Page 1 of 1
Er að taka í gegn skott.

Posted:
Tue 01. Apr 2008 12:53
by Brútus
Var að vinna í bílnum í gær og fann myglublett undir skottmoppunni hjá mér. Það var lítill blettur en ég tók út skottspjaldið og sullaði á þetta olíuhreinsi og er að láta þetta þorna.
Vill ekki sjá neina myglu og er að hugsa hvort að maður ætti að henda moppunni og kaupa nýjaeða hvort að það sé einhver leið til að útrýma myglu algerlega. Er búinn að losa allt upp úr skottinu og þrýfa það en kann einhver galdurinn á bakvið það að losna við myglu?
Hef heyrt að þó að það sé bara einn blettur þá sé mygla þannig að hún dreyfi sér með gróum um allt svæðið þar sem hún er.

Posted:
Tue 01. Apr 2008 13:04
by Hlynzi
Getur hent mottunni bara í hreinsun í efnalaug.
Hef einusinni fengið svona gróður í bílinn hjá mér eftir að það heldist niður bjór í hann, og ég spreyjaði túrbósám á mottuna og það allavegana réð niðurlögum þessa.

Posted:
Tue 01. Apr 2008 14:46
by slapi
Ég hef oft þurft að eiga við svona og hef náð þessu úr alltaf með góðum árangri.
Mökkbleyti í þessu með speedball og leyfi að liggja í smá tíma og úða úr með háþrýstidælu.
Hefur alltaf virkað fyrir mig.

Posted:
Tue 01. Apr 2008 15:24
by lulex
sám 2000 turbo(tjöruhreinsir) eða granít/brútus ætti að virka á þetta....

Posted:
Tue 01. Apr 2008 15:27
by Gunnar Hnefill
Ef þig vantar nýtt svona á ég til þessa mottu í E36

Posted:
Tue 01. Apr 2008 15:43
by Dóri-
Djúphreinsivél og brútus.

Posted:
Tue 01. Apr 2008 16:43
by Brútus
Gunnar Hnefill wrote:Ef þig vantar nýtt svona á ég til þessa mottu í E36
Heirðu það væri náttúrulega bara snilld.
var að tala við félaga minn samt sem að vinnur í efnalaug og hann ætlar að skoða þetta. Hef samband ef að hann ætlar að fara að rukka mig eitthvað of mikið
Annars takk fyrir leiðbeiningarnar.

Posted:
Tue 01. Apr 2008 17:11
by Gunnar Hnefill
Brútus wrote:Gunnar Hnefill wrote:Ef þig vantar nýtt svona á ég til þessa mottu í E36
Heirðu það væri náttúrulega bara snilld.
var að tala við félaga minn samt sem að vinnur í efnalaug og hann ætlar að skoða þetta. Hef samband ef að hann ætlar að fara að rukka mig eitthvað of mikið
Annars takk fyrir leiðbeiningarnar.
Já þú smellir bara á mig PM ef þig vantar þetta
