Page 1 of 2

Gólfhiti. Flotun

PostPosted: Thu 08. May 2008 22:48
by Djofullinn
Veit einhver ca. hvað svona dæmi kostar í fokheldu 211fm parhúsi með öllu efni, búnaði og vinnu.
Bara svona gróft skotið.


Maður er alltaf í einhverjum húsnæðispælingum og ég er alltaf smá spenntur fyrir því að kaupa fokhelt eða tilbúið til innréttinga.
Þannig að ég er svona að reyna að gera mér grein fyrir því hvað hver hluti kostar.

PostPosted: Thu 08. May 2008 23:01
by Los Atlos
Ég veit ekkert um flotunina og það allt en málaravinnan gæti endað einhverstaðar á bilinu 800.000 - 1.000.000. jafnvel ennþá meira ef að þetta eru einhverjir helvítis slugsar. mæli með að þú spyrjist fyrir hjá mönnum sem þekkja til um hverjir eru fljótastir.

PostPosted: Thu 08. May 2008 23:05
by Djofullinn
Já ég er reyndar með málunina á hreinu þar sem tengdó er málarameistari ;)

Gólfitinn og flotunin er eiginlega það eina sem ég hef ekki hugmynd um hvað kostar.

PostPosted: Thu 08. May 2008 23:18
by totihs
Ég er ekki alveg með verðið á hreinu og svo fer þetta líka eftir því hversu mikið þarf að flota, þ.e.a.s. þykkt.

Svo er líka flotmúrinn dýr.

Svo er fólk oft að missa sig í þessu flot veseni, oft má alveg bara steypa og fá múrara til að pússa.

PostPosted: Thu 08. May 2008 23:42
by Saxi
Er ekki málið að fá bara tilboð í þetta?

t.d http://www.flotmur.is/?c=verktilbod

PostPosted: Thu 08. May 2008 23:49
by Djofullinn
Saxi wrote:Er ekki málið að fá bara tilboð í þetta?

t.d http://www.flotmur.is/?c=verktilbod

Jú ekki spurning. Er bara svo óþolinmóður að mig langaði að fá svar núna :lol:

PostPosted: Thu 08. May 2008 23:49
by Kristjan
Láttu flotmúra og lakkaðu svo yfir, það er mjög fínt. Tengdó eru með svoleiðis heima hjá sér.

PostPosted: Fri 09. May 2008 00:22
by Tommi Camaro
Kristjan wrote:Láttu flotmúra og lakkaðu svo yfir, það er mjög fínt. Tengdó eru með svoleiðis heima hjá sér.

:lol2:
þú ert að grínast

PostPosted: Fri 09. May 2008 00:36
by doddi1
Tommi Camaro wrote:
Kristjan wrote:Láttu flotmúra og lakkaðu svo yfir, það er mjög fínt. Tengdó eru með svoleiðis heima hjá sér.

:lol2:
þú ert að grínast


þú ert sennilega neikvæðasti gaur á íslandi :lol: :lol:

PostPosted: Fri 09. May 2008 01:14
by E55FFFan
Tommi Camaro wrote:
Kristjan wrote:Láttu flotmúra og lakkaðu svo yfir, það er mjög fínt. Tengdó eru með svoleiðis heima hjá sér.

:lol2:
þú ert að grínast


reyndar er Rut Káradóttir með lakkað yfir flot heima hjá ser, hún er einn færasti innanhúsarkitektúr á landinu..

en flot getur verið mjööög dýrt, 8944400 og hann getur skotið rettu tölu á þetta, hann heitir Anton

PostPosted: Fri 09. May 2008 07:27
by JonHrafn
Flotunin kostar kringum 40kall rúmmeterin. 422þús miðað við 5cm þykkt. Þannig að 500kall er nokkuð nærri lagi með vinnu. (Anhytrid)

PostPosted: Fri 09. May 2008 09:14
by Djofullinn
Frábært, þakka svörin 8)

PostPosted: Fri 09. May 2008 10:18
by Kwóti
passaðu bara að láta leggja gólfhitalagnirnar nógu og nálægt hvor annarri, við erum með svona heima hjá okkur og á milli koma kaldir blettir sem er ekki næs.

PostPosted: Fri 09. May 2008 11:04
by Djofullinn
Kwóti wrote:passaðu bara að láta leggja gólfhitalagnirnar nógu og nálægt hvor annarri, við erum með svona heima hjá okkur og á milli koma kaldir blettir sem er ekki næs.

Haha klúður

PostPosted: Fri 09. May 2008 11:20
by grettir
Ég er nýbúinn að taka allt í gegn hjá mér, 100 fermetra.

Flotunin var 360 þúsund hjá þeim í Flotmúr. Það var reyndar svolítið þykkt, 25-50 mm (herbergin voru mis "djúp"). Minnir að þetta hafi verið rúmir 3,5 rúmmetrar af efni. Þeir unnu alla forvinnu, slípun og slíkt. Ég var ánægður með þá.

Ég fékk tilboð í hitalagnir hjá Tengi, sem eru með besta kerfið eftir því sem ég komst að og það er ca. 4500 kr. fermeterinn. Þá erum við að tala um mottukerfi sem er raðað á gólfið. Það er dýrara, en þá þarftu ekki eins mikið flot.

Ef þú notar álpexið beint á gólfið, þá þarftu 50 mm flot ofan á það, nema þú nennir að fræsa rákir í gólfin. Ég byrjaði aðeins á því, en gafst upp. Rykið og vibbinn er ólýsanlegur.