bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

23+ ??
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29476
Page 1 of 2

Author:  Bjarkih [ Wed 14. May 2008 17:33 ]
Post subject:  23+ ??

Ég sem hélt alltaf að fólk væri sjáfráða 18 ára gamalt :hmm:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/05/14/yngri_en_23_ara_bannad_ad_tjalda_nema_i_fylgd_med_f/

Quote:
Yngri en 23 ára bannað að tjalda nema í fylgd með fullorðnum

Á fundi í menningarmála- og safnanefnd Akraneskaupstaðar í liðinni viku var rætt um það ástand sem skapast hefur á tjaldstæðum bæjarins við Kalmansvík undanfarin ár þegar bæjarhátíðin Írskir dagar hafa farið fram. Nefndin afgreiddi málið með því að samþykkja samhljóða bókun þess efnis að tjaldstæðin verði eingöngu fyrir 23 ára og eldri þessa umræddu helgi, nema viðkomandi séu í fylgd með fullorðnum.

Á vef Skessuhorns kemur fram að segja má að hér sé farin svokölluð Akureyrarleið, en eins og kunnugt er ákváðu bæjaryfirvöld á Akureyri að setja sambærileg aldurstakmörk á tjaldstæði bæjarins um verslunarmannahelgina í fyrra, þegar hátíðin Ein með öllu fór þar fram.

Bókun nefndarinnar var svohljóðandi: „Menningarmála- og safnanefnd beinir því til bæjarráðs að tjaldsstæði bæjarins við Kalmansvík verði auglýst sem fjölskyldutjaldstæði á Írskum dögum 2008. Aðgangur verði takmarkaður við fjölskyldufólk eða einstaklinga 23 ára eða eldri.”

Author:  SteiniDJ [ Wed 14. May 2008 17:36 ]
Post subject: 

Sjálfræði er bara hugtak með enga meiningu. :) Þetta er náttúrulega algjör steypa, þið munið hvernig þetta fór á Akureyri í fyrra, mætti eitthver?

Author:  pallorri [ Wed 14. May 2008 18:23 ]
Post subject: 

Hvenær telst maður fullorðinn?
Hvenær nær maður þeim þroska að mega vera sjálfstæður og frjáls
einstaklingur sem getur ákveðið sjálfur sín eigin einkamál?

Aðeins of fáránlegt

Author:  jens [ Wed 14. May 2008 19:22 ]
Post subject: 

Mikið er ég ánægður með menningarmála og safnanefnd Akranesskaupstaðar, gæti ekki verið meira sammála.

Author:  Lindemann [ Wed 14. May 2008 19:31 ]
Post subject: 

semsagt,,,,,,maður er 22. ára, þarf að vera í fylgd fullorðins einstaklings, sem er einstaklingur sem hefur náð 18 ára aldri og er því sjálfráða.

Spurning hvort maður geti fengið smávegis af þessari sýru sem bæjarstjórn akraness er á þessa dagana(sama og var í gangi á akureyri í fyrra). En það virðist vera eina leiðin til að geta hlegið að þessu gríni,,,,,,,,,,,,,,,,,eða er þetta ekki örugglega grín?? :?



Ekki að ég sé eitthvað á leiðinni að tjalda á akranesi, finnst þetta bara heimskt.

Author:  JOGA [ Wed 14. May 2008 19:44 ]
Post subject: 

Skil þetta svo sem ágætlega en ég var orðinn pabbi um tvítugt og hefði ekki verið mjög sáttur við að mega ekki tjalda e-h staðar með fjölskylduna :lol:

Author:  Lindemann [ Wed 14. May 2008 20:02 ]
Post subject: 

IMO væri betri kostur að loka tjaldsvæðum en að mismuna fólki.

Eitthvað væri sagt ef bæjarstjórn hefði tilkynnt að í sumar yrði svertingjum, gyðingum og hommum meinaður aðgangur að tjaldsvæðinu.........

Author:  arnibjorn [ Wed 14. May 2008 20:04 ]
Post subject: 

Lindemann wrote:
IMO væri betri kostur að loka tjaldsvæðum en að mismuna fólki.

Eitthvað væri sagt ef bæjarstjórn hefði tilkynnt að í sumar yrði svertingjum, gyðingum og hommum meinaður aðgangur að tjaldsvæðinu.........


Hvaða bull er þetta í þér...

Það er ástæða fyrir að ungu fólki er bannað að tjalda þarna!

Ef að ég væri að fara á írska daga þá væri það bara til þess að drekka mig subbulega fullan og lenda í einhverju rugli... :lol:

Þeir vilja ekki hafa hátíðina þannig... þá er það bara bara þeirra mál.

Ekkert að þessu finnst mér.

Author:  Astijons [ Wed 14. May 2008 20:16 ]
Post subject: 

good times good times...

ég skil ekki svona hátiðir... tilhverja á þetta eiginlega að höfða?

verður maður bara að verða þrítugur til að fara á hátiðir?
ég hef farið á írska daga og sjoppurnar þarna eru TROÐFULLAR af unglingum að kaupa að éta, drekka og bland... ég sé bara ekki fyrir mig að fullorðið folk fari í tjaldútileigu og kaupi allan timan bara sjoppufæði...

það verða allar atvinnugreinar að hafa einhvern tima yfir árið til að græða?

eða er akranes kannski stór bær? ég man það ekki ... var svo blindfullur og eyddi öllum peningnum á barnum...
ég sé heldur ekki að eitthvað fjölskyldufólk fari og eyði öllum peningum á barnum...

HVAÐ VEIT ÉG UM ÞETTA?!?! ég vill nátturlega bara vera ógeðslegi gaurinn á fyllerium

kannski vilja þessir sveitadurgar bara hafa írska daga sem kósy kvöld...
(ég var að tala samt við enn írskan á laugardaginn og hann sagði "There is more fun in a irish funural then there is in a british wedding")

svo hvort er ég að misskilja "írska daga" eða þeir?

Author:  Sprangus [ Wed 14. May 2008 20:32 ]
Post subject: 

Þetta er fjölskylduhátið. Ættluð fólki með krakka, svo þeir vilja ekki fá unglingana sem eru með hávaða frameftir nóttu þartil þeir detta niður áfengisdauðir undir morgun..

Author:  Lindemann [ Wed 14. May 2008 20:43 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
Lindemann wrote:
IMO væri betri kostur að loka tjaldsvæðum en að mismuna fólki.

Eitthvað væri sagt ef bæjarstjórn hefði tilkynnt að í sumar yrði svertingjum, gyðingum og hommum meinaður aðgangur að tjaldsvæðinu.........


Hvaða bull er þetta í þér...

Það er ástæða fyrir að ungu fólki er bannað að tjalda þarna!

Ef að ég væri að fara á írska daga þá væri það bara til þess að drekka mig subbulega fullan og lenda í einhverju rugli... :lol:

Þeir vilja ekki hafa hátíðina þannig... þá er það bara bara þeirra mál.

Ekkert að þessu finnst mér.


ég hef aldrei farið á írska daga svo ég veit lítið um hvað ég myndi gera þar.....

málið er bara að þeir eiga að láta hátíðina höfða til rétta hópsins og passa svo að hún fari ekki úr böndunum. Ef þeir geta það ekki þá eiga þeir ekki að halda hátíðina.
Ef það hefði verið hópur af gyðingum með ólæti þarna í fyrra, hefði þá þá verið rétt að banna þá núna afþví að þeir vilja ekki hafa hátíðina svoleiðis???

það er bara þannig að þar sem margt fólk safnast saman eru mjög miklar líkur á því að einhverjir svartir sauðir séu þar inná milli. Ég hef unnið bæði á hóteli og tjaldsvæði og mín reynsla var ekki á þann veg að ungt fólk væri verra en annað undir áhrifum áfengis.

T.d. á öllum þeim ættarmótum sem ég hef unnið við man ég aldrei eftir unglingum með læti, en oft gat eldra fólk verið til stórra vandræða.

Author:  IceDev [ Wed 14. May 2008 20:46 ]
Post subject: 

Plíííísss...að ungt fólk sé til fyrirmyndar með áfengi....


Sjáðu bíladaga sem dæmi..

Ég er sjálfur partur af þessu "unga fólki" og yfirleitt helst það í hendur að fólk yngra og á mínum aldri eru bara með bölvuð læti á tjaldsvæðum. Oft með gítarglamr og píkuskræki, yndislegt bara hreint

Ég er meira fyrir að slappa af með bjór, jafnvel detta í það en ég er samt ekki öskrandi og hagandi mér eins og fáviti, eins og virðist vera aðalsportið á svona hátíðum

Author:  jens [ Wed 14. May 2008 20:48 ]
Post subject: 

Þarna hittir þú naglann á höfuðið, þetta er fjölskylduhátið og það er ábyrgðarhlutur að halda hátið það sem mikil fjöldi unglinga undir áfengis aldri er að neita áfengis í miklu mæli. Þetta er alls ekkert nýtt, man ekki betur en að 20 ára reglan hafi verið í tugi ára í húsafelli. Færeyskir dagar verða ekki haldnir í Grundarfirði í ár svo þessar bæjarhátíðar hafa ekki verið til lukku fyrir alla.

Author:  Lindemann [ Wed 14. May 2008 20:53 ]
Post subject: 

Ekki misskilja samt að ég skil alveg eftir hverju er verið að leita með þessu. Fjölskylduhátíð á þetta jú að vera.

Mér finnst þetta bara ekki rétta aðferðin til að ná því markmiði sem þeir ætla sér.

Author:  sh4rk [ Wed 14. May 2008 21:08 ]
Post subject: 

Hefur einhver ykkar farið á Írska daga núna síðustu ár???
Það er ekki furða þó að það sé komið 23+ á tjaldsvæðin þarna.
Í fyrrasumar var bara rugl með fólk þarna geðveikt mikið af fólki og mjög stór hluti af því bara að leita sér af slagsmálum

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/