Page 1 of 2

Fyrir bebecar

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 02:26
by ///MR HUNG

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 12:17
by Hlynzi
Það ætti að sekta þennan, hann lýtur út fyrir að vera á 250 km/klst hraða.

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 12:17
by bebecar
Takk fyrir þetta, mjög gaman að sjá þetta - mjög seventies! Verst að ég fékk ekkert hljóð á þetta, ég ætla að prófa að "endurræsa" og sjá hvort ég nái ekki hljóði.

PS, nokkuð svöl þessi sjöa...

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 18:37
by Logi
Snilld, vantar bara 323i. Og smá vélarhljóð hefðu nú verið í lagi líka!

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 19:31
by Jss
Mjög gaman að sjá þetta, sammála með vöntun á vélarhljóði

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 20:33
by Djofullinn
Snilld! Hehehe þvílík klámmyndatónlist :D

Við ættum kannski bara að gera svona video af okkar bílum bebecar!

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 21:17
by bebecar
Engin spurning - ég er til!

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 21:26
by Djofullinn
Næsta sumar bara :D

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 21:32
by bebecar
Já, það er ekki mikið hægt að keyra þetta á nelgdum vetrardekkjum - :cry: Ég reyni að hreyfa hann bara sem minnst.

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 21:58
by Svezel
Manni dauðlangar til að taka í svona tæki eftir að hafa séð þetta. Greinilgt að áherslurnar hafa breyst í gegnum tíðina

En bebecar hvar ertu að gera á nöglum, sá svarni óvinur þeirra :?

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 22:10
by bebecar
það er nú löng saga að segja frá því....

Í stuttu máli sagt, þá er ég afskaplega mótfallin þessu en lenti líka í því síðasta vetur þegar ég var nýkominn á hann að komast ekki úr stæðinu heima og sömuleiðis hélt hann ekki ferð upp brekkur. Það var reyndar á sumardekkjum en viðbrigðin voru svo mikil af M5 bílnum að ég hreinlega þorði ekki að hafa hann á ónelgdu sérstaklega ekki þar sem mér tókst ekki að redda læsingu fyrir veturinn.

Svo er það nú þannig að ég er minnst á bílnum þar sem konan mín er heima og ég geng oftast í vinnuna, hún þarf að snattast með tvo krakka og ég veit ekki hvort ég gæti hangið á honum ef hún myndi stoppa alla umferð einhversstaðar á hálkublett. Ég þarf að koma mér í mjúkinn líka svo ég geti splæst á mótorhjól í sumar...

Reyndar gat ég aðeins spreytt mig á honum um daginn, þannig að ef þetta verður ekkert mál þá pilla ég bara naglana úr - er hvort eð er byrjaður að spæna þetta úr með gjöfinni :wink:

Þú ættir bara að kíkja á mig einhverntímann, mig langar að sjá Clioinn líka...

Ertu á svarta eða vínrauða, ég gleymi því alltaf? Þori aldrei að heilsa þegar ég tel mig sjá þennan bíl (svo er nú ekkert auðvelt að spotta þessa bíla í fljótheitum).

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 22:18
by bjahja
bebecar wrote:Ertu á svarta eða vínrauða, ég gleymi því alltaf? Þori aldrei að heilsa þegar ég tel mig sjá þennan bíl (svo er nú ekkert auðvelt að spotta þessa bíla í fljótheitum).

Hann er á vínrauða....................xenon ljósin gera það auðvelt að þekkja hann :wink:

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 22:18
by Svezel
Bara whipped :whip:

Nei nei bara smá spaug. Já þeir geta hjálpað til stundum á mjög afturléttum bílum. Samt var nú vinur minn mikið á gömlum 740 Volvo og hann var ansi spaugilegur á veturna en aldrei fór hann á nagla og komst allt.

Já ég er á þessum rauða, svo þekkjumst við 172 menn strax á Xenon ljósunum. Ég hef reyndar bara aldrei séð þinn á ferðinni en það væri gaman að fá að skoða og kannski fá að sitja í einn hring.

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 22:22
by bebecar
Sama segi ég :wink:

Ja, maður er nú vel giftur... ekki margar konur sem fara af M5 með þyngstu kúplingu sem ég hef komist í í E21 með þyngsta stýrið! :lol:

PostPosted: Sun 23. Nov 2003 22:27
by Svezel
He he, ég er enn að leita að draumkonunni sem skilur bíladellu...eða a.m.k. getur búið við hana :lol:

En já við verðum bara að fara á stefnumót...svona bílastefnumót :D