bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
maserati quattroporte https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=3316 |
Page 1 of 1 |
Author: | ta [ Sat 08. Nov 2003 23:10 ] |
Post subject: | maserati quattroporte |
hvað varð um þann hvíta sem var hér. var hann ekki 82 model? ég profaði þennann draumabíl þegar hann var til sölu hjá guðfinni. svona bíll var í fyrsta sæti hjá CAR&DRIVER á sínum tíma. listinn var WORST fuel consuption, ![]() |
Author: | Ozeki [ Sun 09. Nov 2003 09:53 ] |
Post subject: | Re: maserati quattroporte |
ta wrote: bíll var í fyrsta sæti hjá
CAR&DRIVER á sínum tíma. listinn var WORST fuel consuption, ![]() hehe, ég man eftir þessum bíl. Fannst hann frekar klossaður í útliti, bæði utan og innan. Ég er ekki viss um hvað varð um hann .. en var sagt að eftir að hann stóð hjá Guðfinni (hann stóð þar í óratíma ekki satt) þá hafi hann verið fluttur út aftur, þar sem engin vildi kaupa þessa græju. Enda hefði það verið peningahýt dauðans að kaupa þetta apparat. Maserati fyrirtækið var búið að vera á vonarvöl svo árum skifti, bjargað úr gjaldþroti af Ítalska ríkinu sem hefur átt meirihlutan í fyrirtækinu þegar þessi bíll var búin til. Gerðin var gamaldags og byggð á gamalli hönnun sem gerði það að Maserati seldist illa á þessum árum. Nú getur manni líkað við ýmislegt í svona bíl engu að síður, t.d. þá hefur mér fundist Citroen CX/XM snilldar bílar að mörgu leyti. (eiga sumt sameiginlegt með Maserati). En þeir endast ílla og það er hroðalegt að gera við þá. Og að kaupa svona Maserati hefði verið eins og að kaupa sérsmíðaðann 4x4 V8 CX/XM með sérsmíðaða bolta/rær/skinnur sem gæti fyllt 17 skókassa og eyddi eins og togari ![]() |
Author: | Ozeki [ Sun 09. Nov 2003 10:19 ] |
Post subject: | |
fann einn svona Maserati til sölu. Þessi er 4,9 lítra vélinni, man ekki hvort þessi hvíti hafi haft samskonar vél, eða minni gerðina 4,2 lítra. |
Author: | Dr. E31 [ Mon 10. Nov 2003 00:02 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | bebecar [ Mon 10. Nov 2003 08:59 ] |
Post subject: | |
Ökukennarinn minn (já ég er komin með mótorhjólapróf ![]() Þessi bíll var orðin hálfgerður haugur og að mínu mati hálf óheppilegur í útliti en mjög spes auðvitað. Ég er sammála því að ég tæki Citroen CX mikið frekar, helst Prestige ![]() Hinsvegar eru til mjög traustir bílar frá Maserati sem að voru nú einmitt valdir einir mestu Bargain bílarnir í EVO og það er Maserati Ghibli 280 hestöfl úr tveggja lítra vél og þessir bílar hafa reynst mjög vel og rekstrarkostnaður er í lægri kanntinum. PS, vill ekki einhver færa þennan þráð í OFF topic svo það verði nú ekki allt vitlaust ![]() |
Author: | Ozeki [ Mon 10. Nov 2003 18:25 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: já ég er komin með mótorhjólapróf
![]() Til hamingju með prófið ! .. ég er einmitt að fara af stað í að taka bifhjóla réttindin. Vantar bara fleiri til að bóklega námskeiðið sé haldið .. geti ekki BMWkrafts meðlimir fjölmennt á eitt svona fyrir áramót .. ![]() ![]() Hvaða hjól á að fá sér ? Maserati Coupe Cambiocorsa er bara svalur ![]() |
Author: | Jss [ Mon 10. Nov 2003 19:12 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með prófið ![]() Maserati bílar eru frekar flottir í allflestum tilfellum, gaman að sjá þá nokkra saman í London ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 10. Nov 2003 23:06 ] |
Post subject: | |
Takk fyrir það strákar. Ozeki, þú getur skráð þig inní Harley umboði - þeir eru að safna saman í námskeið, held það vanti bara einn eða tvo í viðbót til að halda það. Svo borgar sig að drífa í þessu - það á að þyngja þetta eftir áramótin. Fyrir þá sem vilja læra á BMW þá er Njáll Guðlaugsson (held ég) með BMW í kennslu. |
Author: | Hlynzi [ Fri 14. Nov 2003 17:32 ] |
Post subject: | |
bebecar: núnú, er kallinn með bimma, hvernig bimmar eru það ? Ég sá einn í ökukennslu um daginn, 520i e39, það langar mig voðalega á í ökukennslu, enda ég nýorðinn 16 og get farið að læra á bíl eftir jól, ef ég á pening. |
Author: | Jss [ Fri 14. Nov 2003 17:44 ] |
Post subject: | |
Hlynzi wrote: bebecar: núnú, er kallinn með bimma, hvernig bimmar eru það ?
Ég sá einn í ökukennslu um daginn, 520i e39, það langar mig voðalega á í ökukennslu, enda ég nýorðinn 16 og get farið að læra á bíl eftir jól, ef ég á pening. Mótorhjólabimma |
Author: | Hlynzi [ Fri 14. Nov 2003 18:15 ] |
Post subject: | |
Jss wrote: Hlynzi wrote: bebecar: núnú, er kallinn með bimma, hvernig bimmar eru það ? Ég sá einn í ökukennslu um daginn, 520i e39, það langar mig voðalega á í ökukennslu, enda ég nýorðinn 16 og get farið að læra á bíl eftir jól, ef ég á pening. Mótorhjólabimma hehe...það er nú bara hálfur BMW |
Author: | bebecar [ Mon 17. Nov 2003 10:30 ] |
Post subject: | |
Það er nú reyndar mín skoðun og fleiri að BMW séu betri í mótorhjólum en bílum. BMW mótorhjól eru endingarbestu mótorhjól í heiminum, einu hjólin með 7 stafa kílómetramæli - flest önnur hjól er með 5 stafa ![]() BMW hefur líka verið brautryðjandi í ýmissi tækni fyrir mótorhjól, t.d. er gaffalinn upprunalega frá BMW þó þeir séu að kúpla honum út núna, einnig voru þeir fyrstir með ABS og eitthvað fleira. Hann er með BMW F650 (Funduro) |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |