Page 1 of 4

Reykingar bannaðar ?

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 02:43
by Brútus
Lendi allt of oft í því að fólk ætlast til að það fái að reykja inni í helvítis bílnum. Læt þannig lið út í kuldan að reykja, hvað með ykkur ?

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 02:47
by Axel Jóhann
Alveg sammála, ég reyki ekki og ég leyfi ekki reykingar inní mínum bílum.

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 02:47
by arnibjorn
Ég reyki ekki og það fær enginn að reykja inní neinum bíl sem ég á.

Mér finnst ógeðslegt þegar fólk reykir inní bílum! :puker:

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 02:49
by Axel Jóhann
Sammála, ég bannaði fólki meirað segja að reykja inní 316iA bílnum sem þú áttir. :lol:

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 02:52
by Brútus
Veit ekki finnst bara oft líka bílar sem að er reykt í . . veit ekki hvernig maður getur orðað það en mér finnst innréttingin eiginlega bara hálf upplitast stundum eða svona verða einhvernveginn allavega spes í bílum sem mikið er reykt í. Tala nú ekki um óþefinn sem að næst í sumum tilfellum aldrei úr.

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 02:53
by IngóJP
Það má alveg reykja í bílunum mínum ef þetta eru druslur þá er mér slétt sama. Annars eru reykingar alveg bannaðir í betri bílunum

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 02:55
by bjahja
Vá, ég get ekki ýmindað mér að einhver ætli að reykja inní annara manna bílum :shock:

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 03:37
by UnnarÓ
Ég reyki ekki og það er bannað reykja í mínum bíl.
Nokkrir vinir mínir reykja og reykja allir í bílunum sínum og þetta er svo sóðalegt. Aska komin útum allt, brunagöt í áklæðinu og reykingastybban alveg föst í bílnum.

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 04:20
by ReCkLeSs
ég reyki ekki, og leyfi allsekki fólki að reykja inní mínum bíl.
en ég reykti samt fyrir einu ári, en samt leyfði ég fólki ekki ða reykja inní mínum bílum og gerði það ekki sjálfur.

alveg sammála honum fyrir ofan, kemur ógeðsleg stibba og bíllinn verður bara sjúskaður að innan.

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 08:32
by Aron Andrew
Auðvitað leyfir maður engum að reykja í bílnum, þekki heldur engann sem reykir sem ætlast til þess að fá að reykja...

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 09:23
by finnbogi
Aron Andrew wrote:Auðvitað leyfir maður engum að reykja í bílnum, þekki heldur engann sem reykir sem ætlast til þess að fá að reykja...


ég hef samt lent í svoleiðis liði sem ætlast bara til að að reykja í bílnum manns :shock:

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 09:24
by Arnarf
finnbogi wrote:
Aron Andrew wrote:Auðvitað leyfir maður engum að reykja í bílnum, þekki heldur engann sem reykir sem ætlast til þess að fá að reykja...


ég hef samt lent í svoleiðis liði sem ætlast bara til að að reykja í bílnum manns :shock:



Það er samt fljótt að hætta þegar það gerir sér grein fyrir að það getur labbað ef það ætlar að vera með svoleiðis móral

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 09:35
by Hreiðar
Ég banna fólki kveikja á sígarettunni með bílkveikjaranum mínum þótt þau reykja úti :lol: Kveikjarinn þarf að vera hreinn og flottur í bímernum :) enda ónotaður :)

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 09:38
by Berteh
Hreizi wrote:Ég banna fólki kveikja á sígarettunni með bílkveikjaranum mínum þótt þau reykja úti :lol: Kveikjarinn þarf að vera hreinn og flottur í bímernum :) enda ónotaður :)

Til að fyrirbyggja þann miskilning fékk ég mér non-smokers pakkann í minn 8) Plug í 12v tengið og stærra hólf í staðin fyrir öskubakkan

PostPosted: Tue 01. Apr 2008 10:32
by ValliFudd
Mig langar að skalla fólk sem reykir í bíl með börn í bílnum..
Reykingar í bíl hafa aldrei verið leyfðar hjá mér.. Meira að segja hef ég oft verið spurður útí hvort fólk megi reykja með opna hurðina sitjandi með fæturna út og svona.. Eins og ég samþykki það eitthvað frekar hehe.. Ég bið fólk að fara helst svolítið frá bílnum, hef engan áhuga á að fá þetta inn um miðstöðina..