bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Læsingar í jeppa
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33561
Page 1 of 2

Author:  Hlynur___ [ Mon 08. Dec 2008 01:20 ]
Post subject:  Læsingar í jeppa

veit eitthver um læsingar í jeppa hérna, hvað þetta gæti verið dýrt og hvar se hægt að fá svona?

Author:  GunniT [ Mon 08. Dec 2008 01:28 ]
Post subject: 

http://kliptrom.is/

Author:  Svezel [ Mon 08. Dec 2008 10:37 ]
Post subject: 

Hvernig læsingu ertu að leita að og í hvernig bíl/drif/hásingu?

Ef þú ert að leita að loftlæsingu þá er þetta eflaust um 150þús + vinna en no-spin er svona helmingi ódýrara.

Síðan er hægt að fá lock-right læsingar sem virka nánast eins og no-spin. Maður setur þær inn í opið drif og læsir saman kóngulóar-gírunum sem gerir drifið þannig 100%læst. Þetta er að kosta svona 1/3 af loftlás og maður á að geta sett þetta í sjálfur, þarft ekkert að stilla þetta eða annað vesen en það eru ansi skiptar skoðanir um hvort þetta sé drasl eða ekki. Virðist alveg virka í létta bíla og bíla sem eru ekkert að drukkna í afli.

Færð læsingar hjá Bílabúð Benna, Artic trucks og fleiri stöðum hér heima eða pantar af netinu.

Author:  Hlynur___ [ Mon 08. Dec 2008 12:42 ]
Post subject: 

Svezel wrote:

takk fyrir

ég er annars að leita mer af ódýrustu læsinguni sem er á markaðnum, helst notaða. og bara í afturdrifið ekki framdrifiðþ þetta er hilux 91 :)

Author:  Tommi Camaro [ Mon 08. Dec 2008 12:48 ]
Post subject: 

Hlynur___ wrote:

þá ferð á toyota flugmýri bilapartar.is og færð þér læst drif hjá jamil,

Author:  Svezel [ Mon 08. Dec 2008 12:52 ]
Post subject: 

Mig vantar einmitt líka læsingu sem ódýrast (í Dana 35) og hef verið að spá í að prófa svona lock-right læsingu, það ætti að fást á svona 50þús kall

Author:  jeppakall [ Mon 08. Dec 2008 14:13 ]
Post subject: 

myndi frekar fá mér no-spin! Það eru einu læsingarnar sem virka finnst mér allavega og ég hef prófað flest allar gerðir nema þetta lock-right sem ég hef heyrt misgóðar sögur um. Loftlæsingar eru bara að klikka of oft og verðið er :shock:
Þú getur pottþétt fundið no-spinh nánast gefins á ebay eða á partasölu.

Author:  Stebbtronic [ Mon 08. Dec 2008 14:34 ]
Post subject: 

En eru menn ekki að forðast no-spin vegna þess að þá byrja dekkin að étast upp í innanbæjarnotkun og ekki hægt að kúpla læsingunni frá...
Er ekki sá sleipasti í jeppalandi en sklidist þetta á félaga.

Author:  Svezel [ Mon 08. Dec 2008 14:57 ]
Post subject: 

Þetta verður náttúrlega ansi þvingað á malbiki og það smellur í öllu draslinu við einhverjar stæðaæfingar en það á náttúrlega ekkert að nota þessi ógeð í svoleiðis :lol:

Author:  SævarM [ Mon 08. Dec 2008 18:02 ]
Post subject: 

ég myndi aldrei fá mér no spin ef ég ætti að velja læsinguna sjálfur.
eina sem ég hef fengið af notkun á þeim er að þær eru að læsa á
öllum tímum hvort sem að þær eiga að gera það eða ekki.

Og þar sem að þú ert með hilux þá má drifið ekki við því að vera að læsast
á milbiki í tíma og ótíma þar sem að drifið í þeim er alls ekki það
sterkasta sem hægt er að fá. ef ég væri þú myndi ég leita mér af rafmagnslæsingu úr diesel bíl frá þessum árum. fínt að geta bara
læst þegar á að vera læst og opið annars.

Author:  Aron Fridrik [ Mon 08. Dec 2008 18:57 ]
Post subject: 

jeppakall wrote:
myndi frekar fá mér no-spin! Það eru einu læsingarnar sem virka finnst mér allavega og ég hef prófað flest allar gerðir nema þetta lock-right sem ég hef heyrt misgóðar sögur um. Loftlæsingar eru bara að klikka of oft og verðið er :shock:
Þú getur pottþétt fundið no-spinh nánast gefins á ebay eða á partasölu.

ha ? hvar fréttiru það ?

loftlæsingar eru sniðugasti kosturinn en sá dýrasti eins og sagt hefur verið..

geturu ekki fundið raflæsingu bara í hann.. hún er til orginal og hönnuð með þennan bíl í huga :)

Author:  Lindemann [ Mon 08. Dec 2008 19:28 ]
Post subject: 

ég væri til í að vita hvað menn vilja meina að sé að klikka í loftlæsingunum......... ég veit ekki betur en að þær virki mjög vel svo lengi sem loftþrýstingur í lögninni fellur ekki.

Author:  SævarM [ Mon 08. Dec 2008 21:09 ]
Post subject: 

Lindemann wrote:
ég væri til í að vita hvað menn vilja meina að sé að klikka í loftlæsingunum......... ég veit ekki betur en að þær virki mjög vel svo lengi sem loftþrýstingur í lögninni fellur ekki.

Hef svosem heyrt um að þeir sem passa ekki raka í lögnum lendi í að það frjósi og festist á eða af en það er mjög óalgengt.

Author:  MR.BOOM [ Mon 08. Dec 2008 21:24 ]
Post subject: 

Búinn að vera viðloðinn jeppamennsku bráðum í 30 ár hef prófað allar útfærslur af drifum allt frá opnum til harðsoðinna. Reynsla hefur sýnt mér að Nospin er eina sanna læsingin, virkar alltaf ,bilar minnst og bílar útbúnir henni drífa betur.

Author:  Angelic0- [ Tue 09. Dec 2008 03:21 ]
Post subject: 

MR.BOOM wrote:
Búinn að vera viðloðinn jeppamennsku bráðum í 30 ár hef prófað allar útfærslur af drifum allt frá opnum til harðsoðinna. Reynsla hefur sýnt mér að Nospin er eina sanna læsingin, virkar alltaf ,bilar minnst og bílar útbúnir henni drífa betur.

Hehehe, hefuru prófað EATON G80 :?:

Bara passa sig að skipta nógu oft um á drifunum og þá er þetta SOLID as FUCK...

Menn eru að klúðra G80 með því að keyra þetta bara og keyra og trassa olíuskipti, við það slitnar mekkinn og þetta fer í kaos, festist á eða er seinvirkt... spólar heavy á einu, og skýtur svo yfir í hitt hjólið...

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/