bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Trommara brandarar https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29327 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bjarkih [ Wed 07. May 2008 20:27 ] |
Post subject: | Trommara brandarar |
Rakst á þessa snilldarbrandara sem voru með því fyrsta sem ég náði í á netinu fyrir ca 14-15 árum síðan þegar maður var að byrja að skoða þetta allt. Góðar mynningar. Hvað kallarðu trommuleikara með greindarvísitöluna 56? Vel gefinn. -- Afhverju þurfa hljómsveitir rótara? Til að hafa einhvern til að þýða það sem að trommuleikarinn segir. -- Hvað þarf marga trommuleikara til að skrúfa í ljósaperu? Bara einn, svo lengi sem rótarinn nær í stigann .. setur hann upp ... og kemur perunni fyrir í perustæðinu. -- Óli Hólm trommari, var orðinn þreyttur á því hversu lítið er alltaf gert úr trommuleikurum, þannig að hann ákvað að fara inn í Rín og skipta um hljóðfæri. "Ég ætla að fá rauða trompetinn þarna .... og láttu mig líka fá harmonikkuna.", segir Óli við Magga Eiríks. "Óli minn ... þú mátt fá slökkvitækið, en þú lætur ofninn í friði"!! -- Hver er besta leiðin til að rugla trommuleikara þegar hann er að spila? Þú setur nótnablað fyrir framan hann. En hvernig er best að stöðva trommuleikara þegar hann er að spila? Þú skrifar einhverjar nótur inná nótnablaðið. -- Ingó "grís" labbar inn í búð. "Ég ætla að fá einn svona Marshall Hiwatt AC30 amplificatior og einn Gobson StratoBlaster gítar með Fried Rose tremóló?" "Bíddu við ... þú ert trommuleikari ... er það ekki" "Duh, jááá .. hvernig vissirðu það?" "Þetta er ferðaskrifstofa" -- Hvað þarf marga trommuleikara til að skipta um ljósaperu? Bara einn, en aðeins eftir að hann spyr .. "Afhverju?" -- Ef að það lægi þúsundkall á gólfinu, og í kringum hann stæðu Jólasveinninn, álfur, góður trommari og lélegur trommari, hver mundi þá ná þúsundkallinum? Lélegi trommarinnn, þar sem hinir þrír eru ekki til. -- Hvað gerist ef þú blandar saman trommuleikara og górillu? Mjög heimska górillu (ta-ta-búm-splassshh!) -- Hversu marga trommuleikara þarf til að skrúfa í ljósaperu? Engann .... það er líka búið að búa til vél sem gerir það. -- Afhverju er trommuheili betri en trommuleikari? Hann heldur takti og sefur ekki hjá kærustunni þinni. -- Hversu marga trommuleikara þarf til að skúfa í ljósaperu? Fimm. Einn til að skrúfa í peruna og fjóra til að tala um hve miklu betur Vinnie Caliutta hefði gert þetta!!!!!!! -- Afhverju eru trommuleikarar með einni fleiri heilafrumu en hestar? Svo þeir kú** ekki á götuna í skrúðgöngunni. -- Hefurðu heyrt um trommuleikarann sem kláraði menntaskólann? Ekki ég heldur (ta-ta-ta-búmm-búmm-splashhh!) -- Afhverju er pásurnar hjá hljómsveitum aldrei lengri en 20 mínútur? Svo það þurfi ekki að þjálfa trommarann upp á nýtt. -- Afhverju setja gítarleikarar trommukjuða í mælaborðið á bílnum sínum? Svo þeir geti lagt í stæði fyrir fatlaða. -- Jói Hjörleifs sagði við mömmu sína: "Ég ætla að verða trommuleikari þegar ég verð fullorðinn." Mamma: "En Jói minn, þú getur ekki orðið bæði." -- Hvað kallarðu týpuna sem hangir alltaf í kringum hljómsveitir? Trommuleikara. -- Hvernig veistu þegar trommuleikari ber að dyrum hjá þér? Hann missir taktinn á fjórða högginu. -- Hvernig veistu þegar að trommuleikari er fyrir utan heima hjá þér? Hann veit ekki hvenær hann á að koma inn. -- Hefurðu heyrt um gítarleikarann sem var á leiðinni á gig og læsti lyklana inn í bílnum. Það tók hann tvo tíma að ná trommuleikaranum út. -- Afhverju er trommusóló eins og hnerri? Þú veist að það er á leiðinni en það er ekkert sem þú getur gert við því. -- Hvað er það síðasta sem að trommuleikari segir í hljómsveit? "Hei strákar ... ég er með hugmynd?" -- Hvað sagði trommuleikarinn þegar hann fékk fyrsta fasta starfið sitt? "Má bjóða þér franskar með þessu?" |
Author: | Schulii [ Wed 07. May 2008 21:03 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() Hver voru síðustu orð trommuleikarans áður en hann hætti í hljókmsveitinni? "Strákar, eigum við ekki að taka mitt lag núna?" |
Author: | fart [ Wed 07. May 2008 21:46 ] |
Post subject: | |
Hey.. ég spila á trommur ![]() |
Author: | UnnarÓ [ Wed 07. May 2008 21:51 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() |
Author: | BirkirB [ Wed 07. May 2008 22:15 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() Trommarabrandarar eru ekkert fyndnir... |
Author: | /ng/ [ Wed 07. May 2008 23:33 ] |
Post subject: | |
haha snilld |
Author: | Schulii [ Thu 08. May 2008 00:04 ] |
Post subject: | |
ég spila á trommur líka en bara fyndið ![]() |
Author: | birkire [ Thu 08. May 2008 00:33 ] |
Post subject: | |
Haha, snilld ef maður hefur haft náin samstörf við nokkra.. |
Author: | ömmudriver [ Thu 08. May 2008 01:20 ] |
Post subject: | |
Þetta eru SNILLDAR brandarar ![]() ![]() |
Author: | Fríða María [ Thu 08. May 2008 01:57 ] |
Post subject: | |
hahahaha bara snilld ![]() |
Author: | pallorri [ Thu 08. May 2008 05:56 ] |
Post subject: | |
Snilldar brandarar ![]() Quote: Hvernig veistu þegar trommuleikari ber að dyrum hjá þér?
Hann missir taktinn á fjórða högginu. |
Author: | maxel [ Thu 08. May 2008 09:37 ] |
Post subject: | |
birkire wrote: Haha, snilld ef maður hefur haft náin samstörf við nokkra..
![]() |
Author: | Schulii [ Thu 08. May 2008 10:41 ] |
Post subject: | |
maxel wrote: birkire wrote: Haha, snilld ef maður hefur haft náin samstörf við nokkra.. ![]() Leyfðu mér að útskýra. Samstarf er að vinna með einhverjum. Í þessu tilfelli er hann líklega að meina að hann hafi verið í hljómsveitum þar sem hann hefur "unnið" með trommuleikurum að gerð eða flutnings tónlistar. |
Author: | maxel [ Thu 08. May 2008 11:57 ] |
Post subject: | |
Schulii wrote: maxel wrote: birkire wrote: Haha, snilld ef maður hefur haft náin samstörf við nokkra.. ![]() Leyfðu mér að útskýra. Samstarf er að vinna með einhverjum. Í þessu tilfelli er hann líklega að meina að hann hafi verið í hljómsveitum þar sem hann hefur "unnið" með trommuleikurum að gerð eða flutnings tónlistar. Uu.. i knew dat, en mér langar að heyra meira um "náið samband við trommara" ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |