bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Manni blöskrar
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=35854
Page 1 of 2

Author:  Kristjan PGT [ Fri 20. Mar 2009 02:35 ]
Post subject:  Manni blöskrar

Ég er búinn að fylgjast aðeins með hérna.

Ég er að sjá það síendurtekið að meðlimir hér sem hafa verið á þessari síðu í að verða nokkur ár eru að gera sig seka um fáranlega stæla, endurtekningar, skot og eyðileggingu á þráðum.

Þá sérstaklega skot á nýja meðlimi sem eru kannski ekki alveg með málin á hreinu.
Sýnist svona á öllu að rótgrónir spjallverjar séu alfarið að sjá um það sjálfir að draga þetta frábæra spjallsvæði á lægra plan.

Taki það til sín sem eiga.

Með bestu kveðju,
Kristján Örvar, Bmw aðdáandi.

Author:  ///M [ Fri 20. Mar 2009 04:33 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

Hringja á waaaambulancinn eða?? :mrgreen:

Author:  jeppakall [ Fri 20. Mar 2009 09:42 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

Djöfull geta sumir vælt hérna...eigum við kannski að banna húmor líka?

Ertu sonur konunnar sem finnst æfingasvæði fyrir aksturíþróttir sambærilegt við æfingasvæði fyrir nauðgara?

Author:  fart [ Fri 20. Mar 2009 09:43 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

Ég hef nú reyndar kvartað yfir því sama. Stundum finnst manni eins og menn sem hafa ekkert að segja skrifi mest, sem þýðir að spjallið verður stútfullt af drullu.

En þetta er allaf erfiður vegur að fara, hvenær er gott gott og vont vont.

Author:  bimmer [ Fri 20. Mar 2009 11:56 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

Kristján - hvaða þræði ertu að tala um sem dæmi?

Author:  saemi [ Fri 20. Mar 2009 12:11 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

bimmer wrote:
Kristján - hvaða þræði ertu að tala um sem dæmi?


Já, segi sama.

Ég get þó verið sammála um að á köflum finnst mér spjallið áhugalítið. Minna er meira á þann hátt að það meira gaman að lesa færri skemmtilega pósta heldur en fullt af bulli.

Þetta er bara komið á það level að það er voðalega mikið af einstaklingum sem setja hér inn innlegg sem innihalda voðalega lítið efnislega, en eru samt ekki þannig að neitt sé hægt að amast út í þau.

En.... stundum er bara betra að sleppa því að setja inn eitthvað heldur en að setja eitthvað lélegt..

Author:  fart [ Fri 20. Mar 2009 12:41 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

Það fyndna við svona þræði (eins og þennan) er að maður getur alltaf countað á nokkra hluti.

1. ///M kemur með vælubílinn :D
2. ég commenta og er sammála
3. Þórður vill fá dæmi
4. Og Sæmi tekur málefnalegu leiðina

og nú vantar bara #5

5. Svezel kemur með mynd af vælubílnum :x :lol:

Author:  Kristjan [ Fri 20. Mar 2009 12:47 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

6. Svezel skiptir út avatarnum þínum fyrir mynd af vælandi kellingu... :lol:

Author:  arnibjorn [ Fri 20. Mar 2009 12:52 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

7. Kruder kemur með komment sem honum finnst ýkt sniðugt en er það í raun ekki.

Author:  ValliFudd [ Fri 20. Mar 2009 12:56 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

8. Árni Björn verður að vera með í öllum þráðum sem eru skrifaðir til að safna póstum :lol:

EDIT:
En já ég hef alveg tekið eftir þessu, en það er nú líka mjög oft sem menn koma hér inn nýjir með svakalega "ég er betri en þið" stæla..

Author:  Kristjan [ Fri 20. Mar 2009 13:01 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

arnibjorn wrote:
7. Kruder kemur með komment sem honum finnst ýkt sniðugt en er það í raun ekki.



Hvaða diss er þetta eiginlega?

Author:  Djofullinn [ Fri 20. Mar 2009 13:03 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

Vonandi ertu ekki að tala um !!!!!?????? grínið sem er búið að vera að gera að MR.M5 gaurnum? Hann má nú alveg við smá gríni eftir að koma hérna inn með morðhótanir í fyrsta innleggi og fylgja á eftir með mega bulli :lol:
Menn verða líka að passa sig að taka ekki smá saklausu gríni eitthvað alvarlega.

Author:  arnibjorn [ Fri 20. Mar 2009 13:11 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

Kristjan wrote:
arnibjorn wrote:
7. Kruder kemur með komment sem honum finnst ýkt sniðugt en er það í raun ekki.



Hvaða diss er þetta eiginlega?


Sorry lestu bara nr. 8... ég vildi bara vera með. Ætlaði ekki að vera leiðinlegur :lol:

Allt sagt í djóki.

Ps. Valli góður, þetta átti vel við!

Author:  Kristjan PGT [ Fri 20. Mar 2009 14:17 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

Vælubíllinn kom og fór :)

Þetta var nú meira meint sem bara svona vinsamleg ábending en eitthvað bögg.

Ég vil ekkert fara að draga fram einn og einn þráð og sérstaka spjallmeðlimi enda kannski ekkert til að bæta móralinn :)

Ég vildi bara benda á þetta þar sem ég er leikmaður og þekki nánast engann hérna persónulega og er því að ég held frekar hlutlaus :)

Author:  Kristjan PGT [ Fri 20. Mar 2009 14:18 ]
Post subject:  Re: Manni blöskrar

jeppakall wrote:
Djöfull geta sumir vælt hérna...eigum við kannski að banna húmor líka?

Ertu sonur konunnar sem finnst æfingasvæði fyrir aksturíþróttir sambærilegt við æfingasvæði fyrir nauðgara?



I rest my case :)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/