EDIT!
Uvels gerði upp við mig og allir eru sáttir
--------------------------------------------------
Ég vildi vara meðlimi borðsins að stunda viðskipti við Uvels.
Eins og einhverjir muna kannski eftir þá keypti ég E30 318is á Egilsstöðum um mánaðarmótin sept/okt, um viku seinna kemur Uvels í bæinn með vini sínum sem kaupir bílinn.. Ég leyfi þeim að borga bílinn í tvennu lagi um 100k við afhendingu og svo restina næstu mánaðar.
Í millitíðinni sé ég að Uvels er að selja ný þokuljós að framan og svört hella framljós fyrir E30. Ég sendi Uvels PM um að ég sé til í að taka ljósin uppí lokagreiðsluna og hann samþykkir það. Vika líður fram yfir mánaðarmótin og ég fæ um 60 þúsund inná reikning hjá mér.
Svo er búið að senda örugglega tugi einkaskilaboða síðast liðið hálft ár um hvenær ljósin eiga að koma til mín.
Upphaflega áttu þau að koma eftir mánaðarmótin í desember en það tafðist og altaf var verið að fresta þessu ... mig lá þannig séð ekki á að fá þetta þar sem ég var með project í skúrnum en sagðist altaf vilja fá ljósin áður en ég rúllaði úr skúrnum.
Ég er búinn að gefa honum 2x lokafrest til að klára málið en hann lætur ekki heyra í sér, hann les ekki PM sem ég sendi honum (já það er hægt að sjá það), samt er hann að pósta á kraftinn þannig að ég veit að hann er online.
ss 40k sem ég tapaði á að eiga viðskipti við hann.
Ég skora samt á þig Uvels að bæta þetta og er tilbúinn til að veita þér frest til að geta lokið þessu máli almennilega (Uvels, im willing to give you the chance to close the deal and send me the lights asap or you can refund me the value of the lights, you have my bank account number and kennitala)



