Page 1 of 3

Skipulögð mótmæli 25 Apríl

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 14:28
by Brútus
Var beðinn um að koma þessu áfram, þetta er eitthvað sem er verið að auglýsa á live2cruize.com.

það er verið að plana mætmæli á morgun ef nægur fjöldi fólks fæst,,
ekki á bílunum okkar svo að löggan geti ekki hirt þá
hugmyndin er að fara labbandi skilja bílana eftir löglega einhverstaðar í stæði og standa fjöldi fólks á gatnamótunum kringlumýrabraut miklubraut ef við erum þarna nógu mikið af fólki getur löggan ekki gert mikið kannski handtekið nokkra en það er séns sem ég er allavega til í að taka, en þið?

mætum nógu andskoti mörg bara og hittumst klukkan 2 á planinu hjá húsi verslunarinnar

Hús verslunnar: http://is.wikipedia.org/wiki/H%C3%BAs_verslunarinnar

ATH Ég er ekki i forsvari fyrir þessum mótmælum. Fékk þetta bara í einkapósti á síðu.

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 14:44
by Danni
Hmmm í gær átti þetta að vera í dag, og á pósternum sem var gefið út þá á þetta að vera í dag líka. SS. 24. apríl en ekki 25.

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 14:51
by BirkirB
hmm... og hverju er eiginlega verið að mótmæla?

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 14:55
by gulli
Háu bensin og olíu verði líklegast

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 15:11
by bjahja
jesús

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 15:18
by Lindemann
Ég verð fyrir utan intersport húsgagnahöll milli kl. 16 og 18 í dag að mótmæla háu verði á Nike sokkum og O'neil sundskýlum.......
Ef einhver vill styðja mig í þeim mótmælum þá er öllum velkomið að koma.

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 15:20
by UnnarÓ
Ekki einu sinni tekið fram hverju eigi að mótmæla :lol:

Það er bara svo töff að vera "anti-lögga" 8)

Np; NWA - Fuck Tha Police




:roll:

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 15:22
by bimmer
UnnarÓ wrote:Ekki einu sinni tekið fram hverju eigi að mótmæla :lol:

Það er bara svo töff að vera "anti-lögga" 8)

Np; NWA - Fuck Tha Police


:roll:


Það virðast ansi margir íslendingar vera fastir á þessu þroskastigi þótt
flestir komist nú í gegnum það á unglingsaldri.

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 17:59
by Danni
Lindemann wrote:Ég verð fyrir utan intersport húsgagnahöll milli kl. 16 og 18 í dag að mótmæla háu verði á Nike sokkum og O'neil sundskýlum.......
Ef einhver vill styðja mig í þeim mótmælum þá er öllum velkomið að koma.


Þú lést ekki sjá þig! Hvað er málið??

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 18:06
by Schulii
Danni wrote:
Lindemann wrote:Ég verð fyrir utan intersport húsgagnahöll milli kl. 16 og 18 í dag að mótmæla háu verði á Nike sokkum og O'neil sundskýlum.......
Ef einhver vill styðja mig í þeim mótmælum þá er öllum velkomið að koma.


Þú lést ekki sjá þig! Hvað er málið??
:lol:

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 18:48
by arnib
bjahja wrote:jesús


amen..

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 19:13
by Lindemann
Schulii wrote:
Danni wrote:
Lindemann wrote:Ég verð fyrir utan intersport húsgagnahöll milli kl. 16 og 18 í dag að mótmæla háu verði á Nike sokkum og O'neil sundskýlum.......
Ef einhver vill styðja mig í þeim mótmælum þá er öllum velkomið að koma.


Þú lést ekki sjá þig! Hvað er málið??
:lol:


æji sorry....ákvað bara á síðustu stundu að fara frekar uppí perlu að mótmæla háu verði á ís,,,,enda var löggan búin að hlera símann minn og voru mættir um 3 leitið uppí húsgagnahöll með AK47.

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 20:00
by Lilja
Komum að mótmæla :gay:

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 20:11
by Alpina
Lilja wrote:Komum að mótmæla :gay:
:rollinglaugh:

PostPosted: Thu 24. Apr 2008 21:33
by Jonni s
Þið eruð svo miklar beljur.

Er það núna inn að vera á móti mótmælum?
Þó að vissulega mætti fara betur að þessum blessuðu mótmælum og vörubílstjórar mættu velja sér aðeins sterkari talsmann þá er þetta að mínu mati mjög þörf ábending til stjórnvalda.

Og ef þeir sjá það svona eftir sér að lækka skatta og álögur á eldsneiti er þá ekki bara hægt að lækka eða jafnvel fella niður bifreiðagjöld, sem áttu að vera tímabundinn skattur á bifreiðaeigendur hvort eð er.