Page 1 of 1

eyelids

PostPosted: Tue 15. Apr 2008 14:14
by Brútus
Var að skoða úrval á eyelids.
Datt í hug að sjá hvað er að koma best út.

Hér eru nokkur dæmi.

Image
E36

Image
E46

Image
E46

Er í vandræðum hvort að maður á að láta þetta leggjast alla leið og yfir stefnuljósin líka eða bara að stefnuljósunum.
Mjög skiptar skoðanir.

Eru einhverjir sem finna eitthvað meira af þessu fyrir E36, væri vel þegið.

PostPosted: Tue 15. Apr 2008 14:24
by Angelic0-
Ef að þú ferð í myndasafnið og í albúmið mitt, þá er þristurinn minn með þau eyelids sem að mér finnst flottust, þ.e. koma alveg yfir stefnuljósin!

PostPosted: Tue 15. Apr 2008 14:33
by bjahja
Ég á svona alveg yfir stefnuljósin ef þig langar að kaupa

PostPosted: Tue 15. Apr 2008 17:38
by Stebbimj
mér finnast svona eyelids bara ljót :puke:

PostPosted: Tue 15. Apr 2008 18:24
by fart
Stebbimj wrote:mér finnast svona eyelids bara ljót :puke:
+ that.

PostPosted: Tue 15. Apr 2008 18:27
by BirkirB
Ég er að hugsa um að fjarlægja mín :oops:
Mér finnst reyndar eyelids koma ágætlega út á sumum bílum, fer kannski eftir lit... :?: en ef það er ekki flott þá er það horbjóður

PostPosted: Tue 15. Apr 2008 19:27
by Geysir
fart wrote:
Stebbimj wrote:mér finnast svona eyelids bara ljót :puke:
+ that.


Skelfing að sjá þetta. :?

PostPosted: Tue 15. Apr 2008 19:28
by Djofullinn
Augabrúnir á E36 sem fara yfir stefnuljósin koma oftast vel út 8)

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 01:25
by Brútus
Djofullinn wrote:Augabrúnir á E36 sem fara yfir stefnuljósin koma oftast vel út 8)


Sammála.
Set kannski inn mynd af bílnum á morgun ef að ég nenni og þá svona geta menn metið það. Svo er einhver hérna líka á spjallinu sem að kann á photoshop eins og enginn sé morgundagurinn. Hann gæti kannski plöggað svona augabrúnum á jafnvel.

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 01:35
by Mazi!
finnst einhvernveginn augabrýr bara vera gera sig á e30

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 12:01
by bjahja
bimma_frík wrote:finnst einhvernveginn augabrýr bara vera gera sig á e30

Brúnir :P

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 12:08
by maxel
IMO veit ég ekki um neinn bíl sem er flottur með augnabrúnir.
E30=ljótt
E36=ljótt
E46=ljótt
Civic=Ljótt
Impreza=Ljótt
Ford T model=Ljótt
:P

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 12:16
by Danni
Mér finnst svona flott á E30... en bara flott á sumum E36

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 16:30
by Ingsie
Djofullinn wrote:Augabrúnir á E36 sem fara yfir stefnuljósin koma oftast vel út 8)


Lang flottast þannig, ekki svona aulalegt eins og var á hjá mér :lol:

PostPosted: Wed 16. Apr 2008 16:38
by Brútus
Greinilega mjög skiptar skoðanir.
Samt finnst rauði þráðurinn í þessu að þetta sé flottara ef að þetta nær alveg yfir stefnuljósin og helst sé hvað flottast á E36 en fari eftir bílum.