bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Davíð fékk viðvörun frá erlendum lögregluyfirvöldum https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33646 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bjarkih [ Wed 10. Dec 2008 21:57 ] |
Post subject: | Davíð fékk viðvörun frá erlendum lögregluyfirvöldum |
http://utvarpsaga.blog.is/blog/utvarpsaga/entry/739760/?t=0 Quote: Nú liggur ljóst fyrir af hverju Davíð Oddsson segist vita hversvegna Landsbankinn hafi verið settur inná hryðjuverkalista í Bretlandi.Hann bar fyrir sig bankaleynd þegar hann var tekinn á teppið hjá viðskiptanefnd Alþingis. Nú hefur hinsvegar lekið út hvað gerðist. Alþjóðalögreglan semfylgist m.a.með í gegnum gervihnetti til þess að upplýsa margvíslega glæpastarfsemi s.s. fíkniefnasölu,peningaþvætti, hryðjuverkastarfsemi og fjármagnsflutninga. Þegar bankahrunið var að dynja yfir Ísland munu allar viðvörunarbjöllur hafa hringt hjá alþjóðalögreglunni vegna gríðarlegra fjármagnsflutninga frá Icesave reikningunum íslensku í Lundúnum.
Viðvörunarkerfið var að springa. Þetta var umsvifalaust tilkynnt til Seðlabanka Íslands og Bretlands.Bretarnir brugðust við á stundinni og settu Landsbanka Íslands á lista yfir hryðjuverkamenn. Enda er það athyglisvert að Landsbankinn er ennþá á listanum þótt svo að það eigi að heita að við séum búin að semja við Breta útaf Icesave. Því er þetta ekki rannsakað? |
Author: | Alpina [ Wed 10. Dec 2008 22:02 ] |
Post subject: | Re: Davíð fékk viðvörun frá erlendum lögregluyfirvöldum |
Bjarkih wrote: http://utvarpsaga.blog.is/blog/utvarpsaga/entry/739760/?t=0
Quote: Nú liggur ljóst fyrir af hverju Davíð Oddsson segist vita hversvegna Landsbankinn hafi verið settur inná hryðjuverkalista í Bretlandi.Hann bar fyrir sig bankaleynd þegar hann var tekinn á teppið hjá viðskiptanefnd Alþingis. Nú hefur hinsvegar lekið út hvað gerðist. Alþjóðalögreglan semfylgist m.a.með í gegnum gervihnetti til þess að upplýsa margvíslega glæpastarfsemi s.s. fíkniefnasölu,peningaþvætti, hryðjuverkastarfsemi og fjármagnsflutninga. Þegar bankahrunið var að dynja yfir Ísland munu allar viðvörunarbjöllur hafa hringt hjá alþjóðalögreglunni vegna gríðarlegra fjármagnsflutninga frá Icesave reikningunum íslensku í Lundúnum. Viðvörunarkerfið var að springa. Þetta var umsvifalaust tilkynnt til Seðlabanka Íslands og Bretlands.Bretarnir brugðust við á stundinni og settu Landsbanka Íslands á lista yfir hryðjuverkamenn. Enda er það athyglisvert að Landsbankinn er ennþá á listanum þótt svo að það eigi að heita að við séum búin að semja við Breta útaf Icesave. Því er þetta ekki rannsakað? ![]() ![]() ![]() |
Author: | Schulii [ Wed 10. Dec 2008 22:19 ] |
Post subject: | |
Er enginn að spá í hvar allir þessir peningar sem bretar lögðu inn á Icesave reikningana séu niðurkomnir? |
Author: | zazou [ Thu 11. Dec 2008 01:12 ] |
Post subject: | |
Schulii wrote: Er enginn að spá í hvar allir þessir peningar sem bretar lögðu inn á Icesave reikningana séu niðurkomnir?
NÁKVÆMLEGA, hvar eru peningarnir ![]() Var þetta bara pýramídasvikamilla? Fyrr byrjar maður með tvær hendur tómar í Langtíburtistan heldur en að borga reikninginn sem landráðamennirnir skildu eftir. |
Author: | Angelic0- [ Thu 11. Dec 2008 03:01 ] |
Post subject: | |
Brúskí Karamba bara stofna mafía... svo stela breska pening, og allir halda íslandskí gera það ![]() Menn frá Ísland opna bjórverksmiðj... við ekki vilja, við bara drepa þá eða nota sem leppur ![]() Þetta einfalt, Íslending allir svo heimskir... |
Author: | ValliFudd [ Thu 11. Dec 2008 06:43 ] |
Post subject: | |
http://www.visir.is/article/20081211/FRETTIR01/711493193/-1 Hvað eru 100 millz milli vina? visir.is wrote: Grunur um 100 milljóna fjárdrátt - Skilanefnd Landsbankans kærir háttsettan bankamann
„Það hefur komið hingað eitt mál frá skilanefnd, sem varðar fjárdrátt, ég get staðfest það. Málið er í rannsókn," segir Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjórans. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst, varðar málið staka færslu upp á um 100 milljónir króna. Færslan fór milli reikninga, þar sem annar reikningurinn var í eigu erlends félags. Skilanefnd Landsbankans komst að þessu og kærði til efnahagsbrotadeildarinnar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þá var hinn grunaði hátt settur starfsmaður bankans, þó ekki bankastjóri. Millifærslan mun hafa verið gerð skömmu eftir að bankinn féll, fyrir miðjan október. Skilanefnd var sett yfir bankann 7. október. Málið var svo sent frá skilanefndinni til efnahagsbrotadeildarinnar fyrir rúmum hálfum mánuði. Fréttablaðið náði ekki tali af Lárusi Finnbogasyni, formanni skilanefndar Landsbankans, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. - ikh |
Author: | Angelic0- [ Fri 12. Dec 2008 06:47 ] |
Post subject: | |
ég er ennþá á því að þetta séu helvítis rússarnir ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |