Page 1 of 2

Tölvugúrúar

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 12:16
by mattiorn
Sælir, var að spá í uppfærslu á borðtölvunni minni, en ég veit ekki hvort ég geti gert eitthvað með núverandi búnaði..

er með:
AMD Athlon 64 processor 3400+ 2,41GHz
1 gb ram
200gb HDD
skjákortið er Nvidia Geforce Go FX5700

Get ég keypt mér almennilegt skjákort, Geforce 9xxx eða gott ATI kort og smá meira minni og verið góður? þ.e. spilað helstu nýjustu leikina, eða þarf ég að uppfæra móðuborðið lika?

kv.
Matti

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 12:20
by Axel Jóhann
Getur fengið ATi Radeon 9800 256 eða 128mb og verið góður með það, virka mjög vel með gamla dótinu mínu.



Svo kosta 2gb af DDR2 minni EKKERT í dag.

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 12:22
by Einarsss
myndi uppfæra minnið í 2 gíg lágmark og skjákortið í eitthvað mid range kort.

Er þetta AGP kort sem þú ert með? ef svo er þá myndi ég mæla bara með öllum pakkanum ... nýtt móbo, minni, örgjörva og skjákorti.
Færð engin góð AGP kort lengur í dag,

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 12:32
by mattiorn
Hvar sé ég hvort draslið sé AGP eða ekki?

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 12:35
by Axel Jóhann
Á að standa á móbo-inu meðfram skjákortsraufinni.

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 12:38
by Einarsss
Image

neðri raufin er AGP ... efri PCIe

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 12:47
by bimmer
Ef þú sérð nafn/týpu á móðurborðinu er auðvelt að
fletta því upp hvort kortið er AGP eða PCI-E.

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 13:02
by mattiorn
bimmer wrote:Ef þú sérð nafn/týpu á móðurborðinu er auðvelt að
fletta því upp hvort kortið er AGP eða PCI-E.


Var einmitt að opna kassann og það er MSI merkingar útum allt

Skjákortið er síðan tengt í rauða rauf, veit ekki hvort það segi eitthvað sá ekki AGP neinstaðar

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 13:03
by Einarsss
kipptu kortinu bara úr og skoðaðu myndina sem ég póstaði.

Mig grunar samt að þú sért með AGP, þetta kort er frekar mikið out dated

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 13:08
by Kristjan
Farðu bara í einhverja tölvuverslun og keyptu þér uppfærsluturn. Það er ekkert svo dýrt.

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 13:12
by mattiorn
einarsss wrote:kipptu kortinu bara úr og skoðaðu myndina sem ég póstaði.

Mig grunar samt að þú sért með AGP, þetta kort er frekar mikið out dated


Okey, þetta er semsagt AGP kort, hvað gera bændur þá?

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 13:12
by Geirinn
Sisoft Sandra ætti að geta sagt þér hvað móðurborðið heitir.

Minnir amk. að þær upplýsingar fáist úr því forriti (mjög langt síðan ég notaði það forrit hins vegar, spurning hvort það sé enn í til).

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 13:15
by bimmer
mattiorn wrote:
einarsss wrote:kipptu kortinu bara úr og skoðaðu myndina sem ég póstaði.

Mig grunar samt að þú sért með AGP, þetta kort er frekar mikið out dated


Okey, þetta er semsagt AGP kort, hvað gera bændur þá?


Það sem Einar segir - færð þér annað móðurborð, örgjörva
og minni ásamt PCI-E skjákorti.

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 13:40
by xtract-
bimmer wrote:
mattiorn wrote:
einarsss wrote:kipptu kortinu bara úr og skoðaðu myndina sem ég póstaði.

Mig grunar samt að þú sért með AGP, þetta kort er frekar mikið out dated


Okey, þetta er semsagt AGP kort, hvað gera bændur þá?


Það sem Einar segir - færð þér annað móðurborð, örgjörva
og minni ásamt PCI-E skjákorti.


örugglega aflgjafa líka

PostPosted: Tue 02. Dec 2008 13:55
by Saxi
Kristjan wrote:Farðu bara í einhverja tölvuverslun og keyptu þér uppfærsluturn. Það er ekkert svo dýrt.


x2