bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Enn ein umræðan...
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=29078
Page 1 of 2

Author:  maxel [ Sun 27. Apr 2008 19:38 ]
Post subject:  Enn ein umræðan...

Hvað finnst ykkur um að ganga í evrópubandalagið?

Ég sé ekkert nema plúsa við það, langaði að vita hvort einhverjum finnist það vera einhverjir mínusar?

Er annars ekki aðalástæðan að allir þessir big-shots hérna á alþingi vilja ekki fórna þessu valdi?

Author:  gunnar [ Sun 27. Apr 2008 19:39 ]
Post subject: 

Kvótinn hefur nú spilað þarna svolítið inn í ekki satt.

Author:  ValliFudd [ Sun 27. Apr 2008 20:29 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Kvótinn hefur nú spilað þarna svolítið inn í ekki satt.

Jæja og er það ekki hvort eð er dauð atvinnugrein núna? :?

Author:  Lilja [ Sun 27. Apr 2008 20:29 ]
Post subject: 

Jú, kvótinn er það sem hefur alltaf staðið í vegi fyrir þessari umræðu. Hann þarf þó ekki að vera eitthvað "issue", áhugasamir geta tékkað á bók Úlfars Haukssonar "Gert út frá Brussel?" ef þeir vilja fræðast um það mál.

Author:  Stanky [ Sun 27. Apr 2008 20:34 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Kvótinn hefur nú spilað þarna svolítið inn í ekki satt.


Endalaust hægt að röfla um þennan kvóta. Alveg orðið nett þreytt.

Ef þú skoðar lista yfir 300 stærstu fyrirtæki landsins, þá eru fjármála og þekkingarfyrirtækin á toppnum. (Listi frá 2006)

Sjáum nú til.

Samherji kemur inn í 24 sæti, lækkar um 3 sæti frá 2005.

Það sem kemst síðan næst fiski-tuðinu er Marel, í 34 sæti, en þeir framleiða róbóta fyrir fiskiðnað.

HB Grandi kemur inn í 41 sæti, fellur um 3 sæti frá árinu 2005.

Síldarvinnslan kemur inn í 57 sæti, fellur um 8 sæti, frá 2005.

Skinney kemur svo í 73 sæti, hækkar um heil 30 sæti frá 2005.

Þorbjörn kemur svo í 79 sæti, hækkar um 5 sæti.

Brim 81 sæti, fellur um 20 sæti.

Ísfélagið 90 sæti, fellur um 31 sæti.

Þorm. Rammi Sæberg, 91 sæti, fellur um 19 sæti.

Á þessum lista eru:
18 fyrirtæki tengdum þessum "frábæra" kvóta, af 300 fyrirtækjum.

Listinn er byggður upp á veltutölum frá skattstjóra ríkisins, þau fyrirtæki sem hafa lækkað, hafa augljóslega velt minni peningum heldur en fyrra ár :).

Þetta segir það sem segja þarf varðandi að "missa" kvótann.


Beint í Evrópusambandið að mínu mati, kvótinn er ekki issue :)

Author:  Spiderman [ Sun 27. Apr 2008 20:43 ]
Post subject: 

Ég lít á þetta þannig að við séum eins og gæi sem gamnar sér með Ingu Lind og Nadiu Banine um helgar en fer í NBA live og pool með vinum sínum á virkum kvöldum. Við erum að fá allt það besta útúr EES samningnum en sleppum við allt skrifræðið, kvaðirnar og leiðindin sem fylgir inngöngu.

Author:  Lilja [ Sun 27. Apr 2008 20:52 ]
Post subject: 

Spiderman wrote:
Ég lít á þetta þannig að við séum eins og gæi sem gamnar sér með Ingu Lind og Nadiu Banine um helgar en fer í NBA live og pool með vinum sínum á virkum kvöldum. Við er að fá allt það besta útúr EES samningnum en sleppum við allt skrifræðið, kvaðirnar og leiðindin sem fylgir inngöngu.


Við þurftum auðvitað að breyta skrilljón lögum þegar við samþykktum aðild að EES og þurfum að gera það um ókomna tíð sem lengi sem við erum aðilar að samningnum.

Author:  maxel [ Sun 27. Apr 2008 21:22 ]
Post subject: 

Hvað með kvótann? Ekki eins og við séum að græða á honum núna, bara einhverjir einstaklingar.
Ef við myndum ganga í evrópusambandið myndi ríkið leigja út kvótann...
Ágætis skattpeningur...

Author:  Kwóti [ Sun 27. Apr 2008 23:31 ]
Post subject: 

burt með mig imo

Author:  Jón Ragnar [ Sun 27. Apr 2008 23:32 ]
Post subject: 

Kwóti wrote:
burt með mig imo


:lol:

Author:  adler [ Mon 28. Apr 2008 01:01 ]
Post subject: 

Nú er ekki kvótin aðal málið hjá stjórnar liðinu heldur orku auðlindinar og útrásartækifærin á því sviði sem að við myndum þá tapa í hendurnar á miðstýringar apparatinu í Brussel.

Það er alveg sama hvernig það er reynt að ræða þessa hluti alltaf skal öfga hægra liðið koma með einhvern própaganda áróður til að skapa ósætti, leiðindi og enn meiri óvissu um málið.

Og ég leyfi mér að efast um að það að þessir aðilar séu að hugsa um hagsmuni almenning þegar að þeir setja áróðurs vélarnar í gang.

Ég tek að fram að ég er hægri sinnaður í stjórn málum en svona vinnubrögð eru mér ekki að skapi.

Annars er öll þessi umræða farin að valda mér ógleði einhverja hluta vegna :puke:

Author:  maxel [ Mon 28. Apr 2008 01:04 ]
Post subject: 

Ég hefði kannski átt að taka fram að ég er hægri maður

Author:  Jónas [ Mon 28. Apr 2008 12:57 ]
Post subject: 

ValliFudd wrote:
gunnar wrote:
Kvótinn hefur nú spilað þarna svolítið inn í ekki satt.

Jæja og er það ekki hvort eð er dauð atvinnugrein núna? :?


Sjávarútvegurinn var minnir mig 3/4 af útflutningstekjum, þótt hann sé einungis c.a. 6% af VLF.

Hinsvegar er einn stærsti mínusinn IMO að íslenskar hagsveiflur hafa ekki sveiflast í takt við EMU.

Evrópski Seðlabankinn lítur á heildarmyndina, þ.e. segjum að það sé óðaverðbólga á Íslandi en allstaðar annarsstaðar er allt OK.

Seðlabankinn mun ekki breyta peningastefnu sinni til að "bjarga" íslandi, þegar allt hitt er í lagi

edit: erfitt að koma þessu frá sér enn þetta er nokkurnvegin svona.

Author:  Svezel [ Mon 28. Apr 2008 13:03 ]
Post subject: 

Stanky wrote:
gunnar wrote:
Kvótinn hefur nú spilað þarna svolítið inn í ekki satt.


Endalaust hægt að röfla um þennan kvóta. Alveg orðið nett þreytt.

Ef þú skoðar lista yfir 300 stærstu fyrirtæki landsins, þá eru fjármála og þekkingarfyrirtækin á toppnum. (Listi frá 2006)

Sjáum nú til.

Samherji kemur inn í 24 sæti, lækkar um 3 sæti frá 2005.

Það sem kemst síðan næst fiski-tuðinu er Marel, í 34 sæti, en þeir framleiða róbóta fyrir fiskiðnað.

HB Grandi kemur inn í 41 sæti, fellur um 3 sæti frá árinu 2005.

Síldarvinnslan kemur inn í 57 sæti, fellur um 8 sæti, frá 2005.

Skinney kemur svo í 73 sæti, hækkar um heil 30 sæti frá 2005.

Þorbjörn kemur svo í 79 sæti, hækkar um 5 sæti.

Brim 81 sæti, fellur um 20 sæti.

Ísfélagið 90 sæti, fellur um 31 sæti.

Þorm. Rammi Sæberg, 91 sæti, fellur um 19 sæti.

Á þessum lista eru:
18 fyrirtæki tengdum þessum "frábæra" kvóta, af 300 fyrirtækjum.

Listinn er byggður upp á veltutölum frá skattstjóra ríkisins, þau fyrirtæki sem hafa lækkað, hafa augljóslega velt minni peningum heldur en fyrra ár :).

Þetta segir það sem segja þarf varðandi að "missa" kvótann.


Beint í Evrópusambandið að mínu mati, kvótinn er ekki issue :)


ekki vera heimskur, það eru útflutningstekjur sem telja, ekki eitthvað pokabrask milli Íslendinga

Author:  Jónas [ Mon 28. Apr 2008 13:06 ]
Post subject: 

Og það ÞARF útflutning til að geta stundað innflutning

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/