Tommi Camaro wrote:
Eru þið ekki að grínast þetta bitnaði bara á hinum almennaborgara, hefði ég verið nær í röðinni þá hefði ég farið út og buffað minnsta og ljótasta trucka homman,
gátu þeir ekki látið vita af þessu eða lagt fyrir dælunar á esso, nei ráðumst á hinn almenna borga og skemmum daginn fyrir þeim.
Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir að það sé háalvarlegt mál þegar aðalsamgönguæðum borgarinnar er lokað fyrirvaralaust, líkt og gerðist á fjórða tímanum í dag þegar atvinnubílstjórar lokuðu Ártúnsbrekku um stundarsakir. Slíkt geti skapað stórhættu.
Jón Viðar Matthíasson segir að síðast þegar mótmælt hafi verið með þessum hætti þá hafi slökkviliðið fengið að vita af mótmælunum með góðum fyrirvara, og því hafi slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn getað gert viðeigandi ráðstafanir.
„Hér er farið út í aðgerðir sem þeir láta okkur ekkert vita um. Okkar viðbragðskerfi, bæði hvað varðar sjúkraflutning og slökkvistarf, byggist á því að þær flæðilínur sem við notum dags daglega séu greiðar,“ segir Jón Viðar.
Hann segir að atvinnubílstjórar eigi að þekkja til starfa slökkviliðsins og því sé lágmark að þeir láti vita fyrirfram ef þeir ætla að mótmæla grípa til svona aðgerða.
„Mín trú er sú að þarna hafi menn hlaupið á sig og ekki áttað sig á því hvað þeir voru að gera,“ segir Jón Viðar. Hann segist trúa því og treysta að um einstakt atvik sé að ræða sem hafi verið gert í hugsunarleysi.
Að mótmæla með því að stoppa helstu flæðilínurnar eru akkurat mótmælin sem virka. Ef þessu verður haldið áfram þá verður að gera eitthvað í þessu til að stoppa þetta.
Ekki heldurðu að annað fólk sem mótmælir í sínu landi með þvílíkum ólátum og slagsmálum hugsi eitthvað út í það einhver gæti meiðst eða jafnvel látið lífið í mótmælunum? Til þess að það er tekið eftir eitthvað mark á þeim sem eru að mótmæla, þurfa þeir líka að láta taka eftir sér!
Ég er ekki að segja að ég sé sammála þessum mótmælum eða hvernig þeim var háttað en þetta er eina leiðin til að það er tekið mark á þeim.