Eggert wrote:1. Passa sig að klikka ekki á hvað sem er.
2. Læra að setja Windows upp á tölvuna til að geta gert það reglulega og þegar eitthvað fer úrskeiðis. Gott að gera þetta 2x á ári, tekur tvo tíma tops í senn.
Ég hef komist af án vírusvarna síðan ég fór að nota tölvur á unglingsárunum. Þetta er bara drasl sem hægir á vélinni og er bara fyrir að mínu mati. Færi aldrei að borga fyrir svona rusl sem er búið til af sömu mönnum og gera vírusana!
Ég er ekki viss með þetta. En það er svipað hér, ég hef lítið notað vírusvarnir í gegnum árin með góðum árangri. Hinsvegar setti ég upp NOD32 útaf trójuhestum sem stela lykilorðum og þannig gúdderí, vil helst ekki lenda í því. Hann er að éta heil 7 mb af minni í venjulegri notkun og það verður að teljast lítið. Hann er aldrei fyrir mér og ég sé ekki eftir því að hafa sett hann upp.
En með smá skynsemi er auðveldlega hægt að lifa af með engri vírusvörn. Það er bara verst að meirihluti tölvunotenda skortir skynsemi þegar það kemur að tölvum.
