bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=35432 |
Page 1 of 1 |
Author: | bebecar [ Tue 03. Mar 2009 15:34 ] |
Post subject: | Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga |
Mæli með að fólk tékki aðeins á umræðunni hér... (í kommentum við framboðs tilkynningu) http://helgasigrun.blog.is/blog/helgasigrun/entry/813503/ Það er kannski ekki vitlaust að þrýsta á um einhverjar úrbætur í málefnum akstursíþrótta núna þegar stutt er til kosninga. Hér er svo fréttin sjálf... http://www.dv.is/frettir/2009/3/3/velhjolamenn-hafa-ekki-fyrirgefid-helgu/ Það má geta þess að á fjárlögum fyrir 2007 átti að veita 418 milljónum í ýmis konar íþróttastarf, nema auðvitað akstursíþróttir. 484 milljónir fyrir 2008... allt gott og blessað með það en ekki króna í akstursíþróttir. Skákíþróttin fær t.d. 44 milljónir sem auðvitað er í góðu lagi og á að vera - það er bara ótrúlegt að ekki sé króna í uppbyggingu á akstursmannvirkjum. Hvorki fyrir bíla, götuhjól, mótorkross né go-kart. Árið 2008 áttu 1180 milljónir að fara í íþróttamannvirki Reykjavíkur, þar af 790 milljónir í gervigrasvelli og viljið þið giska hve mikið fór í stuðning við akstursíþróttir? Tölurnar fyrir önnur bæjarfélög eru svipaðar að teknu tilliti til stærðar hlutfalla og á sama tíma fær kvartmílubrautin 400 þúsund frá Hafnarfirði til að reka brautina.... |
Author: | Aron Andrew [ Tue 03. Mar 2009 15:41 ] |
Post subject: | Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga |
Það er umræða um þetta í mótorsportinu, eigum við ekki að hafa þetta bara á öðrum hvorum staðnum svo menn þurfi ekki að fletta á milli ![]() |
Author: | bebecar [ Tue 03. Mar 2009 15:51 ] |
Post subject: | Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga |
Aron Andrew wrote: Það er umræða um þetta í mótorsportinu, eigum við ekki að hafa þetta bara á öðrum hvorum staðnum svo menn þurfi ekki að fletta á milli ![]() Jú, mér datt bara í hug að fleiri færu hér inn.... ![]() |
Author: | ValliFudd [ Tue 03. Mar 2009 16:06 ] |
Post subject: | Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga |
Þetta var mikið rætt á bíla/mótorhjólaspjallsíðunum fyrir 2 árum eða svo.. Þá var Ragnheiður forvarnarfulltrúi Vís að bakka þetta upp á fullu. Þær tvær eru rosalegar... En ég held að hún eigi eftir að kosta framsókn haug af atkvæðum. Og ekki voru þau mörg fyrir.. |
Author: | bimmer [ Tue 03. Mar 2009 16:57 ] |
Post subject: | Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga |
Hver kýs Framsókn???? ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Tue 03. Mar 2009 16:58 ] |
Post subject: | Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga |
bimmer wrote: Hver kýr Framsókn???? ![]() |
Author: | bebecar [ Tue 03. Mar 2009 17:03 ] |
Post subject: | Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga |
Ég held þetta sé bara meira spurning um afhverju eru þrýstingur frá akstursíþrótta hópum ekki til? Ekki það að það verði margt um fína drætti á næstu árum í fjárútlátum frá ríki - en það má nú kannski krefjast einhvers réttlætis í þessum málum.... |
Author: | SteiniDJ [ Tue 03. Mar 2009 18:10 ] |
Post subject: | Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga |
Ég hef aldrei ætlað mér að kjósa framsókn, en sá örsmái vonarneisti sem þeir höfðu er algjörlega dauður f. mér. ![]() |
Author: | Bjarkih [ Tue 03. Mar 2009 21:04 ] |
Post subject: | Re: Umræða um aksturssvæði - vegna komandi kosninga |
ValliFudd wrote: Þetta var mikið rætt á bíla/mótorhjólaspjallsíðunum fyrir 2 árum eða svo.. Þá var Ragnheiður forvarnarfulltrúi Vís að bakka þetta upp á fullu. Þær tvær eru rosalegar... En ég held að hún eigi eftir að kosta framsókn haug af atkvæðum. Og ekki voru þau mörg fyrir.. Það er nú BARA kostur ef framsókn tapar atkvæðum. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |