flytja inn áfengi

Posted:
Fri 27. Feb 2009 12:56
by Astijons
má ég flytja inn áfengi fyrir sjálfan mig?
kellingabjór sem mér finnst of góður fyrir lífið...
Re: flytja inn áfengi

Posted:
Fri 27. Feb 2009 13:56
by 20"Tommi
Sendingar kostaður + áfengisgjald +VSK+ tollskýslugerð $$$$$$$
Re: flytja inn áfengi

Posted:
Fri 27. Feb 2009 14:42
by Astijons
okey ég er buinn að vera lesa tollur.is og reglugerðir og eitthvað
HVERNIG ER ÞETTA ÁFENGISGJALD EIGINLEGA HÁTTAÐ?!
Skilur þetta einhver eða?
Re: flytja inn áfengi

Posted:
Fri 27. Feb 2009 14:46
by Astijons
fann það
Áfengisgjald skal vera sem hér segir á hvern sentilítra af vínanda í hverjum lítra hins áfenga drykkjar samkvæmt flokkun hans í tollskrá:
1. 58,70 kr. á hvern sentílítra umfram 2,25 sentílítra af öli sem flokkast í vörulið 2203, svo og af vörum sem innihalda blöndur af öli og óáfengum drykk og flokkast í vörulið 2206.
2. 52,80 kr. á hvern sentílítra umfram 2,25 sentílítra af eftirtöldum vörum, enda sé varan að hámarki 15% að styrkleika og innihaldi eingöngu vínanda sem myndast hefur við gerjun, án hvers kyns eimingar:
a. víni sem flokkast í vöruliði 2204 og 2205.
b. gerjuðum drykkjarvörum sem flokkast í vörulið 2206, annað hvort óblönduðum eða þynntum með sams konar óáfengri drykkjarvöru og er að finna í hinni íblönduðu drykkjarvöru (t.d. cider).
3. [70,78 kr.]1) á hvern sentílítra af öðru áfengi.
(2) Gjald skv. 1. mgr. skal reiknast hlutfallslega á brot af sentílítra af vínanda, reiknað með tveimur aukastöfum, og brot af lítra hins áfenga drykkjar.
(3) Ef umbúðir vöru greina ekki magn eða styrkleika áfengis sem aðilar sem tilgreindir eru í 2. mgr. 2. gr. flytja til landsins eða fá sent erlendis frá er tollyfirvöldum heimilt að meta magn eða styrkleika áfengis og ákvarða gjald samkvæmt því.
sem sagt...
60kr á sentilíter?
Re: flytja inn áfengi

Posted:
Fri 27. Feb 2009 14:46
by arnibjorn
Astijons wrote:okey ég er buinn að vera lesa tollur.is og reglugerðir og eitthvað
HVERNIG ER ÞETTA ÁFENGISGJALD EIGINLEGA HÁTTAÐ?!
Skilur þetta einhver eða?
http://www.tollur.isÞarna til hægri stendur "Svarbox". Farðu í það og þá geturu bara spjallað við þjónustufulltrúa, bara eins og msn spjall. Mjög sniðugt, mikið notað hérna uppí vinnu ef manni vantar svör frá tollinum

Re: flytja inn áfengi

Posted:
Fri 27. Feb 2009 14:50
by Astijons
uje nice... ég fattaði ekki að klukkan væri bara 3:D