bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Þýskalandsför - Hvað er áhugavert að skoða?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29285
Page 1 of 2

Author:  Geysir [ Mon 05. May 2008 23:29 ]
Post subject:  Þýskalandsför - Hvað er áhugavert að skoða?

Jæja kraftsmenn.

Nú er stefnan sett á Þýskalandsferð í byrjun Ágúst og maður er aðeins byrjaður að setja saman plan fyrir ferðina en mig langaði að forvitnast hvort spjallmeðlimir gætu mælt með eitthverjum skemmtilegum stöðum til að skoða eða hlutum til að gera þarna?

Er kominn með nokkur plön fyrir ferðina.
1 Dagur: Leggja af stað snemma að morgni frá Reissing (Bavaria) og fara til Nurburgring, ca 5 tíma akstur þangað ef ferðin gengur vel. Deginum eytt þar.
(Tips um ódýra gististaði í grennd væru vel þegnir, hvort sem er tjald eða hús.)
2 Dagur: Lagt af stað snemma að morgni frá Hringnum og farið til Wolfsburg.
Ca 4-5 tíma akstur. VW verksmiðjan skoðuð og VAG söfnin.
Lagt af stað og farið til Dresden, ca 3-4 tíma akstur þangað. Porsche safnið skoðað og vonandi fleiri staðir
Annað hvort gist þar eða rennt til Reissing daginn eftir.
Heildarlengd smk AutoRoute: 1750 Km.

Plan 2, 2-3 daga ferð einnig.
1 Dagur: Lagt af stað snemma að morgni frá Reissing og farið til Sant'Agata Bolognese (og hvað er þar? Klapp frá mér til þeirra sem vita svarið) Þetta er langur akstur um 670 km, Autoroute segir um 6 tíma akstur miðað við ekkert stopp.
Skoðað sig um.
Farið til Maranello sem er nánast í næsta hverfi.
Farið að sofa, fyllerí og íslensk dólgslæti um kvöldið.
2 Dagur. Vaknað í þynnku og rennt til Modena sem er einnig nánast í næsta hverfi.
Farið til Stuttgart og Benz Safnið skoðað.
Gist í Stuttgart, á leiðinni eða jafnvel rennt alla leið til Reissing aftur.
Heildarlengd smk AutoRoute: 1734 Km.



Þetta eru svona helstu plönin, endilega komið með uppástungur um skemmtilega staði sem vert er að skoða.

Author:  Jónas Þór [ Mon 05. May 2008 23:40 ]
Post subject: 

ef að þú átt leið fram hjá stuttgart, þá myndi ég mæla sterklega með því að fara í mercedes safnið.
Það er eitthvað það merkilegasta safn sem að ég hef stigið inn í

Author:  Geysir [ Mon 05. May 2008 23:43 ]
Post subject: 

Jónas Þór wrote:
ef að þú átt leið fram hjá stuttgart, þá myndi ég mæla sterklega með því að fara í mercedes safnið.
Það er eitthvað það merkilegasta safn sem að ég hef stigið inn í


STEINgleymdi að setja það inn. :oops:

Author:  gunnar [ Tue 06. May 2008 00:03 ]
Post subject: 

Mæli líka með mercedes safninu, ég týndi mér alveg þarna inni í heilann dag og vá hvað þetta var merkilega skemmtilegt safn.

Svo mæli ég líka með að kíkja til Berlínar, mjög skemmtileg borg.

Svo er auðvitað voða gaman að keyra Rínardalinn og skoða kastalana, IAR hér á spjallinu benti mér á Burg Eltz (minnir mig að hann hafi heitið) kastala þar sem var mjög fróðlegur.

Þetta er endalaust þarna :lol:

Author:  Kristjan [ Tue 06. May 2008 00:04 ]
Post subject: 

Mosel or rínar dalirnir ftw

Author:  íbbi_ [ Tue 06. May 2008 00:11 ]
Post subject: 

nswchwitblabla kastalann, nurnbuirg, berlín, benzsafnið

Author:  Eggert [ Tue 06. May 2008 02:43 ]
Post subject:  Re: Þýskalandsför - Hvað er áhugavert að skoða?

Geysir wrote:
....
1 Dagur: Lagt af stað snemma að morgni frá Reissing og farið til Sant'Agata Bolognese (og hvað er þar? Klapp frá mér til þeirra sem vita svarið) ...


Hvað er þar???

Dude.

Þetta er heimabær Lamborghini.... verður að fara á safnið og taka myndir.

Author:  Geysir [ Tue 06. May 2008 09:08 ]
Post subject:  Re: Þýskalandsför - Hvað er áhugavert að skoða?

Eggert wrote:
Geysir wrote:
....
1 Dagur: Lagt af stað snemma að morgni frá Reissing og farið til Sant'Agata Bolognese (og hvað er þar? Klapp frá mér til þeirra sem vita svarið) ...


Hvað er þar???

Dude.

Þetta er heimabær Lamborghini.... verður að fara á safnið og taka myndir.


Það er einmitt ástæðan fyrir því að fara þangað. :D

Author:  Jónas [ Tue 06. May 2008 09:41 ]
Post subject: 

Gista í kastala við Rín

Füssen, Hochenschwangau (?), RÍNARDALURINN, München(biergarden 8) ) BERLÍN.

Þýzkaland er uppáhalds Evrópulandið mitt, það er svo endalaust gaman og fróðlegt að vera þarna, og Þjóðverjar eru miklir meistarar.

Spurning hvort maður flytji ekki bara þangað.

Author:  @li e30 [ Tue 06. May 2008 15:00 ]
Post subject: 

Ég er sammála mönnum með Benz-safnið, það er virkilega flott. Svo er spurning með hvort Porsche safnið í Stuttgart sé klárt, var fyrir ári síðan á flakki og þá var það í smíðum en ég veit ekki hve langt á veg það var komið. Svo er Nurburgring möst og þá mæli ég með að gista á Ringhaus, það er kannski dýrara en að tjalda en ef það er laust þá er það mjög gaman. Það er líka spurning hvort þú reynir að grennslast fyrir um hvað er að gerast á brautinni þennan dag sem þú ætlar að vera þar og reynir kannski að hliðra til eitthvað þannig á þú verðir á brautinni þegar eitthvað spennandi er í gangi.

Author:  Bjarkih [ Tue 06. May 2008 20:24 ]
Post subject: 

http://www.ringhaus.com/

Author:  Alpina [ Tue 06. May 2008 22:35 ]
Post subject: 

1) hvað ertu að sækjast eftir..
2) hvað hefurðu mikinn tíma
3) hvar hvenær hvernig ,, ferðu á milli
4) Þýskaland er stórt land og MIKIL UMFERÐ
5) hvað má þetta kosta
6) hvenær ertu á staðnum



spáðu í þessu og þá færðu eflaust svör sem hægt er viða mið á nokkuð áræðanlegum heimildum

Author:  gdawg [ Tue 06. May 2008 22:43 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
1) hvað ertu að sækjast eftir..
2) hvað hefurðu mikinn tíma
3) hvar hvenær hvernig ,, ferðu á milli
4) Þýskaland er stórt land og MIKIL UMFERÐ
5) hvað má þetta kosta
6) hvenær ertu á staðnum



spáðu í þessu og þá færðu eflaust svör sem hægt er viða mið á nokkuð áræðanlegum heimildum


Mjög mikið til í því sem Alpina segir þarna, sérstaklega með tímann og umferðina, alls ekki reyna að gera of mikið á stuttum tíma, þá bara endarðu á því að keyra allan daginn og sjá ekki mikið annað en hraðbrautir.

Author:  Geysir [ Tue 06. May 2008 23:29 ]
Post subject: 

gdawg wrote:
Alpina wrote:
1) hvað ertu að sækjast eftir..
2) hvað hefurðu mikinn tíma
3) hvar hvenær hvernig ,, ferðu á milli
4) Þýskaland er stórt land og MIKIL UMFERÐ
5) hvað má þetta kosta
6) hvenær ertu á staðnum



spáðu í þessu og þá færðu eflaust svör sem hægt er viða mið á nokkuð áræðanlegum heimildum


Mjög mikið til í því sem Alpina segir þarna, sérstaklega með tímann og umferðina, alls ekki reyna að gera of mikið á stuttum tíma, þá bara endarðu á því að keyra allan daginn og sjá ekki mikið annað en hraðbrautir.


Maður er kannski að reyna að gera of mikið á of litlum tíma.

1) Ég fer í byrjun Ágúst, fer út 31 Júlí og kem heim 14 Ágúst.

2) Þannig að ég hef nokk þessar tvær vikur til að skoða mig um.

3) Lendi í Frankfurt og fer þá til Reissing, sem er ekki langt frá landamærum Þýskalands og Austurríkis. CA 1 klst frá Munich. Þar býr fólkið sem ég gisti hjá.
Planið er að taka bílaleigubíl í þessar tvær vikur sem ég verð þarna og þar af leiðandi er það ekki aðalvandamálið að koma sér á milli staða.

4) Mjög stórt en þetta er geranlegt miðað við km tölur og tímann, hvernig er umferðin samt? Maður getur haldið ferðahraða á Autobahninum býst ég við?

5) Það væri náttúrulega best ef þetta gæti kostað sem minnst, borða ódýrt og gista ódýrt. Ekkert hámark er í raun komið á ferðina en ég verð að taka tillit til þess að ég er í skóla og þarf þess vegna að hugsa um budduna.

6) Í byrjun Ágúst.

Author:  Brútus [ Tue 06. May 2008 23:54 ]
Post subject: 

Verður ekkert vandamál með bílaleigubíl ?
Veit að þetta er ekki þýsk bílaleiga en samt sem áður.

Margar bílaleigur hafa einnig aldurstakmark á leigutaka og er oftast miðað við 21 árs aldur leigutaka.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/