bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Áramótin....hvað skal gera? (niðrí bæ, partí, krafturinn, bó
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33992
Page 1 of 5

Author:  krullih [ Tue 30. Dec 2008 14:32 ]
Post subject:  Áramótin....hvað skal gera? (niðrí bæ, partí, krafturinn, bó

Vonandi er þetta nægilega lýsandi titill :D

En ofmetnasta djamm ársins er í vændum -- hvað ætla menn að gera?

Ég persónulega færi mig rétt eftir tólf í tengdafjölskylduboð og sé svo til hvað ég geri. Sé ekki fram á að ég eigi eftir að nenna niður í bæ í 3 klst til að bíða svo í 4 klst eftir leigubíl. Jafnvel að maður verði edrú og taki krónur fyrir skutlerí!

En restin ?

Author:  gunnar [ Tue 30. Dec 2008 15:10 ]
Post subject: 

Ég er að hugsa um að vera edrú barasta. Ég hef aldrei skemmt mér vel á áramótunum og ég einfaldlega nenni ekki þessu leigubílaveseni aftur.

Author:  Einarsss [ Tue 30. Dec 2008 15:15 ]
Post subject: 

Búinn að vera edrú síðustu 7 áramót og verð að segja að mér finnist það mun skemmtilegra heldur en þegar maður var að drekka.

Plús að það er svo sweet að vakna óþunnur og hugsa til þess hvað það séu margir að deyja úr þynku :lol:

Author:  krullih [ Tue 30. Dec 2008 15:19 ]
Post subject: 

Er ekki frá því að ég taki ykkur bara til fyrirmyndar - ég hef held ég aldrei farið á almennilega skemmtilegt áramótapartí, þannig að það ætti að vera vel hægt að bara vera edrú og Jamma. Djamma án drykkja!

Author:  gunnar [ Tue 30. Dec 2008 15:21 ]
Post subject: 

Ja það er ekki eins og mér finnist leiðinlegt að fá mér í glas í góðra vina hópi. En það er bara búið að setja þetta kvöld á of háan stall. Fólk býst alltaf við því að það verði svo GEÐVEIKT gaman sem það sjaldnast verður.

Author:  gstuning [ Tue 30. Dec 2008 15:21 ]
Post subject: 

Ég hef aldrei skemmt mér með því að fara niður í bæ,
mikið skemmtilegra að fara í partý frekar,

Author:  KristoferK [ Tue 30. Dec 2008 15:22 ]
Post subject: 

Æi, mér hefur í eiginlega aldrei fundist voða gaman að drekka á gamlárs. Frekar tek ég það rólega með familíunni yfir skaupinu og nokkrum sprengjum uppúr miðnætti og fer svo eitthvað að flakkast með félögum... Súpa í mestalagi 3-4 bjóra og hef það gott.

Author:  Ingsie [ Tue 30. Dec 2008 15:30 ]
Post subject: 

Ég verð með fjölskyldunni heima hjá systur mömmu til svona 1, þá fer ég að skutlast á milli, þarf að mæta allavega í 2 party haha! Svo verð ég bara driver =)
Var það líka í fyrra og þetta er bara þæginlegt

Author:  íbbi_ [ Tue 30. Dec 2008 15:40 ]
Post subject: 

áramótyadjömm eru alltaf ömurleg.. sitja í bíl, standa í röð. standa í annari röð, verða kalt, standa meira í röð, út að reykja,. í taxaröðina, kalt kalt kalt..

Author:  arnibjorn [ Tue 30. Dec 2008 16:21 ]
Post subject: 

Þið eruð klárlega að gera eitthvað vitlaust!!! :lol: :lol:

Áramótadjömm hjá mér hafa alltaf verið nokkuð solid en það sem hefur einkennt þau er OF mikil drykkja :shock:

Ég ætla er að spá í að vera rólegri í drykkjunni og sjá bara til.. ég verð í veislu upp í Breiðholti með fjölskyldu og vinum til að byrja með, maður fær sér nokkra bjóra og rauðvín þar og svo ætla ég bara að láta þetta ráðast.

Ps. Ég er líka að fara uppí sumarbústað um helgina og þá verður sko tekið á því!! :drunk:

Author:  srr [ Tue 30. Dec 2008 16:41 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:

Ætlaru nokkuð að taka driftsession í veislunni ? :lol:

Author:  arnibjorn [ Tue 30. Dec 2008 17:02 ]
Post subject: 

srr wrote:

Auðvitað.. geri það á hverju ári núna.. það vakti svo mikla lukku fyrst þegar ég gerði það :D

Author:  Danni [ Tue 30. Dec 2008 17:48 ]
Post subject: 

Ég er svo óákveðinn þessa dagana varðandi áramótin. Langar á Broadway, en nenni ekki að standa í leigubílaveseni. Langar líka á Nasa og fara heim með Fly Bus, en nenni ekki að taka sénsinn og missa af öllum ferðum. Langar líka að vera bara í Keflavík og skemmta mér. Enginn leigubíll, engin rúta, ekkert vesen 8)

En ætli ég endi ekki á Broadway, það er búið að vera mest í umræðu meðal vinanna.

Author:  lulex [ Tue 30. Dec 2008 17:52 ]
Post subject: 

ætli það endi ekki i sjallanum .... Á pál óskari :gay:

Author:  wolfurinn [ Tue 30. Dec 2008 18:11 ]
Post subject: 

ég ætla að vera í bílskúrnum að rífa og tæta,pússa og gera fínnt

Page 1 of 5 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/