bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Nissan skyline í smá breytingum. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=34989 |
Page 1 of 3 |
Author: | Spoofus [ Sat 14. Feb 2009 00:49 ] |
Post subject: | Nissan skyline í smá breytingum. |
Fyrir þá sem lesa ekki aðra spjallþræði Þetta er 1997 árgerð af Nissan skyline R33 spec 2 type M í þessari sjálfhliðarrennireið er mótor sem heitir RB25DET og er hangandi utaná honum Holset HX 35 túrbína sem er upplunalega úr 2004 árgerð af Dodge Ram dísel pickup. Það sem búið er að gera við þennan bíl er eftirfarandi. Fjöðrun: Stífur frá Tein, Orginal struttar frá Nissan bæði frammí og afturí, HKS coilover kerfi sem er stillanlegt bæði á hæð og stífleika. Boddí: Boddíið er að öllu leiti original nema það að ég tók 2 kg úr stuðaranum til að koma front mount intercooler fyrir. Vél: Vélin er 2500cc línu 6. Original með T28 túrbínu var vélin að skila frá framleiðanda 255 hp. Nú er komin stærri túrbína, Sérsmíðaðar flækjur, kevlar tímareim fá Nismo, Vatnsdæla frá Nismo, Front mount intercooler. Calsonic (sem er Nissan tuner í japan) Vatnskassi, Tial 38 mm wastegate og Vems standalone tölva sem gefur mér gríðarlega möguleika í að stjórna núverandi og framtíðar íhlutum vélarinnar. Það sem er i vinnslu þessa stundina er soggrein og downpipe frá túrbínu. Öryggisbúnaður. Ég er enþá með orginal stóla, belti, stýri og ekkert búr. Breyting verður líklegast á þessu eftir næsta sumar ef vel gengur. Ég treysti mér ekki til að gefa upp framtíðar hestaflatölu núna því ég veit í raun og veru ekki hvernig þetta verður þegar bíllinn fer í gang aftur. Hér á eftir læt ég fylgja nokkrar myndir úr ferlinu á frá því ég byrjaði að breyta og hvernig hann er í dag. ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Gamla skítuga og nýja bling bling ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Túrbínan komin í eftir mjög mikið af blóði svita og tári. ![]() Soggreinin komin í tölvutækt ![]() Bara að ýta á enter. Fór og gíraði og græjaði í morgun. Soggreinin var tekin fyrir í dag og ég kláraði botnplötuna og var búinn að saga allt efni niður í þessa grein. ![]() Hér er botnplatan á tölvutæku með rönnerum í. Fyrir nokkru síðan reif ég gömlu af ![]() ![]() ![]() Og bjó til þetta snilldar mót. ![]() Í morgun byrjaði ég svo á botnplötunni. ![]() Ýtti á enter og þá fór allt að gerast. ![]() Stage one complete ![]() Stage two it´s a go! ![]() Farin að koma mynd á þetta. ![]() Platan tilbúin undir Rönnera. ![]() Prestó! Platan tilbúin til að fara í suðu á mánudaginn og sjóða lokið á svo ég geti farið að klára dæmið. Ætla að smíða eitthvað sniðugt á morgun líka. |
Author: | bimmer [ Sat 14. Feb 2009 00:53 ] |
Post subject: | |
Megaflott!!!! Edgecam að gera góða hluti ![]() |
Author: | Spoofus [ Sat 14. Feb 2009 00:56 ] |
Post subject: | |
Ég teikna módelin í Autodesk Inventor. Edgecamið er bara til að vinna út kóða svo að vélarnar skilji mig. |
Author: | MR.BOOM [ Sat 14. Feb 2009 00:58 ] |
Post subject: | |
Bara svalt hjá þér Siggi.. ![]() |
Author: | bimmer [ Sat 14. Feb 2009 00:58 ] |
Post subject: | |
Spoofus wrote: Ég teikna módelin í Autodesk Inventor. Edgecamið er bara til að vinna út kóða svo að vélarnar skilji mig.
Er vel með á því - var að selja þetta dót ![]() |
Author: | Dóri- [ Sat 14. Feb 2009 00:59 ] |
Post subject: | |
bara töff! hvað ertu lengi að smíða svona eldgrein ? |
Author: | Spoofus [ Sat 14. Feb 2009 01:01 ] |
Post subject: | |
Mjög einfalt svar......... Lengi! |
Author: | Dóri- [ Sat 14. Feb 2009 01:02 ] |
Post subject: | |
Spoofus wrote: Mjög einfalt svar......... Lengi!
hehe þetta lítur alveg þokkalega vel út líka, verður gaman að sjá þennann í sumar ![]() |
Author: | IvanAnders [ Sat 14. Feb 2009 01:54 ] |
Post subject: | |
Hrikalega flott hjá þér! ![]() En já, þrátt fyrir að eldgreinin sé mega flott, að þá lítur þetta út fyrir að vera eitthvað sem mann langar ekki að rukka fyrir ![]() |
Author: | bebecar [ Sat 14. Feb 2009 02:05 ] |
Post subject: | |
Ég hef ekki hundsvit á því hvað var í gangi þarna en er samt impressed ![]() |
Author: | Axel Jóhann [ Sat 14. Feb 2009 04:57 ] |
Post subject: | |
Einstaklega flott smíði hjá þér! Þú ert væntanlega rennismiður? ![]() |
Author: | birkire [ Sat 14. Feb 2009 06:30 ] |
Post subject: | |
Góður, fantasmíði á greininni.. bara flott hjá þér að gera þetta sjálfur ! Bíllinn lofar líka góðu, vinur minn á svona svartann og þetta eru rosalegir bílar. |
Author: | Birkir [ Sat 14. Feb 2009 10:12 ] |
Post subject: | |
já sæll, flott vinna þarna á ferðinni. |
Author: | Mánisnær [ Sat 14. Feb 2009 11:29 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Ég hef ekki hundsvit á því hvað var í gangi þarna en er samt impressed
![]() Sama hér, þetta er töffstöff |
Author: | íbbi_ [ Sat 14. Feb 2009 11:52 ] |
Post subject: | |
ég er bókstaflega stunned yfir smíðini hjá þér, og mér hefur alltaf þótt þetta fallegasti skyline-inn sem hefur komið hingað heim, ertu að smíða sofggreinina eftr einhverri sem er þegar til, eða er þetta algjörlega custom? ef ekki eru einhverjar dýpri pælingar á bakvið hönnunina? mega props fra mér! |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |