bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Góð grein varðandi eldsneytisverð á Íslandi https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=28887 |
Page 1 of 3 |
Author: | ValliFudd [ Fri 18. Apr 2008 15:33 ] |
Post subject: | Góð grein varðandi eldsneytisverð á Íslandi |
http://inhauth.blog.is/blog/inhauth/entry/495723/ Eftir Indriða Hauk Þorláksson fyrirverandi ríkisskattstjóra.. Quote: Á að lækka álögur á eldsneyti?
Ástæðan fyrir hækkun á verði á eldsneyti á síðustu misserum eru tvíþætt. Olíuverð á heimsmarkaði hefur hækkað og íslenska krónan fallið. Hækkun verðs á bensíni og dísilolíu hefur vakið óánægju og fram hafa komið kröfur um að ríkið lækki verðið með því að draga úr álögum. Þessar kröfur hafa komið fram hjá FÍB og vörubílstjórum sem haft hafa í frammi mótmælaaðgerðir studdir m.a. af jeppamönnum. Ekki er nema gott eitt um það að segja að einstakir hópar í þjóðfélaginu neyti þess réttar að láta rödd sína heyrast og veiti stjórnvöldum aðhald. En þeim rétti fylgir sú skyldu að rökstyðja mál sitt skilmerkilega. Talsmenn þeirra sem krefjast lækkunar álaga á eldsneyti láta að því liggja að þeir séu að berjast fyrir hagsmunum almennings og virðast fá nokkurn hljómgrunn ef marka má undirtektir borgara sem fjölmiðlar hafa tekið tali. En er það svo? Myndi hagur almennings batna ef álögur á eldsneyti yrðu lækkaðar? Slíkt er óvíst og reyndar ólíklegt. Hækkun á olíuverði á heimsmarkaði þýðir einfaldlega að við sem þjóð og einstaklingar verðum að greiða hærra verð en áður fyrir þessa vöru og höfum að sama skapi minna til að nota í annað. Þessi hækkun er staðreynd sem við verðum að sætta okkur við en getum brugðist við með því að draga úr neyslu á eldsneyti og þannig dregið úr skerðingu á annarri neyslu. Lækkun á álögum hér á landi breytir engu þar um og myndi hafa það eitt í för með sér að síður drægi úr akstri og við myndum í reynd greiða meira úr landi fyrir eldsneyti og hafa minna til annarra nota. Lækkun á álögum er þannig engin leið til að bregðast við hærra oliuverði á heimsmarkaði. Það bætir ekki stöðu þjóðarbúsins og heimilanna. Lækkun álaga á eldsneyti hefði einungis í för með sér að kostnaðinum af hækkuninni yrði dreift með öðrum hætti. Sú breyting yrði í stórum dráttum sú að þeir sem nota mikið eldsneyti, aka á stórum og neyslufrekum bílum svo sem stórum jeppum, myndu koma betur út en hinir nægjusamari eða bifreiðalausu bæru stærri hluta hinnar óhjákvæmilegu hækkunar. Talsmenn lækkunar láta eins og hún skipti engu fyrir ríkissjóð eða jafnvel að hann hafi grætt mikið á verðhækkununum. Hvort tveggja er rangt. Bensín og olíugjaldið er föst krónutala á hvern seldan lítra af eldsneyti sem ekki hefur hækkað í samræmi við verðlag. Þessar tekjur fara nú lækkandi að raungildi vegna verðfalls krónunnar og verðbólgu. Samdráttur í eldsneytiskaupum gæti enn dregið úr þessum tekjum. Ekki er að vænta samdráttar í samneyslu og ef ekki verður dregið úr framkvæmdum t.d. vegagerð munu aðrir skattar óhjákvæmilega hækka. Lækkun þessara gjalda myndi því færa skattbyrði af þeim sem nota mikið eldsneyti yfir á aðra. Meint hækkun virðisaukaskatts vegna hærra eldsneytisverðs er sýnd veiði en ekki gefin. Hækkun á eldsneytisverði langt umfram aðrar vörur leiðir annars vegar til þess að eldsneytiskaup dragast saman og þar með verður hækkun virðisaukaskattsins minni en ætla mætti og hins vegar er óhjákvæmilegt að önnur neysla dregst saman þar sem heimilin hafa ekki úr ótakmörkuðum tekjum að spila og virðisaukaskattur af henni minnkar. Heildaráhrifin á tekjur af virðisaukaskatti eru því langtum minni en haldið hefur verið fram og e.t.v mjög litlar. Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti myndi í stórum dráttum hafa sömu áhrif og lækkun bensín- og olíugjalds, þ.e. færa kostnað vegna heimsmarkaðsverðs frá þeim sem nota mest eldsneyti yfir á hina sem minna nota og auka skattbyrði þeirra. Af framansögðu má vera ljóst að lækkun eldsneytisverðs með lækkun álaga er ekki vitleg aðgerð. Hún myndi engum ábata skila heimilunum almennt en dreifa þegar áföllnum kostnaði ranglátlega og vera efnahagslega óhagkvæm. Auðveldara er að rökstyðja hækkun á álögur á eldsneyti við núverandi aðstæður en lækkun þeirra. Eldsneytisbrennsla er stór þáttur í losun gróðurhúsalofttegunda. Það er viðurkennt að ein virkasta leið til að draga úr notkun eldsneytis væri að hækka verð á því með sköttum. Ekki hefur verið pólitískur vilji hjá þjóðum heims að fara þá leið. Hækkun gjalda á eldsneyti væri skynsamleg frá sjónarhóli umhverfismála en einnig frá efnahagslegu sjónarmiði í heimi þar sem eftirspurnin vex sífellt og framleiðendur hafa sjálfdæmi um verð og magn. Það er ekki við því að búast að litla Ísland breyti heiminum að þessu leyti en þótt aðeins sé litið til landsins má sjá gild rök fyrir hækkun gjalda á eldsneyti eða a.m.k. rök gegn lækkun þeirra. Þrátt fyrir hækkandi verð á eldsneyti hefur innflutningur á bifreiðum aukist stórlega frá ári til árs með aukna mengun, umferðatafir og önnur einkenni köfnunardauða borga að fylgifiskum. Bifreiðum hefur ekki aðeins fjölgað heldur hefur stórum eyðslufrekum bílum fjölgar mest. Hækkun á verði eldsneytis með hækkun álaga kynni að hafa góð áhrif, draga úr fjölgun bíla einkum þeirra neyslufreku. Auknar tekjur með þessum hætti mætti nota til að lækka aðra skatta á móti, auka tekjujöfnun í skattkerfinu sem dregið hefur úr á síðustu árum eða styrkja velferðarkerfið. Og svo mörg góð comment.. |
Author: | arnib [ Fri 18. Apr 2008 15:41 ] |
Post subject: | |
Vel skrifuð grein og mjög vel rökstudd.. Einhvernveginn hafði ég alltaf haldið að álögin ofan á eldsneytisverðið væru ekki föst krónutala eingöngu, heldur föst krónutala + einhver prósenta. Veit ekki hvaðan ég hef haft það. |
Author: | maxel [ Fri 18. Apr 2008 15:56 ] |
Post subject: | |
Quote: Takk fyrir frábæra grein - ég er algjörlega sammála. Mér blöskraði gjörsamlega að sjá ökumenn risastórra blöðrujeppa taka þátt í mótmælaaðgerðunum. Kann fólk ekki að skammast sín! Því miður þá finnst mér ekki margir hafa skilning á þessu sjónarmiði - við erum ennþá á steinöld hvað það varðar. "Helga" Quote: Jeppaakstur í Reykjavík, jafnvel áð vetri til er orkusóun. Og sportið getur líka gengið útí öfgar, jafnvel þó menn hafi efni á því.
En ég bíð eftir að það verði ókeypis í strætó og vagnar minni og ferðirnar tíðari. "Sigrún Jóna Sigurðardóttir" ![]() ![]() |
Author: | Kristjan [ Fri 18. Apr 2008 15:59 ] |
Post subject: | |
Þetta gamla lið með steinaldarskoðanir verður vonandi útdautt á næstu árum. |
Author: | ValliFudd [ Fri 18. Apr 2008 16:01 ] |
Post subject: | |
Ég er reyndar sammála þessum 2 dömum að hluta til... Menn kaupa sér ekki jeppa með 6 lítra v8 vélar, modda og breyta bílum svo þeir eyði 30+ (og jafnvel 50+ hef ég heyrt frá einum) á hundraði og væla svo undan bensínverði.. Það finnst mér pínulítið of langt gengið ![]() En hins vegar get ég nánast lofað ykkur að líterinn fer vel yfir 200 kall á þessu ári.. jafnvel vel í áttin að 250 kalli.. Það er allavega mín spá miðað við það sem ég hef heyrt og lesið.. |
Author: | arnibjorn [ Fri 18. Apr 2008 16:03 ] |
Post subject: | |
ValliFudd wrote: Ég er reyndar sammála þessum 2 dömum að hluta til...
Menn kaupa sér ekki jeppa með 6 lítra v8 vélar, modda og breyta bílum svo þeir eyði 30+ (og jafnvel 50+ hef ég heyrt frá einum) á hundraði og væla svo undan bensínverði.. Það finnst mér pínulítið of langt gengið ![]() En hins vegar get ég nánast lofað ykkur að líterinn fer vel yfir 200 kall á þessu ári.. jafnvel vel í áttin að 250 kalli.. Það er allavega mín spá miðað við það sem ég hef heyrt og lesið.. ![]() ![]() ![]() |
Author: | maxel [ Fri 18. Apr 2008 16:09 ] |
Post subject: | |
ValliFudd wrote: Ég er reyndar sammála þessum 2 dömum að hluta til...
Menn kaupa sér ekki jeppa með 6 lítra v8 vélar, modda og breyta bílum svo þeir eyði 30+ (og jafnvel 50+ hef ég heyrt frá einum) á hundraði og væla svo undan bensínverði.. Það finnst mér pínulítið of langt gengið ![]() En hins vegar get ég nánast lofað ykkur að líterinn fer vel yfir 200 kall á þessu ári.. jafnvel vel í áttin að 250 kalli.. Það er allavega mín spá miðað við það sem ég hef heyrt og lesið.. lol? |
Author: | ValliFudd [ Fri 18. Apr 2008 16:10 ] |
Post subject: | |
arnibjorn wrote: ValliFudd wrote: Ég er reyndar sammála þessum 2 dömum að hluta til... Menn kaupa sér ekki jeppa með 6 lítra v8 vélar, modda og breyta bílum svo þeir eyði 30+ (og jafnvel 50+ hef ég heyrt frá einum) á hundraði og væla svo undan bensínverði.. Það finnst mér pínulítið of langt gengið ![]() En hins vegar get ég nánast lofað ykkur að líterinn fer vel yfir 200 kall á þessu ári.. jafnvel vel í áttin að 250 kalli.. Það er allavega mín spá miðað við það sem ég hef heyrt og lesið.. ![]() ![]() ![]() Tunnan (159 lítrar c.a.) kostaði 8 dollara í Janúar árið 1998 Tunnan (159 lítrar c.a.) kostar 115 dollara 16. Apríl 2008 Miðað við gengi dagsins í dag: 1998 = 604 kr. 2008 = 8.689 kr. Og olíuverðspámenn segja víst að tunnan muni fara yfir 200 dollara í ár.. |
Author: | srr [ Fri 18. Apr 2008 16:11 ] |
Post subject: | |
Það verður bara að sætta sig við að olíubirgðir fara þverrandi í heiminum. Að mínu mati eru bara tveir valkostir í boði.... 1. Sætta sig við verðið á bensíni 2. Kaupa eyðslugrennri bíla eða skipta yfir í annan hagkvæmari flutningsmáta. |
Author: | maxel [ Fri 18. Apr 2008 16:11 ] |
Post subject: | |
Semsagt eftir svona 3ár mun bensinð kosta 1000kr líterinn.. það gerir 70.000kr að fylla tnkinn? Er ekki verið að rækta bensín á ökrum? |
Author: | Einarsss [ Fri 18. Apr 2008 16:15 ] |
Post subject: | |
Hef trú á að maður mun hafa efni á bensíni í framtíðinni. Ef olíukóngarnir fara hækka verðið í einhverjar fáranlegar tölur þá mun enginn kaupa bensín og hvernig eiga þeir þá að græða á okkur? |
Author: | ValliFudd [ Fri 18. Apr 2008 16:15 ] |
Post subject: | |
maxel wrote: Semsagt eftir svona 3ár mun bensinð kosta 1000kr líterinn.. það gerir 70.000kr að fylla tnkinn?
Er ekki verið að rækta bensín á ökrum? Ætli furstarnir séu ekki að kreista út eins mikinn pening og þeir geta á meðan áður en aðrir orkugjafar taka yfir.. |
Author: | Svezel [ Fri 18. Apr 2008 16:43 ] |
Post subject: | |
Þið verðið samt að athuga að eftir því sem eldsneytisverð hækkar þá fer að vera hagkvæmt að eltast við "dýra" olíu sem er að finna víða á jörðinni. T.d. telja menn að undir norðurheimskautinu sé gríðarlegar olíulindir sem hefur ekki borgað sig að virka fyrr en nú. Rússar og Bandaríkjamenn eru ekki að slást um þetta fyrir ekki neitt. Þessar hækkanir undanfarið má líklega rekja til gríðarlegs hagvaxtar í Kína sem er meira og minna að gleypa alla markaði í dag en Opec situr enn sem fastast á framleiðslunni sem veldur jú hækkun. Ég hef engar áhyggjur af einhverri eldsneytisþverð í bráð en líterinn gæti alveg farið í 200kr áður en langt um líður. Það fer fljótlega að koma pressa um aukna framleiðslu sem mun draga úr hækkunum og dempa markaðinn. |
Author: | maxel [ Fri 18. Apr 2008 16:45 ] |
Post subject: | |
Svezel wrote: Þið verðið samt að athuga að eftir því sem eldsneytisverð hækkar þá fer að vera hagkvæmt að eltast við "dýra" olíu sem er að finna víða á jörðinni. T.d. telja menn að undir norðurheimskautinu sé gríðarlegar olíulindir sem hefur ekki borgað sig að virka fyrr en nú. Rússar og Bandaríkjamenn eru ekki að slást um þetta fyrir ekki neitt.
Þessar hækkanir undanfarið má líklega rekja til gríðarlegs hagvaxtar í Kína sem er meira og minna að gleypa alla markaði í dag en Opec situr enn sem fastast á framleiðslunni sem veldur jú hækkun. Ég hef engar áhyggjur af einhverri eldsneytisþverð í bráð en líterinn gæti alveg farið í 200kr áður en langt um líður. Það fer fljótlega að koma pressa um aukna framleiðslu sem mun draga úr hækkunum og dempa markaðinn. Já djöfull væri geðveikt ef ísland yrði olíuríki |
Author: | bjahja [ Fri 18. Apr 2008 17:35 ] |
Post subject: | |
maxel wrote: Svezel wrote: Þið verðið samt að athuga að eftir því sem eldsneytisverð hækkar þá fer að vera hagkvæmt að eltast við "dýra" olíu sem er að finna víða á jörðinni. T.d. telja menn að undir norðurheimskautinu sé gríðarlegar olíulindir sem hefur ekki borgað sig að virka fyrr en nú. Rússar og Bandaríkjamenn eru ekki að slást um þetta fyrir ekki neitt. Þessar hækkanir undanfarið má líklega rekja til gríðarlegs hagvaxtar í Kína sem er meira og minna að gleypa alla markaði í dag en Opec situr enn sem fastast á framleiðslunni sem veldur jú hækkun. Ég hef engar áhyggjur af einhverri eldsneytisþverð í bráð en líterinn gæti alveg farið í 200kr áður en langt um líður. Það fer fljótlega að koma pressa um aukna framleiðslu sem mun draga úr hækkunum og dempa markaðinn. Já djöfull væri geðveikt ef ísland yrði olíuríki niiiii, það mundi hafa kosti og galla.......... |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |