Page 1 of 1

Valdi koppasali

PostPosted: Thu 12. Mar 2009 15:12
by bjornvil
Sælir félagar

Mig vantar tvo hjólkoppa á Ford Focus hjá mér. Ég get fengið þá á um 5000 kall hjá Brimborg.

Ég er að spá hvort það sé eitthvað vit í að renna við hjá Valda og athuga hvort hann eigi svona koppa til? Hvað er kallinn að selja stykkið á? Eru einhverja líkur á að hann eigi akkúrat eins koppa og ég er að leita að?

Ég hef aldrei komið við hjá honum, þannig að ég veit ekkert við hverju má búast. :?

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Thu 12. Mar 2009 15:50
by Svezel
bjornvil wrote:Sælir félagar

Mig vantar tvo hjólkoppa á Ford Focus hjá mér. Ég get fengið þá á um 5000 kall hjá Brimborg.

Ég er að spá hvort það sé eitthvað vit í að renna við hjá Valda og athuga hvort hann eigi svona koppa til? Hvað er kallinn að selja stykkið á? Eru einhverja líkur á að hann eigi akkúrat eins koppa og ég er að leita að?

Ég hef aldrei komið við hjá honum, þannig að ég veit ekkert við hverju má búast. :?


Það er alls ekki ólíklegt að hann eigi þetta til en taktu einhvern vin með þér sem bíður í bílnum ef þú ferð á Focusnum

Heyrði einu sinni sögu af manni sem fór til hans í leit að einhverju forlátum koppum sem hafði hafði gert dauðaleit að. Hann eltir Valda inn í skúr þar sem Valdi fer eitthvað á bakvið en kemur svo aftur með koppinn sem vantaði.

Maðurinn var hel sáttur með kaupin og smellir koppnum undir bílinn (bílstjóramegin) áður en hann keyrir heim. Svo þegar heim er komið röltir kappinn í kringum bílinn og sé þá að það vantar einn kopp farþegamegin.....nei hafði ekki Valdi karlinn labbað aftur fyrir skúrinn og að bílnum, hyrt einn kopp farþegamegin, fór aftur inn bakdyramegin og seldi kallinn einn eigin kopp :lol:

Guð má vita hversu mikið þessi saga hefur bjagast með tímanum, eða hvort hún er sönn til að byrja með, en sagan var góð :lol:

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Thu 12. Mar 2009 15:52
by Einarsss
hef einmitt heyrt þessa áður og hugsa að þetta sé bara bull en hver veit :lol:

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Thu 12. Mar 2009 16:05
by srr
Var Jens ekki að selja Focus felgur og koppa....eða var það 14" ?

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Thu 12. Mar 2009 16:15
by jens
Ég á enn sett af stálfelgum + nelgd vetrardekk + koppa á focus en 14"

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Thu 12. Mar 2009 16:30
by bjornvil
Takk fyrir þetta strákar :)

Jens, þetta eru 15" koppar sem mig vantar, takk samt.

Hugsa að ég taki þetta bara hjá Brimborg. Er þetta nokkuð svo slæmt verð? Um 2400 kall á koppinn?

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Thu 12. Mar 2009 16:33
by srr
bjornvil wrote:Takk fyrir þetta strákar :)

Jens, þetta eru 15" koppar sem mig vantar, takk samt.

Hugsa að ég taki þetta bara hjá Brimborg. Er þetta nokkuð svo slæmt verð? Um 2400 kall á koppinn?

Svipað verð og þú borgar fyrir aftermarket koppa í N1.

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Thu 12. Mar 2009 16:42
by gardara
Kíkti til Valda fyrir einhverju síðan, hann átti voða lítið af koppum undan nýjum bílum....
Annars eiga þeir í vöku eitthvað af koppum.

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Thu 12. Mar 2009 17:51
by Hlynur___
ég hef líka heyrt að hann láti eitthvern annan losa hjólkoppana á meðan að viðskiptavinurinn er inni í koppasöluni og svo hafi hann rölt eftir veginum til þess að pikka upp þá sem duttu af :lol:

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Thu 12. Mar 2009 18:52
by Nonni
Ég á einmitt Ford Focus. Mig vantaði 3koppa á bíllinn hjá mér en Valdi var reyndar um 20mín að leita að þeim en á endanum fann hann þá lengst á bakvið í skúrnum sínum og ef ég man rétt borgaði ég 2000kr fyrir þá alla. Þeir voru ekki 100% en allt í lagi.

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Fri 13. Mar 2009 09:11
by ValliFudd
Ég sagði einum hér uppí vinnu söguna af honum að selja manni mans eigin kopp. Hann var búinn að heyra hana, fyrir allavega svona 25 árum sagði hann :lol:

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Fri 19. Jun 2009 11:59
by Djofullinn
Hvar er Valdi koppasali til húsa? Er hann ekki einhversstaðar hjá Rauðavatni?

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Fri 19. Jun 2009 12:27
by Aron Andrew
Djofullinn wrote:Hvar er Valdi koppasali til húsa? Er hann ekki einhversstaðar hjá Rauðavatni?


Aðeins lengra, rétt hjá afleggjaranum að Nesjavöllum/Hafravatni

Re: Valdi koppasali

PostPosted: Fri 19. Jun 2009 23:52
by ///MR HUNG
bjornvil wrote:Takk fyrir þetta strákar :)

Jens, þetta eru 15" koppar sem mig vantar, takk samt.

Hugsa að ég taki þetta bara hjá Brimborg. Er þetta nokkuð svo slæmt verð? Um 2400 kall á koppinn?
mundi nú ekki nenna að pæla í þessu fyrir ekki meiri pening en þetta og það úr umboði.