Page 1 of 3

Arnar Grant skemmdi bíl sem var lagt ranglega.

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 03:04
by Brútus
Það var einhver sem að var ókunnur bílastæðastæðareglum sem að bjó í sama íbúðakjarna og Arnar Grant. Einhver lagði í stæðið hans Arnars og Arnar braut rúðu í bílnum hjá náunganum og færði bílinn þannig.
Nú þekkir maður ekki allar hliðar málsins en þessi Arnar finnst mér koma út eins og alger fáviti í þessari frétt.

Lesa frétt af Vísi

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 03:15
by birkire
Bryggjuhverfið.. pff

http://www.freyja.is/kraftur/ - Ætli Grantarinn sé ekki bara að fylgja mottóinu í endann

Late night crew... HOLLA

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 08:35
by maxel
=D> Hahahaha sterafífl....
„Það var einhver skrjóður í stæðinu mínu fullur af drasli. Ég hélt satt best að segja að þetta væru einhverjir dópistar sem hefðu lagt þarna. Svo þegar ekkert gekk að ná í eiganda bílsins ákvað ég að grípa til þess ráðs að fara inn í bílinn sjálfur og færa hann."

#-o

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 08:43
by Aron Andrew
Ekki dissa Grantarann, bíllinn var bara fyrir! :lol:

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 09:09
by bjahja
Djöfulsins hálfviti :lol:

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 14:04
by jeppakall
það er ekki hægt að setja neitt útá grantarann, hann er mikill bmw maður og átti ekki fyrir svo löngu síðan 530d station með m-kitti og m5 felgum....það er sjúklega fallegur bíll!

BMW menn eiga ekki að dissa hvorn annan, alveg sama hversu fáránlega heimskulega hluti þeir gera!

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 14:24
by Brútus
jeppakall wrote:það er ekki hægt að setja neitt útá grantarann, hann er mikill bmw maður og átti ekki fyrir svo löngu síðan 530d station með m-kitti og m5 felgum....það er sjúklega fallegur bíll!

BMW menn eiga ekki að dissa hvorn annan, alveg sama hversu fáránlega heimskulega hluti þeir gera!


Vel mælt en þó ekki alveg rétt. Grantinn er held ég algjör pappakassi.

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 14:54
by íbbi_
ég spjallaði nú eithtvað við hann í world class einhevrntíman og hann var nú bara mjög fínn..

o/t.. ætli maður hefði ekki gert það sama?

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 14:56
by bjahja
íbbi_ wrote:ég spjallaði nú eithtvað við hann í world class einhevrntíman og hann var nú bara mjög fínn..

o/t.. ætli maður hefði ekki gert það sama?

Hefðir þú brotið rúðu og fært bíl af því hann lagði í stæðið þitt?!?!?!?

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 14:57
by Aron Andrew
Ég hefði nú aldrei gert það sama :lol:

Ólíkt þægilegra að hringja bara á nokkrar bjöllur í blokkinni og athuga málið...

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 15:05
by Hannsi
Ég mundi líklega ekkert spá í því og leggja í stæðið við hliðinna :lol:

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 15:20
by DiddiTa
bjahja wrote:
íbbi_ wrote:ég spjallaði nú eithtvað við hann í world class einhevrntíman og hann var nú bara mjög fínn..

o/t.. ætli maður hefði ekki gert það sama?

Hefðir þú brotið rúðu og fært bíl af því hann lagði í stæðið þitt?!?!?!?


Hringdi hann ekki á vöku fyrst og þeirra bíll komst ekki niður í geymsluna?

Hvað átti hann að leyfa þessum haugi að vera lengi í stæðinu sínu ? Viku?

Hannsi: Þetta eru væntanlega merkt stæði og hver á sitt eigið

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 15:23
by bjahja
Hann átti allavegana ekkia ð brjóta rúðuna!
Af hveru opnaði vökugaurinn ekki bara bílinn, þeir geta það alveg.

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 15:24
by arnibjorn
Ég hefði kveikt í bílnum.

PostPosted: Wed 12. Mar 2008 16:09
by Arnarf
Á hann ekki bara skilið Thule fyrir þetta?


Kannski smá hart, en mér finnst þetta alveg skiljanlegt, hinn gaurinn átti bara til að byrja með að athuga reglurnar sem gilda á bílastæðishúsinu

Það er skammt hvað afsökunin "sorry, ég bara vissi ekki að ég mátti þetta ekki" gildir
Allavega að mínu mati er það engin afsökun