Page 1 of 1

Nýi Þýskarinn minn.

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 22:41
by Geysir
Jæja, seldi jeppann og fékk þennan bráðfína Benz í staðinn.
Og já vill bara koma því fram að ég ELSKA þennann bíl.
Mig langar bara ekki til að fara úr honum, þetta er unaðslegur bíll.

En já þetta er 1993/1994 árgerð af E280.
Er skráður 197 HP en það er víst eitthvað búið að eiga við vélina í bílnum og hann virkar ágætlega.
Sjálfskiptur, eitthvað sem ég var skeptískur með í byrjun og sé svo að það hentar þessum bíl bara vel.
Grátt leður klæðir bílinn að innann ásamt viðarinnréttingu.
Topplúga sér svo um að halda manni svölum á heitum sumardögum.

Nú veit ég ekki hvort þetta sé sérstök útgáfa eður ei en eftir því sem ég best veit að þá er hann með Avantagarde grilli.

Smá ryð er í bílnum, þarf að láta gera við það við tækifæri. Og svo er framsvuntan brotin.

Hef ekki komið mér í það að taka almennilegar myndir en hendi inn einni eða tveim myndum núna.

Image
Image

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 22:44
by Mazi!
rak augun í þennann um daginn :) sá að svuntan var brotin, annas svalur kaggi 8)

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 22:50
by Arnarf
Loksins skrifar einhver "nýi" rétt.

Það er farið að verða sjaldgæft að fólk skrifi þetta orð rétt í dag.

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 22:53
by Geysir
bimma_frík wrote:rak augun í þennann um daginn :) sá að svuntan var brotin, annas svalur kaggi 8)


Þakka kærlega

Er að hefja leit að nýrri svuntu. :)

PostPosted: Sun 16. Mar 2008 23:05
by Alpina
W124 eitt það besta sem hefur verið framleitt