bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Flugvika á Reykjavíkurflugvelli
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29576
Page 1 of 1

Author:  _Halli_ [ Mon 19. May 2008 01:50 ]
Post subject:  Flugvika á Reykjavíkurflugvelli

Vildi bara benda öllum á Flugvikuna, örugglega margir sem geta fundið eitthvað þarna við sitt hæfi til að skoða!

Ég ætla allavega að kíkja á nokkra atburði þarna, og auðvitað á flugdaginn sjálfan á laugardag. Fínt að taka smá rúnt þarna áður en Eurovision brjálæðið byrjar!

Image

Quote:
Mánudagur 19. maí 2008:

Flugsagan og frumkvöðlarnir kl. 20:00. Opinn fundur með 15 af elstu flughetjum Íslands sem munu segja flugsögu Íslands eins og þeir lifðu hana. Segja frá ævintýrunum, atvikunum og einstaklingunum sem mótuðu flugsöguna. Fundurinn verður í Skýli 25 í Fluggörðum, húsnæði Flugfélagsins Geirfugls, á Reykjavíkurflugvelli og munu flugvélar sem tengjast flugsögunni verða til sýnis við þetta tækifæri. Ottó Tynes mun opna fundinn en Ómar Ragnarsson mun stýra umræðum.

Þriðjudagur 20. maí 2008:

Sjúkra- og björgunarflug kl. 17:00-19:00. Opið hús og umræður um mikilvægi sjúkra- og björgunarflugs í skýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli. Vélar og búnaður sýndur og sagt frá starfseminni.

Miðvikudagur 21. maí 2008:

Flugstoðir á Reykjavíkurflugvelli kl. 17:00-19:00. Opið hús hjá Flugstoðum. Boðið verður upp á leiðsögn í Flugstjórnarmiðstöðinni og turnhermi sem notaður er við þjálfun flugumferðarstjóra. Auk þess verður verkstæði og slökkvilið opið gestum og gangandi.

Flugþekkingin – sérþekkingin kl. 20:00. Fyrirlestrar um þróunar- og rannsóknarstarf Íslendinga á sviði flugsins, í húsnæði Skýli 25 í Fluggörðum á Reykjavíkurflugvelli. Fyrirlesarar frá Flugskólum, Háskólum og fleiri aðilum. M.a. fjallað um nýlega keyptan flughermi, hljóðlausar flugvélar framtíðarinnar og rakettusmíði.

Fimmtudagur 22. maí 2008:

Samgöngur þjóðar lífsæð borgar kl. 8:30-10:00. Morgunmálþing í Skýli 25 í Fluggörðum á Reykjavíkurflugvelli.

Grasrótin kl. 17:00-19:00. Opin hús hjá grasrótinni. Flugklúbbar á höfuðborgarsvæðinu opna dyrnar að sinni aðstöðu og sýna það sem er að gerast hjá þeim í einkaflugi og fisflugi.

Föstudagur 23. maí 2008:

Vígsla snertilendingabrautar á Sandskeiði kl. 14:00.

Viðskipta-, þyrlu- og útsýnisflug kl. 17:00-19:00. Opið hús hjá aðilum sem bjóða upp á viðskipta-, þyrlu og útsýnisflug kl. 17:00-19:00. Nánar um tíma og staðsetningar

Laugardagur 24. maí 2008:

Á svæði Flugþjónustunnar við Hótel Loftleiðir verða sýndar flugvélar af öllum stærðum og gerðum en á himni verður boðið upp á flugsýningu. Á meðal þess sem er á dagskrá Flugdagsins; Mirage þotur franska hersins, fallhlífarstökk, flugmódelflug, listflug, hópflug, lágflug, þyrluflug, fisflug, paramótorflug, sýningaratriði frá Landhelgisgæslunni, auk annarra atriða sem verða auglýst betur þegar nær dregur.

Sunnudagur 18. maí 2008:

Opið hús í Fluggörðum á Reykjavíkurflugvelli. Aðgangur inn á svæðið er frá bílastæðinu til móts við Íslenska erfðagreiningu og frá félagsheimili Félags íslenskra einkaflugmanna fyrir neðan flugfrakt Flugfélags Íslands.

Í Fluggörðum er lang mesti fjöldi flugvéla á Íslandi, bæði gamlar og nýjar, af öllum stærðum og gerðum. Flugskólar, heimasmíði og ýmiskonar þjónusta fyrir flug er á svæðinu.

Fólk á öllum aldri er hvatt til að nota tækifærið og heimsækja Fluggarða til að skoða flugvélarnar og aðstöðuna.



Sjá http://www.flugmal.is

Author:  Aron Andrew [ Mon 19. May 2008 01:56 ]
Post subject: 

Spurning um að rölta þarna yfir eftir útskriftina á laugardaginn :lol:

Author:  freysi [ Mon 19. May 2008 02:36 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
Spurning um að rölta þarna yfir eftir útskriftina á laugardaginn :lol:

8) 8) 8) 8) 8)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/