bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Þekkir einhver til með flutning á bíl til Danmerkur?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=3128
Page 1 of 2

Author:  bebecar [ Wed 22. Oct 2003 09:22 ]
Post subject:  Þekkir einhver til með flutning á bíl til Danmerkur?

Ég þarf aðeins að forvitnast.

Veit einhver hér hvernig því er háttað að flytja bíl inn til Danmerkur frá Íslandi eða Þýskalandi í tengslum við nám þar? Ég veit að tryggingar eru ódýrar, bensínið er svipað og hér heima og það virðist vera mjög ódýrt að versla við BMW specialisten t.d.

Hvað fleira getið þið sagt mér?

Author:  Kull [ Wed 22. Oct 2003 09:29 ]
Post subject: 

Eru ekki mjög háir tollar á bílum í Danmörku, mig minnir það?

Author:  bebecar [ Wed 22. Oct 2003 09:36 ]
Post subject: 

Jú - þeir eru mjög háir.

Maður er bara að spá ef að fólk telur sig þurfa að nota bíl þarna úti á meðan það er í námi, þá borgar það líklega tollana á ákveðnu tímabili og fær þá svo endurgreidda þegar það flytur heim. Miðað við það borgar sig líklega að kaupa bíl hér heima.

En svo er spurning hvort að það sé ekki hægt að kaupa þá bíl í þýskalandi, flytja inn til Danmerkur og koma svo með hann til Íslands??? En þá væntanlega borgar maður bara tollinn hér heima eftir að maður fær endurgreitt frá Danmörk.

Author:  gstuning [ Wed 22. Oct 2003 10:09 ]
Post subject: 

Ef planið er að búa í Danmörku þá held ég að best sé einfaldlega að kaupa bíl í danmörku og selja hann áður en komið er heim,

Það er einfaldast

En gáfulegast er að kaupa bíll 2mán áður en er farið til íslands aftur og þá kaupa hann í þýskalandi, vera á honum í Danmark, ef þess þarf þá að gera hann upp með ódýra specialisten sér við hlið, svo koma með hann heim tip top.

Author:  bebecar [ Wed 22. Oct 2003 10:13 ]
Post subject: 

En ef maður flytur t.d. bíl út héðann til DK og borgar tolla og vörugjöld þar, fær maður þá ekki endurgreidd gjöldin af bílnum hér heima ef maður skyldi ekki flytja hann tilbaka?

Author:  gstuning [ Wed 22. Oct 2003 10:17 ]
Post subject: 

Það veit ég ekki um,
En ef þú færð það 100% staðfest þá áttu eftir að fíla að halda bílnum við fyrir lítinn pening,

kemur kannski með 327i tilbaka

Author:  bebecar [ Wed 22. Oct 2003 12:36 ]
Post subject: 

Ætli maður myndi ekki reyna að koma með Alpina tilbaka ef maður væri á förum.

En því miður eru vínir mínir ekki þannig þenkjandi (fyrir utan hann GIZ sem er hér á spjallinu).

Author:  Jss [ Wed 22. Oct 2003 12:37 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Ætli maður myndi ekki reyna að koma með Alpina tilbaka ef maður væri á förum.

En því miður eru vínir mínir ekki þannig þenkjandi (fyrir utan hann GIZ sem er hér á spjallinu).


Ertu með einhverja sérstaka Alpina týpu í huga?

Efast reyndar ekki um það en bara spurning hversu margar týpur koma til greina hjá þér. :wink:

Author:  bebecar [ Wed 22. Oct 2003 12:40 ]
Post subject: 

Þær koma næstum allar til greina þannig að það er mjög auðvelt...

Mér finnst B10 E34 og E36 B3 t.d. sérlega glæsilegir...B11/B12 kemur líka til greina, B11 bílarnir eru á hlægilegum verðum.

Author:  Jss [ Wed 22. Oct 2003 12:41 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Þær koma næstum allar til greina þannig að það er mjög auðvelt...

Mér finnst B10 E34 og E36 B3 t.d. sérlega glæsilegir...B11/B12 kemur líka til greina, B11 bílarnir eru á hlægilegum verðum.


En B8 :twisted:

Author:  bebecar [ Wed 22. Oct 2003 12:42 ]
Post subject: 

hann er nú líklega efstur á listanum ásamt B7/S en þeir eru líka dýrastir...

Ég myndi vel sætta mig við B3 eða B10 (non turbo).

Author:  bjahja [ Wed 22. Oct 2003 14:34 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Þær koma næstum allar til greina þannig að það er mjög auðvelt...

Mér finnst B10 E34 og E36 B3 t.d. sérlega glæsilegir...B11/B12 kemur líka til greina, B11 bílarnir eru á hlægilegum verðum.

Þú ert allur að koma í "nýju" bílana.......ánægður með þig :wink:

Author:  bebecar [ Wed 22. Oct 2003 14:57 ]
Post subject: 

Ja... ofar fer ég helst ekki. Ég gæti samt alveg hugsað mér "réttan" E39 en YNGRA FER ÉG EKKI :wink:

Author:  bergurben [ Wed 22. Oct 2003 15:47 ]
Post subject: 

Sko..
Ef þú ætlar að flytja inn bíl og vera fyrst með hann í DK þá væri best að kaupa hann í Þýskalandi þegar þú átt innan við 12 mánuði eftir af náminu í DK. Ef þessi tími er lengri þá þarftu að greiða Danska ríkinu 180% toll!!!!

Author:  bebecar [ Wed 22. Oct 2003 15:57 ]
Post subject: 

Það er ekkert annað! 180% toll Þetta er glæsilegt...

Maður veit þá allavega við hvað maður á að miða :wink:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/