bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Mjög góð heimildamynd um Chernobyl - er á google video
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=28457
Page 1 of 1

Author:  Svessi [ Tue 01. Apr 2008 07:09 ]
Post subject:  Mjög góð heimildamynd um Chernobyl - er á google video

Núna í April, nánar 26. apríl eru 22 ár liðin frá einu stærðsta umhverfisslysi í mannkynnssögunni. - Chernobyl.

Image

The True Battle of Chernobyl Uncensored
Myndin er sirka 90 mín eða einn og hálfur klukkutími.

Mæli með því að allir horfi á þessa mynd, og að þið bendið öðrum á hana.
Þótt það vanti ýmislegt eins og t.d. afhverju sprengingin sjálf varð og fleyra slíkt þá er ýmsar nýja upplýsingar og fullt af flottum video-myndum sem ekki hafa sést áður.
Þetta er ein af flottari heimildarmyndum um slysið sjálft og baráttuna eftir það.

-

Þið verðið að fyrirgefa mér að þetta er algjörlega Off Topic hérna á kraftinum.

Málið er að ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á að vita meira um Chernobyl en í rauninni litlar upplýsingar að fá.
Ég er svo hræddur um að fólk geri sér engan vegin grein fyrir hversu alvarlegt þetta var og í raun er. Þetta er ekki bara eitthvað sem einu sinni var, heldur er þetta eitthvað sem einu sinni var, er og verður.

Fyrir tveim árum, eða þegar 20 ár voru liðin frá slysinu kom alveg hellingur af nýjum upplýsingum inn á netið.
Ég skrifaði smá óvandaða grein og setti inn á nokkrar spjallsíður þar á meðal þessa ef ég man rétt. Ég komst að því þá að það er að vaxa úr grasi heil kynslóð sem veit nánast ekki neitt um þetta slys. Og í leit minni af upplýsingum náði ég msn sambandi við nokkra unglinga á aldrinum 15-20 ára sem búa í Kiev sem er höfuðborg Úkraínu sem er aðeins um 150 km frá Chernobyl. Ég komst að því að þau vissu lítið meira en unglingar á íslandi, annað en þetta væri kalla eitraða svæðið og þau vildu ekki fara þangað og gætu lítið meira rætt um það því þau vissu svo lítið um þetta.

Einnig er lítið talað um að varnarbyggingin sem byggð var yfir ofnin var upprunalega byggð með það í huga að endast 20-30 ár og var byggð með miklum hraða í stað vandvirkni, það er víst virkilega farið að sjá á þeirri byggingu í dag. Þeir sem fylgjast með byggingunni eru skit hræddir um að ef byggingin myndi hrynja þá gæti orðið annað eins mengunar slys og varð 1986, jafnvel verra því þeir halda að það sé alveg hellingur af geisla-meinguðu regnvatni inni í byggingunni.

Það eru til plön til að byggja yfir þetta allt, sem ætti að vera öruggt allavega næstu áratugina en Úkraína á ekki þá peninga til og Evrópa eða önnur lönd could care less. Og eitt af því er afþví vitneyskjan um hættuna sem liggur þarna er ekki til staðar.

Það fór kjarnorkuský yfir alla evrópu og náði þar á meðal hingað til íslands, þá vissi fólk ekki hvað þetta þýddi eða hver hættan af þessu gæti verið. …þessvegna eru allir þeir sem fæddir eru 1986 og seinna svona eins og þeir eru. :-s
Frakkar neituðu lengi vel að nokkuð hafi farið yfir Frakkland.

Jæja, ég ætla allvega að hætta röfla hérna og bara mæli með því að þið eyðið tíma í að kíkja á þessa mynd, held að allir hefðu gott af því.

Hérna er staðsetningin í earth google:
51°23'22.39" N 30°05'56.60" E
Skoðið hvað þetta í rauninni er nálægt okkur.
51°09'14.05" N 29°58'56.53" E
Þarna er svæði þar sem öll tæki sem notuð voru við aðgerðirnar 1986 voru settar. Þyrlurnar sem eru þarna eru enn þann dag í dag það geislavirkar að það er lífshætturlegt að fara nálægt þeim.

Nú er Pollland næsta land við Úkraínu, ég mana ykkur til að prófa að tala við næsta pólverja sem þið þekkið og tjékkið á því hvað þeir vita mikið um Chernobyl og hættuna sem þar leynist. Er nokkuð viss um að þeir viti óskup lítið meira en að þetta gerðist og þetta hafi verið svaka kjarnorkuslys.

Author:  bebecar [ Tue 01. Apr 2008 07:41 ]
Post subject: 

Gaman að sjá þetta. Þú hefðir kannski líka gaman að því að kynna þér Bhopal slysið sem Union Carbide fyrirtækjarisin bar ábyrgð á.

Það er annað svona álíka dæmi þar sem fólk gerir sér enga grein fyrir því að fyrirtæki í einkarekstri hafi orðið valdur að dauða 15 þúsund manns - nokkru mannskæðara en Chernobyl. Óvíst er svo auðvitað um framhald mála en í báðum tilvikum munu slysin hafa áhrif á margar kynslóðir með aukinni tíðni krabbameins, fæðingargalla og svo framvegis.

Skondin heimasíðan hjá þeim...

http://www.unioncarbide.com/

Og svo hin hliðin...

http://www.bhopal.net/index1.html

Ég þori að veðja að enn færri vita um Bhopal en Chernobyl og er í raun hvorutveggja jafn merkilegt. Einhvern veginn þá virðist þetta ekki ná til fólks.

Author:  BirkirB [ Tue 01. Apr 2008 08:57 ]
Post subject: 

Gaman að skoða þetta.
En þarna þar sem þyrlurnar og bílarnir eru....hvaða rendur eru þarna rétt hjá, eins og landamerki. Tvær alveg samsíða rendur í gegnum skóginn þarna??

Og svo eru tún þarna allt í kring um þyrlusvæðið :shock:

Author:  íbbi_ [ Tue 01. Apr 2008 11:07 ]
Post subject: 

ég hef alltaf verið áhugasamur fyrir þessu slysi, með því merkilegra sem hefur gerts á manns tíma

Author:  BirkirB [ Tue 01. Apr 2008 16:57 ]
Post subject: 

Og ég horfði á myndina... :shock: Skil ekki alveg af hverju þeir vildu ekki segja frá þessu...og Frakkar að viðurkenna ekki að geislunin kom yfir Frakkland líka...
Svo var alltaf svona agalegt hljóð undir allri myndinni...pottþétt útaf geislun...

allavega rosalegt slys :!: já sem er ekki alveg búið og verður það ekki... hvenær verður byrjað að viðhalda sarcophagus??

Author:  Saxi [ Wed 02. Apr 2008 22:17 ]
Post subject: 

Þetta slys hefur á tíðum verið mér afar hugleikið. Hér er leikin heimildarmynd frá Discovery þar sem farið er yfir hvað fór úrskeiðis:

http://video.google.com/videoplay?docid=-1797900180442629253&q=Chernobyl&total=3368&start=0&num=10&so=0&type=search&plindex=8

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/