bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
keyrt yfir motturnar mínar á þvottaplani á Selfossi. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=28636 |
Page 1 of 4 |
Author: | Brútus [ Tue 08. Apr 2008 01:32 ] |
Post subject: | keyrt yfir motturnar mínar á þvottaplani á Selfossi. |
Þegar ég var að þrýfa á Selfossi á Olís planinu í fyrradag kom maður á stórum jeppa, hvítum og keyrði yfir allar motturnar mínar nema eina sem að lágu í hrúgu við hlið bílsins míns. Hann var að fara að setja loft á dekkin sín. Ég minntist á þetta við hann og hann spurði hvort að þær væru skemmdar en það sást ekkert almenninlega þá því þær voru rennbautar og einhvernveginn athugaði ég þær ekki nógu vel þá. Núna er ég búinn að þrýfa þær og sé að það eru í þeim djúp, ljót hjólför,rákir og þær eru teygðar. Hefði hugsað mér að hafa samband við umræddann mann sem að keyrði yfir motturnar og allavega benda honum á þetta og reyna að komast til botns í þessu máli. Er ekki að tala um nein leiðindi. Kannski er ég bara smámunasamur að vera að pæla í þessu en finnst bara pirrandi að vera með skemmdar mottur. Umræddur jeppi var hvítur , merktur "refsararnir" eða "refsarinn" og hann var stífbónaður og maðurinn sem ók var á milli tvítugs og þrítugs. Persónulegar upplýsingar um manninn svosem sími er vel þegið í pm. Annars endilega segið ykkar álit. Finnst ykkur að ég ætti að fara fram á það að hann borgaði skaðabætur eða finnst ykkur að ég ætti bara að kaupa nýjar mottur og láta þar við sitja ? |
Author: | Axel Jóhann [ Tue 08. Apr 2008 01:42 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | Fríða María [ Tue 08. Apr 2008 01:53 ] |
Post subject: | |
Til hvers að gera mál úr svona hlutum.. Það gerir bara meira vesen ekkert annað... Betra er bara að gleyma þessu og kaupa ser bara nyjar mottur Mitt álit á þessu ![]() ![]() |
Author: | Dóri- [ Tue 08. Apr 2008 01:55 ] |
Post subject: | |
ert þú ekki gæinn sem er að fara fram á við vegagerðina að þeir borgi spegil sem skemmdist þegar þú keyrðir á skilti sem þér fannst halla of mikið ? |
Author: | maxel [ Tue 08. Apr 2008 02:03 ] |
Post subject: | |
Hann spurði hvort þær væri skemmdar.. held hann hafi nú bara gert þetta óvart... gleymdu þessu bara |
Author: | Brútus [ Tue 08. Apr 2008 02:09 ] |
Post subject: | |
Dóri- wrote: ert þú ekki gæinn sem er að fara fram á við vegagerðina að þeir borgi spegil sem skemmdist þegar þú keyrðir á skilti sem þér fannst halla of mikið ?
allt í lögfræðingum ![]() skiltið var of langt inn á veginn. Staðfrest af lögreglu. |
Author: | jens [ Tue 08. Apr 2008 08:09 ] |
Post subject: | |
Erfitt að fara í mál við vegagerðina, skellti einu sinni niður í malbikið olíupönnunni í hvalfirði á lækkuðum E30. Gafst upp eftir nokkur símtöl. |
Author: | gunnar [ Tue 08. Apr 2008 08:10 ] |
Post subject: | |
Jón spæjó í málið! ![]() |
Author: | fart [ Tue 08. Apr 2008 08:25 ] |
Post subject: | |
Fá sér bara "álmottur" ![]() |
Author: | bimmer [ Tue 08. Apr 2008 09:41 ] |
Post subject: | |
Klárlega flottustu motturnar!!!! ![]() |
Author: | gunnar [ Tue 08. Apr 2008 09:42 ] |
Post subject: | |
Þetta eru svona eins og einnota grillbakkarnir sem maður kaupir í bónus á 100 kall ![]() |
Author: | arnibjorn [ Tue 08. Apr 2008 09:46 ] |
Post subject: | |
Klárlega bara þér að kenna Brútus. Átt ekkert að skilja motturnar þínar eftir þar sem hægt er að keyra á þær ![]() |
Author: | Benzari [ Tue 08. Apr 2008 09:53 ] |
Post subject: | |
1, 2 SELFOSS ![]() |
Author: | fart [ Tue 08. Apr 2008 09:53 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: Klárlega flottustu motturnar!!!!
![]() Ég var að kaupa bón um daginn í bílabúð, kemur þá ekki einn djöfull með BLÁAR svona mottur á kassann.. illa sáttur með þær ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | hlynurst [ Tue 08. Apr 2008 10:13 ] |
Post subject: | |
Spurning um að kaupa bara nýjar mottur. Fann fínar mottur til sölu... ![]() |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |