Page 1 of 2

Hyundai að fá að láni ?

PostPosted: Fri 02. May 2008 21:00
by HAMAR
Afhverju finnst mér alltaf að þetta sé BMW 1-lína með Benz A-class afturljósum á hvolfi ?

Hyundai i30

Image

BMW 1-lína

Image

Benz A-class

Image

PostPosted: Fri 02. May 2008 21:11
by gunnar
Haha já þú segir nokkuð, djöfull er þetta fjandi líkt.

8) 8)

Samt svalur bíll finnst mér, hann er alls ekkert ómyndarlegur sem lítill snattari.

PostPosted: Fri 02. May 2008 21:17
by Svessi
Þú ert nú ekki sá eini sem finnst 1-series og i30 líkir.
En ég hef ekki séð heyrt neinn áður tala um líkinguna við A-class benzinn.

Það sem mér finnst kannski dálítið spes í þessu er að kalla bílinn i30 því það er dálítið svipað og 130 - týpa sem þú getur fengið ásinn í.

Var að horfa um daginn á rally frá svíðþjóð þar sem bæði var 1-series BMW og i30 Hyundai.
Og ég verð að viðurkenna það að stundum þegar komu snögg skot af bílunum þá átti ég stundum erfitt með að átta mig á því hvor bíllinn það hafði verið, voru reyndar eins á litinn líka og með svipaðar auglýsingar.

PostPosted: Fri 02. May 2008 21:36
by Bjarkih
Ég var einmitt að keyra á eftir einum svona Hyundai áðan og var að hugsa nákvæmlega þetta sama, hvað hann væri helvíti líkur ásnum :lol:

PostPosted: Fri 02. May 2008 21:58
by maxel
Sá svona 1 series um daginn, leit pínu á hann...heilinn að processa... nei þetta var 130, leit aftur á hann til að skoðann... þetta var bara i30....

PostPosted: Fri 02. May 2008 22:37
by elli
"Fá að láni" er líklega vægt til orða tekið... :?

PostPosted: Sat 03. May 2008 07:48
by Axel Jóhann
Hyundai i30 eru BARAÍLAGI bílar, ég er mikið að pæla í að fjárfesta í svona sem daily bíl. 8)

PostPosted: Sat 03. May 2008 11:10
by HPH
ég á i30 fínn bíll og allt fyrir peninginn.

PostPosted: Sat 03. May 2008 11:29
by Hlynzi
Fá að láni vægt til orða tekið.
Þetta er klárlega stolið, meira að segja nenntu þeir ekki að vera frumlegir og búa til nafn sjálfir.

Línurnar í boddýinu á þessum, eru svo nákvæmlega eins og 130, allt nema afturljósin er skuggalega líkt.

En ætli maður fái nú ekki meira fyrir peninginn í hoyndai ef maður sækist eftir þessu útliti.

PostPosted: Sat 03. May 2008 13:43
by bimmer
All svakalegur innblástur fenginn frá ásnum!!!!

PostPosted: Sat 03. May 2008 13:50
by Angelic0-
Fyrst þegar að ég sótti svona i30 í portið las ég 130 á miðanum!

Lúmskt skemmtilegir akstursbílar!

Væri vel til í svona i30 með stóru diesel vélinni, sportfjöðruninni og útlitspakka!

PostPosted: Sat 03. May 2008 14:21
by íbbi_
finnst þessir I30 vibbi.. bæði í akstri og útliti

PostPosted: Sat 03. May 2008 16:57
by Alpina
bimmer wrote:All svakalegur innblástur fenginn frá ásnum!!!!


Ertu að gefa í skyn að B&L hafi eitthvað með málið að gera :shock:


:rollinglaugh: :rollinglaugh:

PostPosted: Sat 03. May 2008 17:11
by maxel
Alpina wrote:
bimmer wrote:All svakalegur innblástur fenginn frá ásnum!!!!


Ertu að gefa í skyn að B&L hafi eitthvað með málið að gera :shock:


:rollinglaugh: :rollinglaugh:

:hmm:

PostPosted: Sat 03. May 2008 20:32
by Angelic0-
maxel wrote:
Alpina wrote:
bimmer wrote:All svakalegur innblástur fenginn frá ásnum!!!!


Ertu að gefa í skyn að B&L hafi eitthvað með málið að gera :shock:


:rollinglaugh: :rollinglaugh:

:hmm:


Með umboð fyrir báða bílana...