bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

FJÖLMENNUM AUSTURVÖLLINN 1 MAÍ!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29117
Page 1 of 2

Author:  Brútus [ Tue 29. Apr 2008 16:05 ]
Post subject:  FJÖLMENNUM AUSTURVÖLLINN 1 MAÍ!

Þetta er hvorki skipulaggt af mér né skrifað!

Þeir sem telja að ríkisstjórnin sé ekki að standa sig í stykkinu notum þá eina daginn sem við getum mótmælt almennilega og vona ég svo innilega að sem flestir sjái sér fært að mæta 1 maí niður á Austurvöll og mótmæla all hressilega, því það vill svo til að 1 maí er baráttu dagur verkalíðsins en ekki fjölskyldu dagur verkalíðsins sem hann reyndar virðist vera orðinn hér á landi.


Koma svo kæru samlandar sínum nú að við erum alvöru víkingar en ekki einhverjir aumingjar sem láta allt yfir sig ganga. Vill ég minna á að landið okkar er stofnað af mönnum sem þoldu ekki sýna stjórn og þar sem menn voru bara drepnir fyrir að mótmæla á þeim tíma þá yfirgáfu þeir frekar sitt land heldur en að vera undir hælnum á yfirvaldinu. Myndu þessir sömu menn vera stoltir af því hvernig íslenska þjóðin er orðinn, haldið þið að þetta hafi verið það sem Jóni Sigurðsinni hafi dreymt um að sjá okkur verða þegar hann barðist við að koma okkur undan kúun dana? Haldið þið að þetta hafi verið það sem Ingólfur Arnarsson hafi haft í huga þegar hann varpaði öndveigissúlunum fyrir borð til að finna sitt land sem hann kallaði síðan Reykjavík að hún yrði bara upp full að aumingjum sem aldrei þorðu að gera eða segja neitt annað enn ,,JÁ HERRA`` ég er sáttur við allt sem þú gerir og mér er sama hvaða hlut ég hef útúr þessu bara svo lengi sem þú þurfir ekki að lepja dauðan úr skel. Hvenar hættum við að vera okkar eiginn herrar og ákváðum að fara aftur í að vera þrælar.
Ef þið getið staðið stolt fyrir framan spegil og sagt við ykkur mér finnst allt frábært hér og ég er svo stoltur af því að vera Íslendingur og ég er svo stoltur af ráðherrum mínum og ég er svo sáttur við allt sem þeir gera fyrir mig þá endilega slepptu því að mætta því þá hefuru ekkert að gera þarna þar sem þetta er baráttu dagur verkalíðsins.
Þó svo ég hafi kosið þessa menn á þing þá er ekki þar með sagt að ég þurfi að vera sáttur við það sem þeir segja og gera eða í sumum tilvikum gera ekki, á ég þá bara að þegja og þykjast sætta mig við það og byrgja það bara allt inni þangað til ég spring og hvað skéður þá, fer það þá ekki bara að bitna á fólkinu sem mér þykkir vænt um en ekki þeim sem þurfa að heyra þetta. Bílstjórar hafa verið að láta heyra í sér og láta vita að þeir séu ekki sáttir við hvernig ríkistjórnin heldur á málum hér í landi og hvaða viðbrögð fá þeir frá henni? jú, það liggur við að við séum settir á sama stall og Al-kaita, erum við að hlaupa inní hóp með sprengju belti bundið við okkur og drepa saklaust fólk eða valda skemmdun eins og sprengja brýr, er það hryðjuverk að stöðva umferð hér á landi?.

Að lokum segi ég hættið að tala um hvað allt er slæmt hér og standið upp og látið í ykkur heyra og ef þið eruð ekki sammála hvernig við förum að þessu en langar samt að sjá einhverjar breytingar látið þá sjá ykkur 1 maí og látið í ykkur heyra. Ekki búast við því að það sé gert eithvað fyrir ykkur ef þið hángið bara heima og talið um það hvað allt er slæmt.

Bannað að gleyma ,


ALLIR AÐ MÆTA !!!

Author:  íbbi_ [ Tue 29. Apr 2008 16:21 ]
Post subject: 

algjört aðgerðaleysi stjórnvalda er eitthvað sem ég er til í að mótmæla,

ég mæti

Author:  jens [ Tue 29. Apr 2008 16:25 ]
Post subject: 

Mikið djöf..... er ég sammála þér íbbi

Quote:
algjört aðgerðaleysi stjórnvalda er eitthvað sem ég er til í að mótmæla

Author:  íbbi_ [ Tue 29. Apr 2008 16:32 ]
Post subject: 

aðgerðir lögreglu eru embættinu ekki til framdráttar heldur..

Author:  Lilja [ Tue 29. Apr 2008 16:33 ]
Post subject: 

Ég held þetta sé það fyndnasta sem ég hef á ævi minni lesið.

Jón Sigurðsson er eflaust að snúa sér í ansi marga hringi í gröfinni núna.

Author:  Sta [ Tue 29. Apr 2008 16:36 ]
Post subject: 

Djö.. afhverju get ég ekki verið í bænum 1.maí!! :o

Author:  Giz [ Tue 29. Apr 2008 16:53 ]
Post subject: 

Þetta er nú eiginlega meira sorglegt en fyndið á nokkurn hátt.

Hverju á að mótmæla? Hvað mætti betur fara? Hefur viðkomandi eitthvað fram að færa, þe einhverjar lagfæringar á því sem er að osfr?

Þetta er barnalegur og asnalegur "boðskapur" ef svo má segja.

Um að gera að láta í sér heyra og "mótmæla" ef eitthvað er til að mótmæla. En mér finnst grundvallar krafa á að menn segi hvað sé nú að og hverju verið sé að mótmæla í stað þess að segja að enginn geri bara ekki neitt og við mótmælum, right.

Ég hef nú búið um helming æfi minnar utan Íslands og það er vissulega sorglegt að vissu leyti að fylgjast með þessu úr fjarska. En hverjum er hvað að kenna í fyrsta lagi? Hversu stórann hlut á almenningur í því hernig er komið (tímabundið vonandi) fyrir efnahagsmálum með því að vera á eyðslufylleríi án þess að hafa efni á því? Osfr, osfr.

En gangi ykkur vel og njótið dagsins.

G

PS, ég var á Íslandi í 2 daga um daginn í fyrsta skipti í rúmt ár og verð að segja að mér hreinlega ofbauð ýmislegt. Sóðaskapur út um allt, framkoma fólks og almennt hirðuleysi og virðingarleysi við allt og alla, hvort sem um er að ræða fólk eða hluti. Er það líka ríkisstjórn að kenna? Ef svo er þá mótmæli ég því allavega.

Author:  Schulii [ Tue 29. Apr 2008 17:19 ]
Post subject: 

Að fólk skuli halda það að ríkisstjórnin sé ekki að gera neitt í þessu finnst mér alveg hlægilegt :lol:

Ég verð að passa mig að fara ekki óvart niðrí miðbæ 1.maí því ekki vill ég láta bendla mig við þennan lýð!!!

Author:  bebecar [ Tue 29. Apr 2008 17:40 ]
Post subject: 

Aðgerðaleysi held ég að sé nú varla hægt að saka ríkisstjórn um. Hinsvegar er lítið hægt að gefa upp um hvað er verið að gera og ekki er hægt að taka neinar skyndiákvarðanir við stöðu eins og nú er.

Svo má heldur ekki gleyma því að svona er staðan ALLSSTAÐAR - ekki bara á Íslandi semsagt og sitja margir mun dýpra í skítnum en Íslendingar - var ekki í fréttum í dag að fasteignaverð í USA hefði lækkað um 15% í mars? Glitnir spáði fyrir stuttu síðan 0.3% á Íslandi þó engin taki auðvitað mark á því.

Ég tek undir með Giz enda svipað ástatt hjá mér - held fyrst og fremst að fólk geti sjálfu sér um kennt og þegar maður er búin að vera lengi úti þá sér maður hvað þetta er áberandi.

Ég skora á þá sem ekki hafa keypt sér dýrari bíl eða auka bíl á síðustu 4 árum, stærri íbúð, farið í dýrar utanlandsferðir, nýja eldhúsinnréttingu, sófasett eða keypt sér flatskjá að mæta niður í bæ og mótmæla því að hafa ekki fengið sinn skerf í góðærinu! það væri allavega meira vit í því en þessu - en miðað við þessi skilyrði þá myndu líklega fáir mæta ekki satt?

Það er nú lágmark að hafa eitthvað til að mótmæla.

Ísland er fullt af fólki sem lifir LANGT umfram efni og því svíður þegar niðursveiflan kemur þar sem það er ekkert svigrúm til að mæta henni. Það er alveg glórulaust að venjulegt launafólk keyri um á forstjórabílum eins og nánast annar hver maður gerir orðið í dag - líklegast ekki bara launafólk heldur líka námsmenn.

Það má vel vera að stjórnvöld hafi getað staðið betur að málum en það er 100% pottþétt að þorri fólks hefði átt að sjá fótum sínum forráð og vissara er að hafa sín mál á hreinu áður en maður fer að gagnrýna aðra fyrir eigin galla (á við um mig líka auðvitað :lol: ).

Kannski hefðu bankarnir átt að hafa nokkrar lánalöggur á sínum snærum :D

Author:  bimmer [ Tue 29. Apr 2008 18:30 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
var ekki í fréttum í dag að fasteignaverð í USA hefði lækkað um 15% í mars?


Mars 2007 til mars 2008, semsagt á ársgrundvelli.

Author:  bErio [ Tue 29. Apr 2008 18:36 ]
Post subject: 

Mæti ekki.

Author:  bebecar [ Tue 29. Apr 2008 18:37 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
bebecar wrote:
var ekki í fréttum í dag að fasteignaverð í USA hefði lækkað um 15% í mars?


Mars 2007 til mars 2008, semsagt á ársgrundvelli.


:lol: ooops. Allavega - mun meira en 0.3% sem Glitnir spáir á árinu á Íslandi.

Author:  fart [ Tue 29. Apr 2008 18:43 ]
Post subject: 

Fínt mál að mótmæla, og að mótmæla ríkisstjórninni er bara alveg í lagi enda eiga þeir kappar sinn þátt í tvíframlengdu góðæri(og vítaspynukeppni). Álvers- og öfgavirkjanaframkvæmdir hafa sett Ísland í svo mikið rugl að það hálfa væri nóg.

s.s. Endilega mótmæla.... E N ekki fara niður í bæ bara til að lenda í slag.

Að stilla upp þessum peppup pósti er eitt, en að hengja þessa nýð um lögguna með gerir bara tvennt.

1. æsa fólk upp í hugsanlegan hasar
2. gera lítið úr ágætis málefni

Author:  Eggert [ Wed 30. Apr 2008 11:20 ]
Post subject: 

fartarinn hefur rétt fyrir sér... nú fer einhver lýður niðrí bæ þann 1. til þess eins að pikka fight og fá smá meis... svona fyrir afasögurnar.

Þetta mjög illa skrifaður texti til þess að reyna að fólk (með IQ yfir, say, 80?), til þess að mótmæla með sér. Talandi um Jón Sigurðsson og eitthvað bull. Það þarf bara að taka ákveðin málefni fyrir hverju sinni, en ekki henda bara öllu í einn poka og mótmæla; og vita svo ekki einu sinni hverju er verið að mótmæla.

Author:  Brútus [ Wed 30. Apr 2008 11:43 ]
Post subject: 

Eggert wrote:
fartarinn hefur rétt fyrir sér... nú fer einhver lýður niðrí bæ þann 1. til þess eins að pikka fight og fá smá meis... svona fyrir afasögurnar.

Þetta mjög illa skrifaður texti til þess að reyna að fólk (með IQ yfir, say, 80?), til þess að mótmæla með sér. Talandi um Jón Sigurðsson og eitthvað bull. Það þarf bara að taka ákveðin málefni fyrir hverju sinni, en ekki henda bara öllu í einn poka og mótmæla; og vita svo ekki einu sinni hverju er verið að mótmæla.


Viðurkenni það að sá sem að skrifaði textann virðist ekki hafa haft jafn mikinn eldmóð ,í garð stafsetningar og orðasnilldar, og hann hafði í skoðunum sínum.
En þetta verður fjölmennt . ..

Það er ekki bara lýður og aumingjar sem að mótmæla. Að menn skuli leyfa sér að halda slíkt í einfeldni sinni. Miklu meira hyski sem að situr heima á rassgatinu á meðan að það er vaðið yfir það á skítugum skónum.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/