Page 1 of 1

Læti í bænum

PostPosted: Sat 22. Nov 2008 17:43
by Bjarkih
Það þarf nú töluvert til að íslendingar láti svona þannig að fólk er greinilega orðið mjög pirrað.

http://visir.is/article/20081122/FRETTIR01/517727350/-1

Fjölmennur hópur mótmælenda réðst fyrir stundu inn í anddyri lögreglustöðvarinnar við Hlemm og tók sér stöðu þær. Í aðgerðunum var hurð brotin niður og í framhaldinu beitti lögreglan piparúða gegn mótmælendunum sem eru rúmlega 100 samkvæmt heimildum Vísis.

Lögreglumenn hafa nú raðað sér upp gráir fyrir járnum og varna fólki inngöngu í lögreglustöðina.

Að auki hafa rúður verið brotnar í lögreglustöðinni.

Fólkið er að mótmæla handtöku piltsins sem dró Bónusfánann að húni á Alþingishúsinu fyrir tveimur vikum og hefur verið fjallað um hér á Vísi í dag.

PostPosted: Sat 22. Nov 2008 17:55
by Schulii
Ég skil ekkert í lögreglunni að leyfa fólkinu ekki að brjótast inní lögreglustöðina og ná í fanga!! Þvílík ósvífni, Björn Bjarnsason ætti að segja af sér!!

PostPosted: Sat 22. Nov 2008 18:01
by elli
Ætli þetta endi ekki með því að þeir fá noska herinn til að aðstoða sig á næstu vikum. Það virðist vera málið núna að fá noska aðstoð bæði á sviði hernaðar og peninga.

Þó gætu ráðamenn landsins endanlega riðið landanum í rassgatið og fengið breska herinn til að berja okkur niður :!:
Það myndi örugglega vekja kátínu :twisted:

PostPosted: Sat 22. Nov 2008 18:04
by Bjarkih
Það sem ég er nú að spá í er hvaða lög hann braut með þessu sem varðar fangelsisvist :hmm: Svo er helvíti gott sem kom fram á þessu bloggi http://harring.blog.is/blog/harring/entry/721076/
" út með Hauk, inn með Geir".

PostPosted: Sat 22. Nov 2008 18:20
by E55FFFan
elli wrote:Ætli þetta endi ekki með því að þeir fá noska herinn til að aðstoða sig á næstu vikum. Það virðist vera málið núna að fá noska aðstoð bæði á sviði hernaðar og peninga.

Þó gætu ráðamenn landsins endanlega riðið landanum í rassgatið og fengið breska herinn til að berja okkur niður :!:
Það myndi örugglega vekja kátínu :twisted:



já sæll :shock:

PostPosted: Sun 23. Nov 2008 11:03
by Logi
Bjarkih wrote:Það sem ég er nú að spá í er hvaða lög hann braut með þessu sem varðar fangelsisvist :hmm: Svo er helvíti gott sem kom fram á þessu bloggi http://harring.blog.is/blog/harring/entry/721076/
" út með Hauk, inn með Geir".

Eins og komið hefur fram í fréttum er þetta með Bónusfánann ekki ástæðan fyrir handtökunni...

PostPosted: Sun 23. Nov 2008 13:04
by Phoenix

PostPosted: Sun 23. Nov 2008 16:09
by Bjarkih
Logi wrote:
Bjarkih wrote:Það sem ég er nú að spá í er hvaða lög hann braut með þessu sem varðar fangelsisvist :hmm: Svo er helvíti gott sem kom fram á þessu bloggi http://harring.blog.is/blog/harring/entry/721076/
" út með Hauk, inn með Geir".

Eins og komið hefur fram í fréttum er þetta með Bónusfánann ekki ástæðan fyrir handtökunni...


En af hverju voru þeir þá ekki löngu búnir að fara heim til hans og handtaka hann???

PostPosted: Sun 23. Nov 2008 16:15
by íbbi_
ég er ánægður með þetta, sem er slæmt mál, gaman að sjá samtöðuna