Page 1 of 1

Schumi meiðist í fótbolta - tekið af www.mbl.is

PostPosted: Mon 17. Nov 2003 22:55
by hlynurst
www.mbl.is wrote:Schumacher meiðist í fótbolta
Michael Schumacher, heimsmeistari í Formúlu-1, hefur neyðst til að hætta við þátttöku í æfingu hjá enska fótboltafélaginu Manchester United, sem ráðgerðvar á miðvikudaginn, vegna meiðsla sem hann varð fyrir - í fótbolta!
Schumacher hefur fengið fyrirmæli lækna um að hvílast næsta hálfan mánuðinn vegna hnémeiðsla í leik með liði sveitunga sinna í Sviss.

Löngu var ákveðið að hann myndi æfa með ensku meisturunum í æfingamiðstöð liðsins í Carrington áður en hann færi síðan til Old Trafford-leikvangsins og tæki þátt í vítaspyrnukeppni. Af því verður ekki að sinni vegna meiðslanna.


Hvað er í gangi... og að æfa með Man utd!!! :evil:

PostPosted: Mon 17. Nov 2003 22:56
by bjahja
Veistu hvað hann er góður í fótbolta!! 8)

PostPosted: Mon 17. Nov 2003 22:58
by Jss
Hann er nefnilega mjög góður í fótbolta, en ég segi eins og Hlynurst, afhverju með Manchester :evil: :evil: :evil:

PostPosted: Mon 17. Nov 2003 22:58
by hlynurst
Er búinn að sjá eitthvað til hans... hefur ágætis takta. Sá meira að segja leik þar sem einhverjir kappar voru að spila, fótboltamenn og ekki, og það var ágætt. Dirk Nowitzki körfuboltamaðurinn var líka í þessum leik... djöfull klunnalegur enda maðurinn yfir 2 metra á hæð! :lol:

PostPosted: Mon 17. Nov 2003 23:05
by Jss
hlynurst wrote:Er búinn að sjá eitthvað til hans... hefur ágætis takta. Sá meira að segja leik þar sem einhverjir kappar voru að spila, fótboltamenn og ekki, og það var ágætt. Dirk Nowitzki körfuboltamaðurinn var líka í þessum leik... djöfull klunnalegur enda maðurinn yfir 2 metra á hæð! :lol:


Þeir spila góðgerðarleik árlega, Michael Schumacher og vinir á móti atvinnumönnum í fótbolta.

PostPosted: Tue 18. Nov 2003 09:04
by Raggi M5
Jss wrote:Hann er nefnilega mjög góður í fótbolta, en ég segi eins og Hlynurst, afhverju með Manchester :evil: :evil: :evil:


Af því að þeir eru bestir og hann er alltaf hjá þeim bestu (Ferrari) múhahahhaha :twisted:

PostPosted: Tue 18. Nov 2003 13:55
by Logi
Þetta er víst eitthvað í gegnum Vodafone, sem styður bæði ManUtd og Ferrari.....

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 18:24
by Danni
Ég keypti skóna hans.

PostPosted: Wed 19. Nov 2003 23:15
by Jss
Danni wrote:Ég keypti skóna hans.


Hvaða skó ??? :?