bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Verðmunur á Diesel og Benzini https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33596 |
Page 1 of 2 |
Author: | elli [ Tue 09. Dec 2008 12:42 ] |
Post subject: | Verðmunur á Diesel og Benzini |
Datt inn á frétt um verð á Diesel í þýskalandi. Hér má sjá að verð á Diesel er lægra heldur en á Bensíni, því er því ekki svoleiðis farið hér. Tiltekin bensínstöð í DE Diesel 1.02 EUR Bensín 1.06 EUR Orkan IS: Bensín 129,7 ISK Diesel 156,7 ISK hvað er málið 23% hærra verð á Diesel á íslandi http://www.bild.de/BILD/news/leserrepor ... telle.html Þeir eru reyndar að velta fyrir sér hvenær diesel-inn fari niður undur eina EUR þannig að fréttin kemur ekki þessum pósti við, nema til að sýna verðmuninn milli tegunda hér og í DE. ![]() |
Author: | JonFreyr [ Tue 09. Dec 2008 12:50 ] |
Post subject: | |
Diesel er reyndar ódýrara en bensínid hérna í DK.....kostar ekki nema 7,22 DKR á Jótlandi. |
Author: | elli [ Tue 09. Dec 2008 13:05 ] |
Post subject: | |
JonFreyr wrote: Diesel er reyndar ódýrara en bensínid hérna í DK.....kostar ekki nema 7,22 DKR á Jótlandi.
Akkúrat hvað er málið með ónýta Ísland! |
Author: | IceDev [ Tue 09. Dec 2008 13:34 ] |
Post subject: | |
þetta er líklegast vegna þess að þungaskattur var afnuminn af díselbifreiðum, þar af leiðandi borgum við aukaskatt af dísel eldsneyti Annars þykir mér fáránlegt að þurfa að borga meira fyrir eldsneyti á bíla sem eyða minna og þar af leiðandi menga minna, ef eitthvað er ætti díselinn að kosta minna heldur en bensín Bjúrókrasía dauðans |
Author: | Djofullinn [ Tue 09. Dec 2008 14:15 ] |
Post subject: | |
IceDev wrote: þetta er líklegast vegna þess að þungaskattur var afnuminn af díselbifreiðum, þar af leiðandi borgum við aukaskatt af dísel eldsneyti
Annars þykir mér fáránlegt að þurfa að borga meira fyrir eldsneyti á bíla sem eyða minna og þar af leiðandi menga minna, ef eitthvað er ætti díselinn að kosta minna heldur en bensín Bjúrókrasía dauðans Algjörlega sammála |
Author: | DABBI SIG [ Tue 09. Dec 2008 14:39 ] |
Post subject: | |
Það er olíuskattur eða eitthvað álíka innifalinn í verðinu á dísilolíunni. Annars væri þetta sennilega ódýrara. |
Author: | bebecar [ Tue 09. Dec 2008 15:23 ] |
Post subject: | |
Maður á bágt með að skilja að eitthvað vit sé í að kaupa dísil heima - þó þeir eyði miklu minna. Þetta er svo mikill verðmunur! |
Author: | gunnar [ Tue 09. Dec 2008 15:34 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Maður á bágt með að skilja að eitthvað vit sé í að kaupa dísil heima - þó þeir eyði miklu minna. Þetta er svo mikill verðmunur!
Fyrir utan að dísil bílarnir eru töluvert dýrari í innkaupum. |
Author: | Einari [ Tue 09. Dec 2008 17:09 ] |
Post subject: | |
[quote="IceDev"]þetta er líklegast vegna þess að þungaskattur var afnuminn af díselbifreiðum, þar af leiðandi borgum við aukaskatt af dísel eldsneyti Annars þykir mér fáránlegt að þurfa að borga meira fyrir eldsneyti á bíla sem eyða minna og þar af leiðandi menga minna, ef eitthvað er ætti díselinn að kosta minna heldur en bensín Bjúrókrasía dauðans[/quote] Þungaskattur var ekki beint afnuminn af diesel bílum, hann var bara settur inní verðið á olíunni eins og hann var í verðinu á bensíninu. Vörubílar þurfa að borga þungaskatt aukalega með olíunni afþví að þeir þurfa að borga meira en venjulegur fólksbíll. Síðan var komið með græna diesel olíu á vinnuvélar og þá bíla sem þurfa ekki að borga þungaskatt. Þessi verðmunur er þessvegna ekki útaf þungaskattinum, heldur einhverju öðru, diesel líterinn var líka ódýrari en bensín hérna fyrst eftir að þungaskatturinn var settur inn í olíuverðið. |
Author: | IceDev [ Tue 09. Dec 2008 17:13 ] |
Post subject: | |
IceDev wrote: þetta er líklegast vegna þess að þungaskattur var afnuminn af díselbifreiðum, þar af leiðandi borgum við aukaskatt af dísel eldsneyti
Einari wrote: Þungaskattur var ekki beint afnuminn af diesel bílum, hann var bara settur inní verðið á olíunni eins og hann var í verðinu á bensíninu. Það var það sem ég sagði Plús að það er skiljanlegt fyrir vörubíla, sem vega mun meira heldur en almennur fólksbíll að borga þungaskatt vegna skemmda á malbiki Græna dísilolían eru einungis fyrir ökutæki sem notuð eru við vinnu og skráð sem slík |
Author: | BjarkiHS [ Tue 09. Dec 2008 20:16 ] |
Post subject: | |
Verðið á grænu olíunni, er í raun það sama og á venjulegum díesel -þungaskattur |
Author: | bebecar [ Tue 09. Dec 2008 21:16 ] |
Post subject: | |
gunnar wrote: bebecar wrote: Maður á bágt með að skilja að eitthvað vit sé í að kaupa dísil heima - þó þeir eyði miklu minna. Þetta er svo mikill verðmunur! Fyrir utan að dísil bílarnir eru töluvert dýrari í innkaupum. Já, frekar öfugsnúið að hafa þetta svona á skjön við það sem nágrannalöndin eru að gera. |
Author: | BMWaff [ Tue 09. Dec 2008 21:28 ] |
Post subject: | |
Hef aldrei skilið þetta... Þeir vilja setja auka skatta á eyðslumikla bíla og fleira gáfulegt til að koma í veg fyrir mengun... En afhverju ýta þeir ekki undir að fólk kaupi diesel bíla? Afnemi þá bara eitthvað af þessum diesel sköttum eða eitthvað... |
Author: | sh4rk [ Wed 10. Dec 2008 00:27 ] |
Post subject: | |
Sko þó svo að þungaskatturinn hafi verið afnuminn og settur inn í olíuverðið þá er disel olían of dýr og tala nú ekki um fyrir vöruflutningabílana sem þurfa ennþá held ég allveg örugglega að borga kílómetragjald sem er 13kr á ekinn km og mig minnir að literinn af disel hafi ekki kostað nema rúmlega 50kr pr/liter áður en hann var settur inní olíuverðið |
Author: | Svezel [ Wed 10. Dec 2008 11:04 ] |
Post subject: | |
Ég sendi fyrirspurn á skeljungur.is og fékk þetta svar skömmu síðar. Quote: Sæll Sveinbjörn
Verðbil milli bensíns og diesel olíu hefur verið að aukast. Í dag þá er innkaupsverð á diesel litra 50% hærra en á bensín litranum. Yfirleitt er það þannig að eftirspurn eftir bensíni er meiri á sumrin en á veturna. Eftirspurn eftir diesel olíu eykst m.v. bensínið á veturna og er það m.a. vegna þess að diesel olía eða olía sem er mjög skyld henni er notuð við húshitun. Þessar eftirspurnar sveiflur eru þannig í hámarki yfir háveturinn og hefur það eðlilega áhrif á verðið. Einnig er það þannig að staða diesel bíla gagnvart bensín bílum hefur breyst í heiminum þannig að hlutfallslega eru þeir nú fleiri en áður. Stjórnvöld víða um heim hafa hagað skattlagningu sinni á eldsneyti þannig að gjöld á bensíni eru mun meiri per litra en á diesel olíu. Markmiðið með því er að gera diesel bílinn samkeppnisfærari miðað við bensín bílinn þar sem disel bílar eru taldir menga minna. Þannig að ef þú skoðar verð á bensíni og diesel olíu erlendis og berð það saman við verðið hér þá felst munurinn fyrst og fremst í mismunandi skattlagningu á bensíni og diesel. Með kveðju, Már Erlingsson |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |