17. Apr 2009 13:37 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

ég fluttist langleiðina til selfoss nýlega.. og er BARA ánægður..

Author:  Doror [ Fri 17. Apr 2009 19:01 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

íbbi_ wrote:
ég fluttist langleiðina til selfoss nýlega.. og er BARA ánægður..


Enda er líklegt að Camaroinn þinn geti keyrt á Selfoss blindandi ef þú skellir honum bara í drive og lokar hurðinni.

Author:  garnett91 [ Fri 24. Apr 2009 16:24 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!



hérna er myndband af þessu og hann er 17 ára ekki 19 :D

Author:  Steini B [ Fri 24. Apr 2009 19:16 ]
Post subject:  Re: Loksins snillingur á Selfossi!

Afhverju datt mér þetta ekki í hug???

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/