bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

frjálslyndi flokkurin.. WTF?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=35135
Page 1 of 2

Author:  íbbi_ [ Thu 19. Feb 2009 18:38 ]
Post subject:  frjálslyndi flokkurin.. WTF?

ég rakst á grein um það í blaðinu um daginn að einn af þingmönnum frjálslindaflokksins starfar sem miðill, og það ekki bara miðill heldur teiknimiðill sem eins og mennskur prentari prentar skilaboð að handan,

ég sá svo ekki betur en að þessi s ama skonsa væri að tjá sig á þinginu í gær um að eitt mikilvægasta atriðið í uppbygginguni sé að passa upp á kynjakvótan,

hmm..

hmmmm.....

hmmmmmmmmm??????

er það bara ég, eða er þetta jafn fáránlega til skammar og mér finnst það?

sturla vörubílstjóri er btw á lista þessa flokks í næstu kosningum :wink:

Author:  Vargur [ Thu 19. Feb 2009 19:18 ]
Post subject: 

Það er vonandi að þetta lið komist aldrei til áhrifa.
Því miður er kominn annar eins vitleysingur í hóp æðstu ráðamanna þjóðarinnar, Kolbrún Halldórsdóttir

Author:  IvanAnders [ Thu 19. Feb 2009 19:32 ]
Post subject: 

Engar áhyggjur, Íslendingar munu kjósa yfir sig sjálfstæðisflokkinn eins og alltaf!!

Author:  Kristjan [ Thu 19. Feb 2009 19:39 ]
Post subject: 

Ég las einhverntíman að Frjálslyndi flokkurinn væri gegn stofnfrumurannsóknum og þar sem tveir bræður mínir eru með mænuskaða þá er það ekki beint til að hækka álit mitt á þeim.

Author:  Alpina [ Thu 19. Feb 2009 19:53 ]
Post subject: 

Vargur wrote:
Það er vonandi að þetta lið komist aldrei til áhrifa.
Því miður er kominn annar eins vitleysingur í hóp æðstu ráðamanna þjóðarinnar, Kolbrún Halldórsdóttir


:shock:

Author:  bimmer [ Thu 19. Feb 2009 20:00 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Vargur wrote:
Það er vonandi að þetta lið komist aldrei til áhrifa.
Því miður er kominn annar eins vitleysingur í hóp æðstu ráðamanna þjóðarinnar, Kolbrún Halldórsdóttir


:shock:


Af hverju :shock:

Author:  Alpina [ Thu 19. Feb 2009 20:05 ]
Post subject: 

Tiltölulega sterkt til orða tekið

Author:  Vargur [ Thu 19. Feb 2009 20:51 ]
Post subject: 

Kolbrún Halldórs vill banna flest sem þykir skemmtileg. Hún vill ekki leyfa okkur að horfa á bert kvenfólk í hvaða formi sem það kemur, td á netinu, í tímaritum, á skemmtistað osf og hún lýst áhuga sínum á að allir bílar fái hraðatakmarkara.

Author:  Alpina [ Thu 19. Feb 2009 21:26 ]
Post subject: 

Vargur wrote:
Kolbrún Halldórs vill banna flest sem þykir skemmtileg. Hún vill ekki leyfa okkur að horfa á bert kvenfólk í hvaða formi sem það kemur, td á netinu, í tímaritum, á skemmtistað osf og hún lýst áhuga sínum á að allir bílar fái hraðatakmarkara.



:P :P


grunar að það sé ...öðruvísi hugsun hjá henni


ps....... er hún með manni :shock:

Author:  Astijons [ Thu 19. Feb 2009 21:33 ]
Post subject: 

haha smá oftopic
banna berar konur...
minnir mig á jay leno þátt sem ég sá...

þá var hann ræða um konu sem var í sexy fötum á hafnarboltaleik ... (ekki á túttunum bara svoldið flott sást í skoruna og svona)
og hun var beðin um að fara útaf blygðunarkennd hefði verið særð :P

og þá sagði jay leno...

en svo er 140 kg feiti ber að ofan gaurinn látin vera?!?!

Author:  siggir [ Thu 19. Feb 2009 21:49 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Vargur wrote:
Kolbrún Halldórs vill banna flest sem þykir skemmtileg. Hún vill ekki leyfa okkur að horfa á bert kvenfólk í hvaða formi sem það kemur, td á netinu, í tímaritum, á skemmtistað osf og hún lýst áhuga sínum á að allir bílar fái hraðatakmarkara.



:P :P


grunar að það sé ...öðruvísi hugsun hjá henni


ps....... er hún með manni :shock:


Já..

Ágúst Pétursson, kennari og eiga þau saman tvö börn.

Honum er mikil vorkunn

Author:  íbbi_ [ Thu 19. Feb 2009 22:06 ]
Post subject: 

verkfæðingur sem var að kenna mér í dag sagði mér sögu af því þegar hann og einhverjir starfsmenn orkuveitunar hafi verið að laga einhver streng sem fór í sundur í skyndi, það var hávetur og hörkufrost, þannig að þeir voru með flokkabílinn í gangi, svo mennirnir gætu hlýjað sér inn á milli í smá stund,

þá kom kona hlaupandi alveg brjáluð yfir því að þeir væru að láta einhvern sendibíl ganga lausagang og menga umghverfið og lalala og blablabla, þetta var fyrir 15árum rúmum,

þessi kona er þessi umræddur ráðherra vinstri grænna, það verður nú aldeilis til að halda áfram þessari úberdrama nauðlendingu þjóðabúsins og geðheilsu gjaldþrota þegnana að fá einhverja veruleikafyrrtar feminista fasistadollur, konu sem talar við drauga, og umdeildan vörubílstjora, sóley tómasar og feminazistarnir ganga berserksgang í gegnum einhverjar nýtilkomnar valdastöður,

og maður hefur um þetta að velja, eða gömlu ríkistjórnina sem sem stýrði landindu í risavaxnasta gjaldþrot íslandsögunar, og leika nú einhver mega fórnarlömb,

á hinn bóginn er hinsvegar ákaflega forvitnilegt að sjá hvað í andskotanum kemur eiginlega til með að koma útúr þessu öllu saman, en það er svo ekkert forvitnilegt að fara í gegnum þetta,

Author:  Alpina [ Thu 19. Feb 2009 22:24 ]
Post subject: 

Ívar ... þetta var skrítið orðalag

:lol: :lol: :lol:

Author:  adler [ Thu 19. Feb 2009 23:37 ]
Post subject: 

IvanAnders wrote:
Engar áhyggjur, Íslendingar munu kjósa yfir sig sjálfstæðisflokkinn eins og alltaf!!


Quote:
Þetta er opinberun Jóhannesar Georgs, sem réttu nafni heitir Johanes George Lee og er skoskur sjáandi sem hefur séð
marga atburði fyrir, t.d. forsetakjör Obama, skógareldana í Ástralíu, og
efnahagshrunið á Íslandi.



Hér á eftir er lausleg þýðing úr ensku á sýn hans á framtíð Íslands á næstu
árum.





2009: Forsætisráðherra nýju ríkisstjórnarinnar, Jóhanna, er heiðarleg og dugleg, en
því miður fær ríkkistjórn hennar fáu áorkað til góðs. Orsök þess er mikil
ringulreið og óeining í þinginu og stjórnkerfinu. Fátt gengur í haginn. Það
tekst að koma Davíð úr Seðlabankanum og skipa einn Seðlabankastjóra, en það
breytir litlu um efnahagsöngþveitið. Atvinnuleysi eykst, fólk missir eignir
sínar. Þúsundir fólks flytja úr landi á þessu ári, mest til Noregs og Kanada, en
einnig til fleiri landa.



Seinast í Apríl verða kosningar til þings. Nokkur ný framboð taka þátt í kosningum, en ekkert þeirra fær mann á þing, heldur taka þau
fylgi frá Samfylkingu og Vinstri grænum. Framsóknarflokkurinn vinnur góðan
kosningasigur og Sjálfstæðisflokkurinn fær frekar slaka útkomu. Þessir flokkar
fá nauman meirihluta saman, og mynda ríkisstjórn að loknum kosningum, við lítinn
fögnuð þjóðarinnar.
Verðbólga minnkar á fyrri hluta ársins, en stígur í yfir 30%
í árslok 2009.



2010: Skelfilegt ár. Ríkisstjórn sjálfstæðis/Framsóknar, umsnýr öllu sem fyrri
ríkisstjórnin gerði. Allar stöður eru pólitíkst skipaðar samkv.
helmingaskiptareglu flokkanna. Verðbólga nær 50% Eini atvinnuvegurinn sem
blómgast sem aldrei fyrr er dópsala. Atvinnuleysi nálgast 20%. Glæpaalda gengur
yfir höfuðborgarsvæðið. 20.000 manns flytja úr landi, aðallega af
höfuðborgarsvæðinu. Samt er ástandið betra í sumum landshlutum, þar er þokkalegt
atvinnustig, og minni glæpir og eiturlyf. Dæmi um slíka staði eru:
Vestmannaeyjar, Hornafjörður, Dalabyggð. Snæfellsnes, Vopnafjörður. Fólk sækir á
alla þessa staði úr eymdinni og glæpunum á Höfuðborgarsvæðinu. Hjónaskilnaðir
slá öll met.



2011: Miklar óeirðir í landinu. Byggingar og jafnvel heilu hverfin brennd í þessum
óeirðum. Lögreglan ræður ekki við neitt, þótt hún sé nú öll búin skotvopnum.
Útgöngubann í Reykjavík. Atvinnuleysi og þjóðargjaldþrot blasir við.
Ríkisstjórnin er óstarfhæf. Daglegir götubardagar á seinni hluta ársins. Fengin
óeirðalögregla búin vopnum frá Danmörku til að stilla til friðar, en það hjálpar
lítið. 20.000 manns flytja úr landi.



2012: Olíuleit norðaustan við Ísland. Miklar vonir bundnar við hana. Annars flest í
ólesti. Vopnuð átök í Reykjavík. Jarðskjálfti gengur yfir Selfoss og Hveragerði
og veldur miklum skemmdum. 25.000 flytja úr landi.



2013: Niðurstöður olíuleitar valda vonbrigðum. Ekki hagkvæmt að vinna olíu, amk. miðað við nútíma tækni. Ísland er endanlega lýst gjaldþrota. Evran kostar
2000 krónur. 150% verðbólga. 20.000 flytja úr landi.



2014: Ísland óskar eftir aðild að Evrópusambandinu EU. En þessari umsókn er hafnað í
Brussel. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur við stjórn landsins, ríkisstjórn og
forseti eru rekin úr störfum, og þingið leyst upp. Í lok ársins, taka Bandaríki
Norður Ameríku USA. Við stjórn Íslands í umboði Alþjóðabankans. Obama forseti
USA, er á þessum tíma kominn á kjörtímabil nr. 2. Það gekk vel að komast út ur
kreppunni í USA. Staða Íslands undir stjórn USA, verður svipuð og staða Puerto
Rico. Sem sagt öll stjórn frá Whasington, en bæjar og sveitarstjórnum verður
leyft að starfa, undir ströngu eftirliti.



Á þessum tíma er íbúafjöldi Reykjavíkur um 50.000, og alls landsins um 200.000 í stað 320.000, árið 2008. Þriðjungur þjóðarinnar er
fluttur úr landi

Author:  Stanky [ Thu 19. Feb 2009 23:58 ]
Post subject: 

Er hann kannski prentmiðill?

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/