Mæli með að fólk tékki aðeins á umræðunni hér... (í kommentum við framboðs tilkynningu)
http://helgasigrun.blog.is/blog/helgasigrun/entry/813503/Það er kannski ekki vitlaust að þrýsta á um einhverjar úrbætur í málefnum akstursíþrótta núna þegar stutt er til kosninga.
Hér er svo fréttin sjálf...
http://www.dv.is/frettir/2009/3/3/velhjolamenn-hafa-ekki-fyrirgefid-helgu/Það má geta þess að á fjárlögum fyrir 2007 átti að veita 418 milljónum í ýmis konar íþróttastarf, nema auðvitað akstursíþróttir. 484 milljónir fyrir 2008... allt gott og blessað með það en ekki króna í akstursíþróttir. Skákíþróttin fær t.d. 44 milljónir sem auðvitað er í góðu lagi og á að vera - það er bara ótrúlegt að ekki sé króna í uppbyggingu á akstursmannvirkjum. Hvorki fyrir bíla, götuhjól, mótorkross né go-kart.
Árið 2008 áttu 1180 milljónir að fara í íþróttamannvirki Reykjavíkur, þar af 790 milljónir í gervigrasvelli og viljið þið giska hve mikið fór í stuðning við akstursíþróttir? Tölurnar fyrir önnur bæjarfélög eru svipaðar að teknu tilliti til stærðar hlutfalla og á sama tíma fær kvartmílubrautin 400 þúsund frá Hafnarfirði til að reka brautina....