bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Varðandi tryggingar á mótorhjólum
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=33526
Page 1 of 1

Author:  IceDev [ Sat 06. Dec 2008 02:09 ]
Post subject:  Varðandi tryggingar á mótorhjólum

Sælir

Ég fékk að vita fáránlegasta kjaftæði í dag

Þrátt fyrir að ég sé búinn að leggja inn plöturnar af mótorhjóli mínu, þá eru þeir enn að rukka fyrir það

Ég fór því upp í tryggingafyrirtækið og spurði hvað málið væri varðandi þetta kjaftæði. Þeir sögðu mér þá að þetta væri nýr tryggingarstuðull hjá þeim að þeir tryggðu s.s allt árið þrátt fyrir innlaggningar og væru þess vegna að bjóða upp á "ódýrari" tryggingar og greiða yrði tryggingar þrátt fyrir innlagningu númera

Sbr. árstrygging upp á 80 þúsund í stað 400. Hinsvegar með 400 þúsund trygginguna borgar maður bara per mánuð sem maður notar hjólið

Mér finnst þetta fáránlegt system, sérstaklega í ljósi þess að ég er ekki einusinni með bifhjólapróf og því verður það ekkert notað fyrr en næsta sumar

Þannig að ég spyr ykkur bifhjólamenn, hvað gerið þið til að láta ekki taka ykkur í skraufþurran bossalinginn?

Djöfulsins tryggingafélög

Author:  E55FFFan [ Sat 06. Dec 2008 02:15 ]
Post subject:  Re: Varðandi tryggingar á mótorhjólum

farðu með hjólið á bílasölu, þá geturðu fengið þá til að votta það að hjólið se ekki í notkun
felaginn minn komst upp með það allavega í hálft ár
þá áttu að fá þetta hálfa ár endurgreitt eða eitthvað í þá áttina

Author:  Svessi [ Sat 06. Dec 2008 04:55 ]
Post subject: 

Ég óska eftir því að fá að vita hvaða tryggingarfélag þetta er svo maður geti forðast það.

Og afhverju þarf alltaf að vera svona mikið vesen í kringum allt í sambandi við tryggingar hér heima.

Veit t.d. í Þýskalandi, ef þú villt leggja bílnum þínum í einhvern tíma, þá bara legguru honum, hefur hann samt á númerum en lætur trygginarfégið þitt vita og ekkert mál, bíllinn stendur bara á númerinum og þú borgar engar tryggingar. Hinsvegar ef þú myndir nota bílinn þá eru ströng viðurlög við því.

Author:  IceDev [ Sat 06. Dec 2008 05:02 ]
Post subject: 

Vörður :x

Fínir í bílatryggingum samt

Er með 530d á kaskó á 85k á ári

Author:  Dóri- [ Sat 06. Dec 2008 06:05 ]
Post subject: 

IceDev wrote:
Vörður :x

Fínir í bílatryggingum samt

Er með 530d á kaskó á 85k á ári


TM er með sama kjaftæðið, færði mig yfir í vörð, fékk þar geggjaðan díl í tryggingar en ég er oft að skipta um bíla og díllinn hefur alltaf versnað og versnað!!!

Author:  Jónas [ Sat 06. Dec 2008 12:10 ]
Post subject: 

Var með racer tryggðan hjá TM og eftir smá bras fékk ég árið á 50kall án kaskó.

Annars var mér boðið að borga einhvern ákveðin pening á mánuði og þá mátti ég taka númerin af etc.. en hjólaárið er orðið svo langt (tók smá túr í miðjum nóvember! :)) að það borgaði sig ekki.

Annars er þetta algjört kjaftæði, fyndið þegar að kanar eru að kvarta yfir því að borga 300$ fyrir árið með kaskó :)

Author:  Axel Jóhann [ Sat 06. Dec 2008 12:12 ]
Post subject: 

Ég er nú hjá sjóva og ég er að borga 60k rúman fyrir F-150 og kaskó. 8)

Author:  Kristjan [ Sat 06. Dec 2008 13:33 ]
Post subject: 

Axel Jóhann wrote:
Ég er nú hjá sjóva og ég er að borga 60k rúman fyrir F-150 og kaskó. 8)


Þú býrð líka í Eyjum, þarf maður ekki að vera meiriháttar óheppinn til að lenda í tjóni þar?

Author:  Turbo- [ Sat 06. Dec 2008 14:10 ]
Post subject: 

ég er að borga 54þús á ári fyrir mr2 með kaskó og 45kall í eigináhættu

Author:  Jónas [ Sat 06. Dec 2008 15:23 ]
Post subject: 

Af hverju í fjáranum eru menn að tala um bílatryggingar hérna?

Author:  Thrullerinn [ Sat 06. Dec 2008 18:07 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
Axel Jóhann wrote:
Ég er nú hjá sjóva og ég er að borga 60k rúman fyrir F-150 og kaskó. 8)


Þú býrð líka í Eyjum, þarf maður ekki að vera meiriháttar óheppinn til að lenda í tjóni þar?


Seldi bróðir þinn þér þessa tryggingu því þetta er mjög lágt!

Author:  Vargur [ Sat 06. Dec 2008 23:37 ]
Post subject: 

Í þessum tilfellum er ágætt trikk að hafa eigendaskipti á hjólinu, skrá það td. á vin sinn eða ættingja sem hafa ekki sama heimilisfang og maður sjálfur. Leggja inn númerið um leið og maður fer með eigendaskiptin og fá svo trygginguna endurgreidda vegna sölunnar.
Næsta vor tryggir maður hjólið á nafni ættingjans og skráir það svo aftur á sig um haustið og leikur sama leikinn.
Kostar bara kostnað við ein eigendaskipti á ári.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/