Page 1 of 1

Ljósleiðari hjá gagnaveitunni?

PostPosted: Mon 12. Jan 2009 00:06
by Kristjan
Er einhver hérna með svona og hvað er þetta að kosta.

Ég er að pæla í þessu fyrir Tengdapabba, hann er með ADSL hjá Vodafone og ég var að pæla hvort það væri hagstæðara að vera með Ljósleiðara, eða er aðgangurinn að ljósleiðaranum + internetþjónustan miklu dýrara en bara einfaldlega adsl?

PostPosted: Mon 12. Jan 2009 00:12
by Jónas Helgi
Félagi minn var að fá 30Mb/s ljósleiðara hjá Vodafone, hann var með 8Mb/s held ég.
Það hringdi einhver kona í hann bara frá þjónustuverinu og spurði hann hvort hann vildi skipta, það væri ódýrara á mánuði fyrir hann og það munaði einhverjum 1000-1500Kr :)

PostPosted: Mon 12. Jan 2009 00:18
by Kristjan
Astro wrote:Félagi minn var að fá 30Mb/s ljósleiðara hjá Vodafone, hann var með 8Mb/s held ég.
Það hringdi einhver kona í hann bara frá þjónustuverinu og spurði hann hvort hann vildi skipta, það væri ódýrara á mánuði fyrir hann og það munaði einhverjum 1000-1500Kr :)


Já er það ekki bara, ég fór að skipta mér að þessu því að hann er í Laugarnesinu með tengibúnaðinn fyrir ljósleiðara í kjallaranum og er ekkert að nota þetta.

Svo er hann með svo gamlan router að það er varla hægt að surfa neitt að ráði ef það eru margar tölvur tengdar. :wink:

PostPosted: Mon 12. Jan 2009 00:35
by Steini B
Var einmitt að furða mig á þessu um daginn...
Hérna fyrir norðan get ég fengið 30mb tengingu og 60gb erlent niðurhal á 5400kr. í gegnum ljósleiðaratengingu
Á móti 8mb og 40gb niðurhal á 6200kr. frá símanum

PostPosted: Mon 12. Jan 2009 13:28
by gardara
Ath, það þarf að borga gjald til gagnaveitunnar fyrir notkun á ljósleiðaranum, hvort sem það er sjónvarp eða net...
Það gjald er 2390kr á mánuði og leggst ofan á það sem keypt er... s.s. 20mbit ljósleiðaratenging frá tal er 6390 + 2390 = 8780 kr á mánuði....

PostPosted: Mon 12. Jan 2009 14:14
by Berteh
Ég er með gull hjá vodafone og 50Mbit teng á 3190 á mánuði

sjá http://www.vodafone.is/internet/ljosleidari

En þetta lækkaði annars símreikningin um 2-4þús hjá mér á mánuði að færa mig á ljósið með sjónvarp/net/síma

PostPosted: Mon 12. Jan 2009 14:16
by moog
Ef hann er með allt hjá vodafone þá getur hann farið í Gull þjónustuna, þá er það gjaldið til GR (2390 kr.) + Vodafone áskrift 3190 kr. eða 4190 kr. (fer eftir gagnamagni) á mánuðir fyrir 50mbit ljós.

PostPosted: Mon 12. Jan 2009 14:42
by gunnar
Hvernig veit maður hvort það se buið að grafa fyrir ljosi hja ser? Og hvað hverjum getur maður athugað það?

PostPosted: Mon 12. Jan 2009 14:48
by _Halli_
gunnar wrote:Hvernig veit maður hvort það se buið að grafa fyrir ljosi hja ser? Og hvað hverjum getur maður athugað það?


http://gagnaveita.is/

Það er hérna hægra megin á síðunni

PostPosted: Mon 12. Jan 2009 15:02
by gunnar
_Halli_ wrote:
gunnar wrote:Hvernig veit maður hvort það se buið að grafa fyrir ljosi hja ser? Og hvað hverjum getur maður athugað það?


http://gagnaveita.is/

Það er hérna hægra megin á síðunni


Damnit, ekki búið að tengja hjá mér :evil: