Page 1 of 3

Overpriced bílar á sölum..

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 02:16
by ValliFudd
Tók smá bílasölurúnt áðan og rakst á sóðalegar tölur í rúðunum á bílum hjá Heklu :shock:

T.d. þetta :lol:
http://www.bilathing.is/Forsida/Nanar/~/deviceid/34956

Búinn að vera að leita mér að station bíl í ódýrari kantinum og dem, búinn að rekast á mjög margar furðulegar tölur :?

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 02:56
by birkire
Þessar mözdur eru BARA góðir bílar.. :D En ég held að enginn með réttu viti noti hálfa millu í svona :lol:

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 03:00
by íbbi_
mér finn st 490þús alveg í lagi fyrir bíl sem hefur veri hugsað sona vel um

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 03:40
by Brútus
íbbi_ wrote:mér finn st 490þús alveg í lagi fyrir bíl sem hefur veri hugsað sona vel um


Held að þetta sé bara einu núlli of mikið í þessari auglýsingu. Innsláttarvilla væntanlega.
Hann má kallast heppinn ef að hann fær 49.000 þúsund fyrir þetta flak.

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 07:56
by bebecar
Þetta eru eðal bílar en meira að segja þessi prís þætti hár í Danmörku fyrir svona bíl og þar er 180% skattur á bíla :lol:

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 08:34
by Danni
Líka næstum allir E30 á sölu

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 10:09
by íbbi_
Brútus wrote:
íbbi_ wrote:mér finn st 490þús alveg í lagi fyrir bíl sem hefur veri hugsað sona vel um


Held að þetta sé bara einu núlli of mikið í þessari auglýsingu. Innsláttarvilla væntanlega.
Hann má kallast heppinn ef að hann fær 49.000 þúsund fyrir þetta flak.


ert þú hættur að bulla og farinn að segja okkur til um verð á bílum? meirasegja leiðrétta bílasala um hvað sé í lagi verð og ekki? lol

það sést augljóslega að þarna er um eitthvað eintak að ræða.. ekinn 78k og virðist lýta algerlega orginal út, ekkert óeðlilegt að borga 490k fyrir þannig eintak af bíl, ef þetta væri eitthvað merkilegt apparat væri verðið margfallt

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 10:38
by srr
Ákvað af gamni að fletta honum upp í umferðarskrá...

Einn eigandi frá '87-'08 þegar Hekla eignast hann.
Alltaf í skoðun einu sinni á ári, lagað strax það sem var að og beint í endurskoðun.

Þetta er klárlega bíll sem hefur verið hugsað vel um.

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 11:15
by jens
Þetta þóttu mjög flottir bílar á sínum tíma, klárlega eintak fyrir safnara.

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 12:06
by ömmudriver
Danni wrote:Líka næstum allir E30 á sölu


Þeir eru þá allaveganna í lagi og eitthvað varið í þá :lol: :wink:

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 12:22
by UnnarÓ
Mér finnst þessi bíll nokkuð spennandi :oops:
Væri allavega miklu frekar til í að kaupa Mözduna á 490 þús heldur en t.d. þennan:
http://www.bilasolur.is/Main.asp?show=C ... _ID=102664 :wink:

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 12:44
by Dóri-
Djöfull eruði bilaðir 21 árs gömul MAZDA, þó hún væri ekin 0km þá myndi það ekki réttlæta verðið. Þetta er EKKI safngripur!

Edit: best að bæta einhverjum brosköllum svo einhver fari ekki að hrauna yfir mann :lol: :shock: :o :D :)

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 13:04
by basten
Dóri- wrote:Djöfull eruði bilaðir 21 árs gömul MAZDA, þó hún væri ekin 0km þá myndi það ekki réttlæta verðið. Þetta er EKKI safngripur!

Edit: best að bæta einhverjum brosköllum svo einhver fari ekki að hrauna yfir mann :lol: :shock: :o :D :)


Þetta er ekki safngripur akkúrat núna, en því miður hefur mörgum merkilegum bílum verið hent þegar þeir eru á versta aldri, þ.e. of gamlir til þess að vera spennandi en ekki nógu gamlir til þess að vera safngripir.

Gæti alveg trúað því að eftir nokkur ár verði svona bíll merkilegur.

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 13:24
by Dóri-
basten wrote:
Dóri- wrote:Djöfull eruði bilaðir 21 árs gömul MAZDA, þó hún væri ekin 0km þá myndi það ekki réttlæta verðið. Þetta er EKKI safngripur!

Edit: best að bæta einhverjum brosköllum svo einhver fari ekki að hrauna yfir mann :lol: :shock: :o :D :)


Þetta er ekki safngripur akkúrat núna, en því miður hefur mörgum merkilegum bílum verið hent þegar þeir eru á versta aldri, þ.e. of gamlir til þess að vera spennandi en ekki nógu gamlir til þess að vera safngripir.

Gæti alveg trúað því að eftir nokkur ár verði svona bíll merkilegur.


já þetta er kannski rétt, ég ætti að skella mér niðrí toyota og skella mér á yaris og geyma hann í 20 ár. Græði vonandi töluvert.

PostPosted: Mon 11. Aug 2008 13:28
by íbbi_
það er enginn að tala um það... þetta er líka ekki nývirði bílsins,

þótt þú kunnir ekki að meta þetta(frekar en ég) þá er til fólk sem vill eignast sona vel með farna bíla,

þessar mözdur voru alveg einar af algengari bifreiðum landsins áður fyrr, og núna sér maður varla sona bíl