Var að vinna í bílnum í gær og fann myglublett undir skottmoppunni hjá mér. Það var lítill blettur en ég tók út skottspjaldið og sullaði á þetta olíuhreinsi og er að láta þetta þorna.
Vill ekki sjá neina myglu og er að hugsa hvort að maður ætti að henda moppunni og kaupa nýjaeða hvort að það sé einhver leið til að útrýma myglu algerlega. Er búinn að losa allt upp úr skottinu og þrýfa það en kann einhver galdurinn á bakvið það að losna við myglu?
Hef heyrt að þó að það sé bara einn blettur þá sé mygla þannig að hún dreyfi sér með gróum um allt svæðið þar sem hún er.

