bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=35824
Page 1 of 1

Author:  íbbi_ [ Thu 19. Mar 2009 05:04 ]
Post subject:  alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

datt nú í hug að spurja hérna svona til að byrja með.

byrjaði nýlega (mánuður) að æfa aftur og taka aðeins í lóðin, var í þessu af nokkuri alvöru og nokkuð stæðilegur þangað til síðasta vetur þegar ég lenti í 7mánaðar veikindum sem gengu fljótt og öruglega frá fyrri árangri,

hefur reyndar gengið ágætlega bara að starta aftur, fyrir utan að ég var rúmmfastur í 2daga eftir að ég tók bakið fyrst :lol: en núna hinsvegar er farið að bera á pirring í annari höndini, ef ég rétti úr henni eða læt hana bara hanga þá fæ ég alveg gífurlega "teygju" í hendina sem er alveg frekar óþægilegt, ég er búinn að reyna teygja fram og til baka og hægri vinstri og allt það en þetta bara fer ekki,

það sem ég meina með að fá teygju í hendina er að ég fæ sömu tilfinningu og þegar maður er að teygja eftir æfingu, nema bara stöðugan og svo jú meðan ég er alls ekki að taka neitt á hendini eða teygja.

ætli þetta sé bara smá sjokk sem fer? eða ætti maður að láta kíkja á þetta :lol:

kv, íbbi

Author:  AntiTrust [ Thu 19. Mar 2009 05:33 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

Prófaðu að taka 1 - 2 daga í röð góðann tíma í sánanu.

Ég tók alveg heljarinnar prógram í fyrra og misþyrmdi líkamanum mínum (með ágætis árangri) en fékk svipuð einkenni bæði í olnbogabót, axlir og auðvitað gömlu góðu sinaskeiðabólguna.

Voltaren emulgel (fæst í næsta apóteki) reddaði úlnliðnum, Sounað lagaði talsvert af bæði öxlinni og olnboga, svo fór rest bara með heitum potti og smá hvíld.

Veit samt ekki hvort það er hægt að teygja á sinum eða vöðvafestingum, og hvort það sé tilfellið hjá þér? Hvaða vöðva/æfingu varstu að taka þegar þetta gerðist?

En sumsé, souna, voltaren GEL, ekki pillur, virka ekki jafnvel af minni reynslu og heitur pottur.. Svo er auðvitað alltaf bara að binda við hendina heitann bakstur eitthvað kvöldið ;)

Author:  íbbi_ [ Thu 19. Mar 2009 07:09 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

já kannast við sinaskeifubólguna og úlliðs ves, úlliðnir eru smá hakkaðir eftir nokkur ár í frystihúsinu :lol:

ég var að taka axlir síðast, en er reyndar búinn að vera flytja síðustu daga og ekki komist, hugsa að þessi verkur sé á 3ja degi núna,

var að gruna að þetta væri bara smá sjokk þar sem maður var búinn að hvíla í nokkra mánuði,

ég ætla taka þig á orðinu með pottin, er loksins kominn með heitapott 8)

Author:  Örvar A [ Thu 19. Mar 2009 07:42 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

Held að þú ættir að fara aðeins rólegra af stað :).

Er enginn sérfræðingur en hljómar svolítið eins og stærri vöðvar hafi ekki rýrnað eins mikið og minni vöðva. Þess vegna gæti verið að þú getir í rauninni tekið miklu meira á "litlu vöðvunum" og stuðningsvöðvunum heldur en þú ættir að geta. En það er bara kenning. Passaðu þig samt virkilega því að ef þetta er tognun getur þú verið frá í ákveðnum æfingum í langan tíma og ef það er framhandleggurinn þá eru nokkuð mikið af æfingum. Ef þetta er ekki farið á svona eftir 3-4 daga þá ættir þú að kíkja á doktorinn.

Author:  íbbi_ [ Thu 19. Mar 2009 07:46 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

þetta meikar reyndar alveg sens.. ég var einmitt töluvert betri en ég hélt þegar ég fór að reyna.. og byrjaði strax að hlaða ofan á.. munandi hvaða þyngdir maður var að taka einu sinni :oops:

þannig að eflaust get ég sjálfum mér um kennt..

Author:  Hlynur___ [ Thu 19. Mar 2009 13:16 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

ég fæ doða í báðar hendurnar ef ég teygji þær út, en það er samt útaf tognun í hálsi og baki

Author:  Kristjan PGT [ Thu 19. Mar 2009 13:21 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

Eru þetta ekki bara harðsperrur :P

P.s. No pain, no gain - Pain is only weakness leaving the body 8)

Author:  íbbi_ [ Thu 19. Mar 2009 18:43 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

hehe nei, ég er reyndar mjög hrifinn af pain-inu, þá finnst mér æfingin bara hafa virkað, þetta er hinsvegar no fun.

þetta er eflaust bara smá sjokk, ætla að sjá hvernig þetta verður og hvíli þessa vikuna bara, en er reyndar búinn að vera flytja alla dagana í staðinn

Author:  Stanky [ Mon 23. Mar 2009 16:24 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

Taka 2 vikur í léttum æfingum til þess að koma sér í gang.

Byrjar svo á prógrammi.

Miðað við það sem ég hef verið að lesa mig til um á netinu er best að gera það gjörsamlega upp við sig hvort maður sé að leita eftir styrk eða að tóna sig niður, gengur sjaldan bæði í einu.

Ekki nema þú viljir æfa eins og kona. 1 sett og 25 reps með 10kg í öllum tækjum :).

Author:  Kristjan PGT [ Mon 23. Mar 2009 16:50 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

Taka líka þá bara fætur og maga...menn taka aldrei nóg af því :)
Er þetta ekki bara klemmd taug?

Author:  íbbi_ [ Tue 24. Mar 2009 14:38 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

ég slakaði bara á í nokkra daga og drakk bjór í pottinum :santa: og þetta virðist vera farið :mrgreen:

ætlaði svo að kíkja og taka á því í dag, og var kominn yfir hellisheiðina þegar ég tók eftir því að íþróttataskan varð eftir fyrir austan :angel:

Author:  gretsky [ Thu 26. Mar 2009 22:56 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

Ég byrjaði fyrir ári síðan að vinna erfiðisvinnu eftir að hafa verið í skóla og léttri vinnu í um 6 ár. Ég fékk mjög svipaða tilfinningu og þú lýsir og var líka dofinn. Var með þetta alveg í mánuð! Spurning ef þú ert í "léttri vinnu" hvort þetta sé bara shock hjá líkamanum að fara taka almennilega á... Hjá mér lagaðist þetta bara af sjálfum sér á endanum.

Author:  íbbi_ [ Thu 26. Mar 2009 23:10 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

er vanur líkamlegri vinnu, og að vera æfa á fullu, er bara slappur eftir að hafa legið í veikindum. fór í gimið í dag og í gær og allt virðist vera í lagi :mrgreen:

Author:  krullih [ Sat 28. Mar 2009 01:15 ]
Post subject:  Re: alveg mjög O/T, líkamsræktardúddar endilega kíkja

Fara hægt og rólega af stað aftur - ég hef oft tamið mér það eftir stutt slugstímabil (2-6 vikur) að taka eina 30 min fá meðalþung reps á allan líkamann, finn oftast strax daginn eftir að allt er að taka við sér aftur. Þetta er auðvitað, eins og allt annað í þessu sporti mjög persónubundið.

Þumalputtareglan er auðvitað líka að hita vel upp, og teygja vel undir endann. Ætti að vera skilyrði m.v hvað margir karlmenn eru eins og spítukarlar.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/