Mercedes-Benz AMG ofurbílasýning ÖSKJU á laugardag

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Mercedes-Benz AMG ofurbílasýning ÖSKJU á laugardag

Postby ValliFudd » Thu 28. Feb 2008 16:15

Fékk senda fréttatilkynningu og langaði að koma þessu hingað :)

Fréttatilkynningin

AMG ofurbílasýning ÖSKJU, Laugavegi, föstudaginn 29. febrúar og laugardaginn 1. mars
- Stórviðburður á Íslandi

Í dag, föstudag, og á morgun, laugardag, efnir Bílaumboðið ASKJA, Laugavegi, til stórsýningar á lúxus- og sportbílunum Mercedes-Benz AMG. Á meðal sýningargripa verða nýr C 63 AMG, sem skilar 457 hestöflum og er aðeins 4,57sekúndur í hundraðið og S 63 AMG – 525 hestafla lúxubíll. Einnig verður vinsælasti sportjeppinn í dag kynntur – ML 63 AMG, sem er 510 hestöfl - og tveggja manna sportkerran SLK 55 AMG – 360 hestöfl.

Um AMG
AMG var stofnað árið 1967 og hefur æ síðan hannað ofurvélar í Mercedes-Benz lúxusbifreiðar. Fyrstu tveir stafirnir í nafninu standa fyrir stofnanda fyrirtækisins, Hans Werner Aufrecht, samstarfsmann hans, Erhard Melcher, og fæðingarbæ Aufrechts, Grossaspach.

Á þessum 40 árum hefur mikið vatn runnið til sjávar og starfsumhverfi fyrirtækisins breyst mikið. Árið 1999 yfirtók Daimler-Chrysler rekstur AMG og ber fyrirtækið nú nafnið Mercedes-AMG GmbH. Það byggir á sömu grundvallar gildum og Mercedes-Benz: gæðum, öryggi, þægindum og umhverfisvitund.

Sýningin verður í sýningarsal ÖSKJU, Laugavegi 170, og stendur yfir frá kl. 10-18 á föstudag og frá kl. 10-16 á laugardag.


EDIT: leiðrétting, hún verður semsagt á föstudag líka 8)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby flamatron » Thu 28. Feb 2008 17:16

Heitar píur og flottir bílar.
Klikkar ekki.! 8)
Tómas
BMW 325ic '95
Isuzu Trooper '99
User avatar
flamatron
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1387
Joined: Sat 31. Aug 2002 17:41

Postby Thrullerinn » Thu 28. Feb 2008 17:20

ohhh ég sá einn glænýjan G55 í vikunni, sjæzebæze hvað hann var flottur :?

... verður gaman að skoða þetta þó svo að hann verði ekki þarna á sýningunni.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 37 guests

cron