Var að spá í hvort það væru einhverjar bíómyndir sem þið hafið séð eða haldið uppá sem eru annað en þessar heðbundu Hollywood myndir. Þá er ég að tala um B-myndir, gamlar töff spes myndir, dubbaðar asískar myndir eða Bollywood (Indverskar) myndir. Semsagt myndir sem allir eru búnir að gleyma fyrir langa löngu eða myndir sem ekki koma í bíó hér heima og við vitum ekki einu sinni að séu gerðar.
Hérna eru nokkrar myndir sem ég hef annaðhvort séð nýlega eða held mikið uppá og langar endilega að deila þeim með ykkur.
Dhoom 2 – D:2 Back In Action (MY 2006)
Trailerinn af myndinni - fleiri video úr myndinni eftir umsögnina
(Þessi þráður er aðalega skrifaður útaf þessari mynd)
Vá, ég sá þessa nú bara í síðustu viku og verð ég að segja að þetta er flottasta Bollywood mynd sem ég hef nokkurtíma séð. Hún er gerð í mjög vestrænum stíl. Og ég verð að orða það bara eins og aðalleikkonan sagði í viðtali, að myndin er mjög “racy”.
Myndin er um 150 mínútur eða tveir og hálfur klukkutími með Hardcore Action nánast allann tímann, með fullt af heilu tónlistamyndböndunum allt að 5 mínútna löngum með flottum dansatriðum inni í miðri mynd, ég taldi allavega 5 svoleiðis atriði í snöggu yfirliti hjá mér.
Myndin fjallar um meistaraþjóf, Mr A sem er meistari dulargervanna svo á ekki gleyma að hann er svaka töffari líka. Tvo bræður þá Ali og Jai sem eru löggur sem eru að reyna ná Mr A. Jai er virðuleg lögga á meðan Ali er dálítill glaumgosi og svo nota þeir annann þjóf (mjög flotta gellu) sem beitu til að reyna ná Mr A. Svo að auki eru nokkrar fleyri flottar indverskar gellur.
Myndin er uppfull af flottum action atriðum sem maður er ekki að sjá í fyrsta skipti sem eru klippt með 2. flokks blue screen tækni og klippiforritum. Sem er í rauninni sorglegt því það er greinilega mikið lagt í að gera myndina eins flotta og hægt er. Og ef myndin væri aðeins meira vönduð, betri klipping og stytti tónlistaratriði sem stundum hefði algjörlega verið hægt að sleppa, myndin dubbuð yfir á góða ensku, þá hefðu þeir verið með mynd sem er ekkert verri en þessar flottu Hollywood action myndir..
Mjög töff action mynd með samt fyndum grín atriðum þá aðalega í kringum glaumgosann Ali.
Myndin er mest á Hindi (sem er mest útbreidda túngumál á Indlandi) en fullt af ensku slettum, mjög spes, jafnvel heilu setningarnar allt í einu á ensku. Svo er atriði þar sem tvær persónur tala saman, önnur talar Hindi en hin ensku og þau skilja hvort annað en hvorugt þeirra getur talað hitt tungumálið.
Þetta er mynd sem maður þarf bara að horfa á með bros á vör yfir því hvað hún er flott, skemmtileg og kjánleg.
Reyndar er til mynd nr. 1 sem heitir bara Dhoom (MY 2004) hef ekki séð hana en langar mikið til þess, svo er orðrómur að það sé til Dhoom 3 eða þeir séu að búa hana til en eins og er þá hef ég bara séð bull trailera sem eru klippur úr mynd 1 og 2 og fleyri myndum. Væri gaman að vita ef einhver veit eitthvað meira hvort þetta sé rétt.
Eitt flottasta tónlistaratriðið úr myndinni, takið eftir því að hún skiptir um föt fjórum sinnum, samt á þetta í rauninni að gerast á sama tíma
Mér þætti ansi gaman að vita hvort einhver gæti útskýrt hvað hann meinar með "Excuse me to please"
Bara annað "skemmtilegt" myndband úr myndinni
Cool video (ekki úr myndinn sjálfri) heldur þar sem verið er að setja dulargerfið á leikarann sem leikur Mr. A - mjög töff
Þetta er eina clippan sem ég fann sem var með góðu action atriði, samt vantar endann á þetta atriði
-----
Death Race 2000 (MY 1975)
Trailerinn af myndinni
Veit svosem voða lítið um þessa mynd, sá bara síðustu sirka 30 mín af henni um daginn.
Hún á að gerast árið 2000 (framtíðarmynd) og er rosalega spennandi kappakstur þvert yfir bandaríkin í buggy-bílum sem minna helst á að þeir hafi komið úr Carmageddon leikjunum ef einhver man eftir þeim. (Reyndar kom Carmageddon leikurinn langt á eftir bíómyndinni) Kappaksturinn er þó ekki alvaralegri en það að keppendur geta alveg stoppað og rifist eða slegist, skoðað útsýnið og farið svo að keyra aftur og ná hinum keppendunum aftur á notime. Sá bara að einn af mínum “uppáhalds” leikurum Sylvester Stallone leikur í henni.
Endilega ef einhver veit eitthvað meira um þessa mynd, t.d. er hún þess virði að vera eltast við og eyða svo tíma í að horfa á.
-----
Evil Death 3 eða Army Of Darkness (MY 1992)
Trailerinn af myndinni - kíkið endilega á trailerinn af þessari, hann sýnir eiginlega allt sem sýna þarf.
Besta og flottasta B-mynd ever.
Myndin er 3 mynd af Evil Death seríunni en einnig hægt að horfa á hana sem sjálfstæða mynd, þarft ekki að vera búinn að sjá Evil Death 1 og 2 til að hafa gaman að nr. 3 eða semsagt Army of Darkness.
Myndin fjallar um Ash sem er ungur maður sem fer í frí með kærustunni og finnur bók sem er bók hinna dauðu eða eitthvað álíka, og opnar hana og þá er hann búinn að opna gátt á milli heima hinna lifandi og dauðu eða álíka. Og meira en nóg sem farið er í þá baráttu að halda sig á réttum tíma og í heimi henna lifandi í Evil Death 1 og 2 en í Army of Darkness er hratt farið yfir þennann hluta og hann er soginn inn í einhverja gátt sem kastar honum yfir á 13. öld ásamt bíldruslunni sinni, haglabyssunni og vélsög og einhverju meiru. Og á hann herja beinagrindur, ýmis íll öfl, nornir og djöflar og púkar.
Ótrúlegt en satt þá telst þessi mynd sem B-mynd eða low budget. Því það er fullt af flottum gervum, og tölvuklippum atriðum sem voru klippt með tækninni sem til var 1992 ef þið skiljið hvað ég á við. T.d. það skemmtilega, þeir sem vita hvað á ég við, beinagrindurnar sem komu labbandi eins og her og voru svo sprengdar upp, sumar beinagrindurnar voru límdar saman aftur allt að 5-6 sinnum og eftir því sem þær litu ver út þá voru þær færðar aftar í settinu.
Vil samt taka framm að ég kýs upprunalega klippingu á myndinni með endanum þar sem hann sefur aðeins of lengi, þeir sem hafa séð það vita hvað ég meina.
----
Jackie Chan myndir:
Án þess að fara tala um einhvar staka mynd hérna þá er ég mikil aðdáandi að þessum eldi myndum hanns svona í kringum ´90´s jafnvel áður en hann sjálfur lærði ensku og einhver annar dubbaði myndirnar yfir á ensku. T.d. síðustu tværi sem ég hef séð með honum gamlar eru:
Winners and Sinners
Atriði úr myndinni þar sem Jackie Chan sem góði gæinn er að reyna stöðva bílþjófa sem eru á littla rauða blæjubílnum en það gengur ekki betur en ...það sem sést í videoinu
Wheels on Meals
Fann einhvern lélegann trailer af myndinni
Fann þessa Jackie Chan Pepsi auglýsingu í þessu youtube rápi mínu
Nokkrar fleyri myndir sem ég man eftir sem mér þykir skemmilegar og passa við þessa lýsingu að vera öðruvísi:
Shaolin Soccer
Kung Fu Hustle (Sá einhversstaðar að þeir eru að gera mynd nr. 2)
Kung Pow (mynd nr. 2 er væntanleg á þessu ári)
Svo eru til fullt af Jackie Chan myndum, nenni ekki að telja þær upp, á tímabili gerði hann allt að fjórar myndir á ári. Og svo er fullt af öðru, man ekki meira í bili.
Jæja, einhverjar myndir sem er í uppáhaldi hjá ykkur eða eitthvað sem þið viljið bæta inn í þetta hjá mér.