Page 1 of 2
stöð 2

Posted:
Tue 18. Nov 2008 18:46
by Aron Fridrik
fannst þetta frekar sleazy að sitja fyrir utan heimili Guðna Ágústs um nótt og bíða eftir að hann kæmi út..
varla hægt að horfa á fréttirnar þarna

Re: stöð 2

Posted:
Tue 18. Nov 2008 18:57
by elli
Aron Fridrik wrote:fannst þetta frekar sleazy að sitja fyrir utan heimili Guðna Ágústs um nótt og bíða eftir að hann kæmi út..
varla hægt að horfa á fréttirnar þarna

Já ég fann aðeins til með karlinum, klukkan var 06.xx og fréttamaðurinn rétt farinn yfir strikið.
Það er samt langt síðan ég hef svona ný vaknaða sauðkind innan borgarmarkana


Posted:
Tue 18. Nov 2008 19:57
by Einarsss
ha? í hvaða tilgangi var þetta gert?
Re: stöð 2

Posted:
Tue 18. Nov 2008 20:01
by Kristjan
Aron Fridrik wrote:fannst þetta frekar sleazy að sitja fyrir utan heimili Guðna Ágústs um nótt og bíða eftir að hann kæmi út..
varla hægt að horfa á fréttirnar þarna

Já þetta var MJÖG lágkúrulegt
Lágkúra

Posted:
Tue 18. Nov 2008 20:13
by Þórir
Hann virðist vera alger drullupumpa þessi fréttamaður. Mér fannst þetta algjör lágkúra.

Posted:
Tue 18. Nov 2008 20:28
by Einarsss
einarsss wrote:ha? í hvaða tilgangi var þetta gert?


Posted:
Tue 18. Nov 2008 20:30
by Stanky
einarsss wrote:einarsss wrote:ha? í hvaða tilgangi var þetta gert?

Fá svör vegna afsögn af þingi?


Posted:
Tue 18. Nov 2008 20:31
by finnbogi
já nákvæmlega
og hann var búinn að segja að hann gæfi ekki viðtal

Posted:
Tue 18. Nov 2008 22:14
by Svessi

Posted:
Tue 18. Nov 2008 23:42
by SteiniDJ
Guðni var samt alltaf sama ljúfmennið var rólegur og kurteis.

Posted:
Tue 18. Nov 2008 23:56
by Steini B
Ég segi nú bara eins og Geir H. H.
„Hann er algjört fífl þessi maður og dóni“

Posted:
Wed 19. Nov 2008 10:42
by grettir
Menn geta nú ekki bara ætlast til þess, eftir 20 ár á þingi, að enginn spyrji spurninga þegar þú hættir skyndilega og byrjar að þiggja mörg hundruð þúsund í eftirlaun löngu áður en eftirlaunaaldri er náð? Er það?
Eða erum við orðin svo gegnumsýrð af spillingu að okkur finnst allt í lagi að menn þurfi ekki að svara spurningum af því að þeir voru búnir að senda eitt skitið bréf?
Og ég vorkenni honum ekki neitt að vera truflaður klukkan rúmlega sex með ferðatösku á leiðinni til Tenerife. Ég vildi að ég væri á leiðinni til Tenerife.

Posted:
Wed 19. Nov 2008 11:23
by basten
Mér finnst þetta mjög mikil ókurteisi af Stöð 2 og verið að reyna að búa til frétt vegna þess að Guðni tjáði sig ekki, en hann var einmitt búinn að gefa það út að hann myndi ekki tjá sig um málið á næstu dögum og ætlaði sér í frí.
Í fréttunum kvöldið áður fór sami fréttamaður og hringdi dyrabjöllunni hjá Guðna og ræddi við konu hans sem sagði að Guðni veitti ekki viðtöl. Þetta var sýnt í fréttum. Hefðu frekar bara getað sagt að ekki hefði náðst í Guðna. Þarna var klárlega verið að reyna að búa til frétt úr einhverju sem var vitað; að Guðni veitti ekki viðtal.
Búinn að fá ógeð á fréttastofu Stöðvar 2 og þeirra fréttaflutningi síðustu daga sem einkennist af æsingi og að reyna að búa til meiri ólgu í þjóðfélaginu. Sem dæmi þegar því var haldið fram að Guðni hækkaði í launum við að fara af þingi. Þurftu svo að éta það ofan í sig daginn eftir.
Stöð 2 er komin á sama stað og klósettpappírinn DV.

Posted:
Wed 19. Nov 2008 18:33
by ömmudriver
grettir wrote:Menn geta nú ekki bara ætlast til þess, eftir 20 ár á þingi, að enginn spyrji spurninga þegar þú hættir skyndilega og byrjar að þiggja mörg hundruð þúsund í eftirlaun löngu áður en eftirlaunaaldri er náð? Er það?
Eða erum við orðin svo gegnumsýrð af spillingu að okkur finnst allt í lagi að menn þurfi ekki að svara spurningum af því að þeir voru búnir að senda eitt skitið bréf?
Og ég vorkenni honum ekki neitt að vera truflaður klukkan rúmlega sex með ferðatösku á leiðinni til Tenerife. Ég vildi að ég væri á leiðinni til Tenerife.
Hey, herra neikvæður
Ég er að fara til Tenerife eftir fjórar vikur


Posted:
Wed 19. Nov 2008 19:01
by jon mar
Eiga menn ekki rétt á að fara á eftirlaun þegar samanlagður starfsaldur og lífaldur nær í kringum 90 ár??? Eitthvað heyrt um svoleiðis í gegnum tíðina en kann ekki frekari deili á því.