bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Dauði fíkla algengari en ég hélt..
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29628
Page 1 of 1

Author:  ValliFudd [ Wed 21. May 2008 13:15 ]
Post subject:  Dauði fíkla algengari en ég hélt..

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/05/21/um_20_fiklar_latist_fra_bornum/

Quote:
Um tuttugu fíklar, sem Barnavernd Reykjavíkur hefur haft afskipti af, hafa látist frá börnum sínum síðustu tólf mánuði. Nær eingöngu er um að ræða mæður og ávallt forsjárforeldri, þó börnin hafi í einhverjum tilvikum verið í fóstri.

Og þetta er bara Barnavernd Reykjavíkur. Ekki hafði ég hugmynd um að þetta væri svona algengt.. 20 fíklar deyja á síðasta ári á meðan þeir voru með forræði yfir börnum sínum.. Maður heyrir einu sinni til tvisvar á ári af fíkli sem overdosar en það vantar greinilega meiri umfjöllun um þessi mál finnst mér :shock:

Hvað ætli séu margir fíklar sem deyji á ári, utan þeirra sem eru með forræði yfir börnum sínum :?

Author:  Daníel [ Wed 21. May 2008 13:23 ]
Post subject: 

Ég átti ekki orð þegar ég las þessa frétt. Og hvernig ætli það sé með börnin sem enda í forsjá feðra sem eru kannski ekki gæfulegri, hver er framtíð þeirra?

Author:  Dohc [ Wed 21. May 2008 17:07 ]
Post subject: 

bekkjarsystir mín var að deyja úr ofneyslu að mér skilst

hún átti 2 stráka held ég.

Author:  srr [ Wed 21. May 2008 17:10 ]
Post subject: 

KLyX wrote:
Ég átti ekki orð þegar ég las þessa frétt. Og hvernig ætli það sé með börnin sem enda í forsjá feðra sem eru kannski ekki gæfulegri, hver er framtíð þeirra?

Barnarverndaryfirvöld skoða held ég aðstæður feðranna áður.

Author:  ///M [ Wed 21. May 2008 17:23 ]
Post subject: 

srr wrote:
KLyX wrote:
Ég átti ekki orð þegar ég las þessa frétt. Og hvernig ætli það sé með börnin sem enda í forsjá feðra sem eru kannski ekki gæfulegri, hver er framtíð þeirra?

Barnarverndaryfirvöld skoða held ég aðstæður feðranna áður.

lestu fréttina..

Author:  BirkirB [ Wed 21. May 2008 17:34 ]
Post subject: 

Dohc wrote:
bekkjarsystir mín var að deyja úr ofneyslu að mér skilst

hún átti 2 stráka held ég.

Rétt hjá þér...

Quote:
Í Morgunblaðinu í dag fjallar Ingibjörg S. Benediktsdóttir í aðsendri grein um systurdóttur sína, sem lést vegna ofnotkunar fíkniefna nýverið. Í greininni kemur fram að afi og amma tveggja drengja hennar, hafi fengið þá í tímabundið fóstur, en við fráfall hennar hafi feður barnanna sjálfkrafa fengið forræði yfir þeim.

Author:  Dohc [ Wed 21. May 2008 18:00 ]
Post subject: 

Jarðsprengja wrote:

Já..svakalegt að heyra þetta,
pabbi hennar var kennari minn/okkar í grunnskóla
og svo vorum við í sömu sveit fyrir norðan. :?

Author:  Alpina [ Wed 21. May 2008 18:21 ]
Post subject: 

Dohc wrote:
Já..svakalegt að heyra þetta,
pabbi hennar var kennari minn/okkar í grunnskóla
og svo vorum við í sömu sveit fyrir norðan. :?

smá OT hvar

Author:  BirkirB [ Wed 21. May 2008 19:10 ]
Post subject: 

Dohc wrote:
Jarðsprengja wrote:
Dohc wrote:
bekkjarsystir mín var að deyja úr ofneyslu að mér skilst

hún átti 2 stráka held ég.

Rétt hjá þér...

Quote:
Í Morgunblaðinu í dag fjallar Ingibjörg S. Benediktsdóttir í aðsendri grein um systurdóttur sína, sem lést vegna ofnotkunar fíkniefna nýverið. Í greininni kemur fram að afi og amma tveggja drengja hennar, hafi fengið þá í tímabundið fóstur, en við fráfall hennar hafi feður barnanna sjálfkrafa fengið forræði yfir þeim.

Já..svakalegt að heyra þetta,
pabbi hennar var kennari minn/okkar í grunnskóla
og svo vorum við í sömu sveit fyrir norðan. :?

Þau kenndu mér bæði og þessir strákar voru oft með þeim í skólanum. Mjög fínt fólk. Ömurlegt að þetta hafi skeð fyrir þau.

Alpina: Líklega einhversstaðar hjá Húsavík :wink: (sem er reyndar sveit útaf fyrir sig :roll: )

Author:  Dohc [ Wed 21. May 2008 19:44 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Dohc wrote:
Já..svakalegt að heyra þetta,
pabbi hennar var kennari minn/okkar í grunnskóla
og svo vorum við í sömu sveit fyrir norðan. :?

smá OT hvar

á Tjörnesi.. sirka 15-17km fyrir utan húsavík.

Author:  Vargur [ Wed 21. May 2008 22:13 ]
Post subject: 

Þessi grein í Mbl er reyndar frekar villandi. Það er ekki nema brot af þessu vegna ofneyslu lyfja þó allir þessir einstaklingar hafi átt við lyfja eða fíkniefnavanda að stríða. Í þessum hóp er meðal annars fólk sem hefur látist af slysförum og framið sjálfsmorð vegna geðrænna vandamála.
Mbl snýr út úr þessu til að gera fréttina meira spennandi.

Author:  Dohc [ Wed 21. May 2008 22:19 ]
Post subject: 

Vargur wrote:
Þessi grein í Mbl er reyndar frekar villandi. Það er ekki nema brot af þessu vegna ofneyslu lyfja þó allir þessir einstaklingar hafi átt við lyfja eða fíkniefnavanda að stríða. Í þessum hóp er meðal annars fólk sem hefur látist af slysförum og framið sjálfsmorð vegna geðrænna vandamála.
Mbl snýr út úr þessu til að gera fréttina meira spennandi.

bara einsog fjölmiðlar í mörgum tilfellum.

Author:  BjarkiHS [ Wed 21. May 2008 22:43 ]
Post subject: 

Dohc wrote:
Alpina wrote:
Dohc wrote:
Já..svakalegt að heyra þetta,
pabbi hennar var kennari minn/okkar í grunnskóla
og svo vorum við í sömu sveit fyrir norðan. :?

smá OT hvar

á Tjörnesi.. sirka 15-17km fyrir utan húsavík.

Ég var á tjörnesinu flest öll sumur sem krakki ;D

Author:  Dohc [ Wed 21. May 2008 23:24 ]
Post subject: 

BjarkiHS wrote:
Dohc wrote:
Alpina wrote:
Dohc wrote:
Já..svakalegt að heyra þetta,
pabbi hennar var kennari minn/okkar í grunnskóla
og svo vorum við í sömu sveit fyrir norðan. :?

smá OT hvar

á Tjörnesi.. sirka 15-17km fyrir utan húsavík.

Ég var á tjörnesinu flest öll sumur sem krakki ;D

hvar á Tjörnesinu varstu og hvaða ár voru það?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/